blaðið - 26.11.2005, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 MaAÍð
Fangaflug á
gervihnattamyndum
Evrópuráðið mun m.a. nota gervi-
hnattamyndir sem sönnunargögn
til að komast að því hvort Banda-
ríkjamenn starfræki leynileg fang-
elsi í Austur-Evrópu. Dick Marty,
svissnekur meðlimur Evrópuráðs-
ins, hefur fengið það verkefni að
rannsaka ásakanir á hendur CIA um
að stofnunin hafi notað evrópska
flugvelli til fangaflutninga en það
brýtur í bága við þjóðarrétt. Gervi-
hnattamyndir frá Spáni munu verða
notaðar sem heimildir um hvort
Bandaríkjamenn hafi haft leynileg
fangelsi i Póllandi og Rúmeníu frá
árinu 2002 eins og mannréttinda-
stofnunin Human Rights Watch
hefur haldið fram. ■
Bim/Frikki
Þingmenn gegn rapptónlist
Um 200 þingmenn á franska þing-
inu fóru fram á það í vikunni að
dómsmálaráðherra landsins beitti
sér fyrir því að mál yrði höfðað gegn
sjö rapptónlistarmönnum og hljóm-
sveitum sem hafa verið sökuð um að
hvetja til ofbeldis í textum sínum.
„Kynjamisrétti, kynþáttahyggja og
gyðingahatur eru ekki lengur liðin
í textum sem eru sungnir frekar
en í mæltu eða rituðu máli,“ sagði
Frani;ois Grosdidier, þingmaður
hægriflokksins UMP, sem fer fyrir
hópi þingmanna sem vill að dóms-
málaráðherra beiti sér í málinu.
Grosdidier telur að textar tón-
listarmannanna eigi sinn þátt í að
kynda undir því ofbeldi sem blossar
upp öðru hverju í úthverfum Parísar-
borgar og breiddist víðar um landið
fyrir um mánuði síðan.
Aðför að menningu
nýrrar kynslóðar
í kjölfarið sendi útvarpsstöðin
Skyrock, sem einkum hefur leikið
rapptónlist, frá sér tilkynningu þar
sem hún lýsir hneykslun sinni á til-
tækinu. 1 tilkynningunni segir að
hér sé um að ræða aðför að menn-
ingu nýrrar kynslóðar sem sé eina
ferðina enn gerð að blóraböggli
fyrir hið slæma í samfélaginu. „Á
sama hátt og Georges Brassens, Léo
Ferré, Jacques Brel og rokkmenn-
ingin var á sínum tíma sökuð um
að afvegaleiða æskuna og hvetja til
ringulreiðar er nú farið gegn heillri
kynslóð og leggur í hættu tjáningar-
frelsi hennar,“ segir í tilkynningu
frá útvarpsstöðinni. ■
Moröingi sleppur
við fangavist
Bandaríkjamaður sem ákærður var
fyrir morð á 41 árs leigubílstjóra í
Kaupmannahöfn í vor sleppur að
öllum líkindum við fangelsisvist. f
staðinn verður maðurinn dæmdur
fyrir ósæmilega meðferð líks en
líkið var hlutað niður með hnífi
eftir drápið. Líkið var skilið eftir í
tveimur götum í Kaupmannahöfn
og vakti málið mikla athygli í Dan-
mörku vegna þess hversu hrottalegt
það þótti.
Bandaríkjamaðurinn hefur verið
í gæsluvarðhaldi síðan 7. apríl síð-
astliðinn. Hámarksrefsing fyrir að
misþyrma líki eru 6 mánuðir í Dan-
mörku og verður meintum morð-
ingja því að öllum líkindum sleppt
eftir réttarhöldin næsta mánudag.
Kirkja býður ódauð-
leika til kaups
Dómkirkja heilags Páls í Melbo-
urne hefur fundið upp á nýstárlegri
fjáröflunarleið. Fólki býðst að fá
ásjónu sína höggna í stein á eina af
turnspírum kirkjunnar gegn gjaldi.
David Richardson, djákni biskupa-
kirkjunnar í Melbourne, á von á
að einhverjir grípi tækifærið til að
öðlast „eins konar ódauðleika“ með
því að skilja steinmynd af sér eftir á
jörðinni sem muni standa um aldur
og eilífð. „Fólk á sjötugsaldri mun
vilja geta sagt við barnabörnin sín:
„Þarna uppi er afi þinn, meitlaður í
stein“,“ sagði Richardson. Ódauð-
leikinn er þó ekki ókeypis því það
mun að öllum líkindum kosta um
50.000 ástralska dali (um 2.300.000
íslenskar krónur) að fá ásjónu sína
greypta í steininn. Alls eru um 170
steinmyndir í boði og geta kaup-
endur valið á milli þriggja tegunda:
Raunsönn eftirmynd, skopmynd
eða grótesk eftirmynd í stíl við
gamlar ufsagrýlur. ■
Basset Queen rúm
Kr. 156.600.- án dýnu
King Kr. 187.500.-
Náttborð Kr. 68.800.
Ljóst eikarrúm með náttborðum
og King Koil heilsudýnu
Kr. 235.000.-
Amerískar heilsudýnur í hæsta gæðaflokki. King Koil hafa fram-
leitt hágæða rúm í Bandaríkjunum síðan árið 1898 og framleiða
í dag einu dýnurnar sem eru bæði með vottum frá FCER
Alþjóðasamtök kiropraktora Og Good Housekeeping Stærstu
neytendasamtök í Bandaríkjunum.
Tangent Duo fæst í 4 litum:
Eik, Hnotu, Hvítu og svörtu Kr. 19.900.
Basset gafl, Queen Kr. 42.490.-
King Kr. 53.530.- Náttborð Kr. 39.370.
Gafl Kr. 44.820-
Náttborð Kr. 14.270.
Mikið úrval af rúmteppum
Gafl með náttborðum Queen Kr. 114.900.
Lampi Kr. 4.900.-
King Kr. 124.900,- Lampi Kr. 4.900.-
Lampi Kr. 4.900.-
Sissel heilsukoddar
Jólatilboð Allt að 25% afsláttur af völdum heilsudýnum. Dýnur frá 38.500,-
.--------—-----------
Rekkjan
Skipholti 35 • Sími 588 1955 • www.rekkjan.is
Sissel koddarnir hafa verið fram-
leiddir síðan 1985. Þeir styðja
vel við höfuðið og koma þannig
í veg fyrir láréttan þrýsting á
hálsliðina.
Koddarnir veita fullkominn
stuðning og eru ofnæmis-
prófaðir og framleiddir á
umhverfis-vænan hátt.
Tveggja ára ábyrgð.
Sissel Orginal koddinn er á
frábæru verði hjá okkur.
Verð aðeins kr. 5.900,-
Frábær jólagjöf
Gleymum ekki i leit
okkar að góðu lífi
að það eru lifsgæði
að fá góðan svefn.