blaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 14
blaðiðHH
Útgáfufélag: Árog dagurehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
SKAÐLEG UMRÆÐA UM
STÖÐU BANKANNA
Það er ljóst að umræða erlendis um stöðu íslensku bankanna mun skaða
þá á næstunni og gildir þá einu hvort sannleikskorn er í umræðunni
eða ekki. Það má ætla að bankarnir muni lenda í vaxandi erfiðleikum
með að fá fjármagn á erlendum lánamörkuðum og tortryggni í þeirra
garð mun eflaust aukast. Varnaðarorð Royal Bank of Scotland í garð KB
banka hafa að miklu leyti verið borin til baka en eftir stendur skaðað orð-
spor bankans sem erfitt getur verið að losna við. Það er því skiljanlegt
að forráðamenn KB banka skuli vera ósáttir við umræðuna. Heiðarleiki
og traust eru lykilatriði í bankaheiminum og minnsta kusk sem fellur
um þessi atriði geta haft víðtæk áhrif. íslandsbanki hefur einnig bent
á að áhrifin séu ekki bundin við KB banka, heldur líka hina íslensku
bankana.
Það er hins vegar full ástæða til að taka alvarlega þær athugasemdir
og áhyggjur sem fyrirtæki eins og Moody's hafa sett fram. Þar er meðal
annars varað við of stórum stöðum bankanna í hlutabréfum enda geta
þær ýkt allar sveiflur í afkomu þeirra. Þannig verður afkoman afar góð
þegar staðan á markaði er eins og verið hefur undanfarin misseri, en
hrynur síðan eins og spilaborg um leið og góðærið er á enda og hluta-
bréfin lækka í verði.
Almenningur hefur í besta falli óljósa hugmynd um stöðu bankanna
og hvaða áhættu þeir hafa tekið í lánveitingum og verðbréfakaupum.
Það ber því að fagna yfirlýsingu Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra
KB banka, um að þeir þurfi að upplýsa markaðinn betur um stöðuna.
Það er ekki að efa að bankinn mun gera sitt til að upplýsa fjárfesta og
aðra um raunverulega stöðu mála.
Seðlabankinn hefur heldur ekki séð ástæðu til að skoða KB banka eða
aðra banka sérstaklega og raunar segir Davíð Oddsson, formaður banka-
stjórnar, að ekkert bendi til annars en að staða bankans sé sterk.
íslensku bankarnir hafa stækkað á ógnarhraða að undanförnu og því
ekki nema von að það hafi vakið athygli og jafnvel öfund erlendis. Þess-
ari velgengni ber að fagna, en auðvitað þurfa þessar stofnanir að stíga
varlega til jarðar - það er nefnilega hvergi auðveldara að misstíga sig en
einmitt í fjármálafrumskóginum.
Auglýslngastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Tryggðu þér áskrift að
tímaritinu Þjóðmálum
þJÓÐMÁL
iÓMAWtt#
uenuuwsM
nentiouituuA
llMlttW1
iMwnrUuw
tmwt t«iw<
Hrunadans
Rlistans
Samfylkingin
og iýðræðið
Pættlr úr sögu kalda-
stríðsins á íslandi
Áskrift má panta hjá Andríki á www.andriki.is
W Þjóðviljinn
- skynsamleg skrif og skætingur -
- daglega á www.andriki.is -
14 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaóiö
Af hverju eru stjórnmálamenn
svona leiðinlegir?
Ég fylgist af nokkurri ánægju með
viðureign Staksteina Morgunblaðs-
ins og forsetaembættisins vegna
heimsóknar forsetans til Mónakó.
Þegar kemur að beittum, snörpum
og meinfyndnum texta hafa Stak-
steinar vinninginn, enda þarf forseti
víst sífellt að gæta að hófsemi í orða-
vali og má ekki leyfa sér þá ósvífni
sem Staksteinahöfundar stunda
með glæsilegum árangri á góðum
degi. Reyndar les ég Staksteina yf-
irleitt alla daga af mikilli ánægju.
Ég þarf ekkert að vera sammála
því sem þar stendur. Ég les þennan
dálk vegna þess að hann er skemmti-
lega skrifaður. Ég veit að einhverjir
myndu segja hann einkennast af
rætni, en slíkt álit held ég að stafi
einungis af viðkvæmni þeirra sem
kveinka sér undan skrifunum.
Sískrifandi stjórnmálamenn
Ég ætla ekki að leggja þennan pistil
undir Staksteina, þótt ég vildi
gjarnan drekka rauðvín með þeim
sem dálkinn skrifa. Ég held nefni-
lega að við gætum skipst á skemmti-
legum sögum. Það var hins vegar
við lestur Staksteina, síðastliðinn
föstudag, að hugurinn fór á flug og
staðnæmdist hjá stjórnmálamönn-
unum. Ég fór að velta því fyrir mér
af hverju stjórnmálamenn eru
sískrifandi án þess að hafa mikið
að segja. Ekki síst velti ég því fyrir
mér af hverju þeir eiga svo erfitt að
koma frá sér öðrum texta en þeim
sem framkallar geispa hjá lesendum.
Dagblöðin eru venjulega sneisafull
af skrifum stjórnmálamanna en
hver les þau? Ég veit reyndar að
stjórnmálamennirnir gera það. Ég
hef stundum komið að stjórnmála-
mönnum þar sem þeir eru að lesa
grein eftir sig. Svipurinn á andliti
þeirra gefur til kynna að þeir séu
óumræðilega hamingjusamir.
Nú geri ég ráð fyrir að stjórnmála-
menn mótmæli því harðlega að þeir
skrifi til að vekja athygli á sér, þeir
Kolbrún Bergþórsdóttir
séu að vekja athygli á þörfum mál-
stað. Ég ætla ekki að gera lítið úr hug-
myndinni um hinn hugsjónamikla
stjórnmálamann, en mér hefur
alltaf fundist að þannig stjórnmála-
maður eigi að hafa vott af stílgáfu og
skemmtilegri hugsun.
Skortur á snerpu
Þegar íslenskir stjórnmálamenn
setjast við tölvuna þá er eins og
sitthvað bresti. Þeir setja sig í hátíð-
lega gírinn og skrifin verða stirð og
stofnanaleg. Almenningur nennir
ekki að lesa, lái honum hver sem vill.
Nú kunna stjórnmálamenn að segja
að málefnin sem þeir skrifi um séu
ekki skemmtiefni heldur háalvarleg
mál sem varða almannaheill og þjóð-
arhag. Ekki skal ég efast um það,
en þá er líka brýnt að menn skrifi
þannig að eftir sé tekið. Menn þurfa
ekki að vera jafn ósvífnir og Stak-
steinar (þótt ekki myndi ég flokka
slíkt sem löst) en þeir þurfa að búa
yfir snerpu og þori.
Ég man ekki hvenær ég las síð-
ast mér til ánægju blaðagrein eftir
stjórnmálamann. Stjórnmálamenn
eru viðkvæm stétt, satt best að segja
ekkert skárri en rithöfundarnir í
jólabókavertíðinni. Kannski óttast
þeir að gefa höggstað á sér ef þeir
fara að skrifa frjálslega. Ég get svo
sem skilið þann ótta, þótt mér finn-
ist hann ögn kjánalegur. En það
hvarflar stundum að mér að stjórn-
málamenn skrifi eins og þeir gera
af því að þeir hafa ekki stílgáfu. Það
finnst mér vont. Eina ráðið sem ég
kann að gefa þeim er að henda frá
sér hundrað blaðsíðna skýrslunum
og lesa bókmenntir. Það má láta
aðstoðarmenninna í það, eins og í
önnur skítverk. Ef svo stjórnmála-
mennirnir hafa ekki tíma til að lesa
Sturlungu eða Þórberg Þórðarson til
að kynnast góðum texta þá geta þeir
lesið Staksteina á hverjum morgni.
Ég er ekki að halda því fram að Stak-
steinar séu hábókmenntalegur litt-
eratúr en af þeim má samt sitthvað
læra.
Höfundur er blaðamaður
Kiippt & skoríð
klipptogskorid@vhl.is
o
ssur Skarp-
héðinsson
er
endalaus
uppspretta skemmti-
legra orðaskipta. Á
heimasíðu hans stendur
eftirfarandi: „Ég mótmælti því harðlega á Al-
þingi í dag að Þorgerðu r Katrín menntamála-
ráðherra hefði flúið til Senegal til að þurfa
ekki að vera viðstödd umræðu um fjárlög. Ég
spurði forsætisráðherra hvort honum bæri
ekki að setja bönd á ráðherra sfna við svo mik-
ilvægar umræður - einsog Davíð Oddsson
gerði þegar ég var í ríkisstjórn með honum.
Þetta varð þingskáldum yrkisefni. Jón Krist-
jánsson, sem núverandi þingmanna kemst
næst því að vera ijóðskáld, orti þá eftirfar-
andi vísu í tilefni af orðaskiptum mínum og
Halldórs Ásgrímssonar:
Dömur þær sjást í Senegal
þar sannarlega er kvennaval
og sólrlka daga
sjástþærflatmaga
þó Össurhann spyrji alveg spinnegal!
teingrímur J. Sigfússon, sem
stöðugt fer fram
sem hagyrðingur,
orti af sama tilefni þessa
vísu þar sem hann viðrar
þá framtíðarspá aöfrúÞor-
gerðurkomiekki heimfyrr
enumjól:
Þingsins fóla flýrhún tal,
framhaldsskóla bætir.
Brún afsol ÍSenegal,
svoumjólinmætir"
DV stóð fyrir umfangsmikilli frídreif-
ingu meðan á Gallup könnun stóð
og mældist hún t
8,7%. Til viðbótar hefur |
staðið yfir áskrifendaher-
ferð og hefur fólki verið boðin fríáskrift í einn
mánuð „án allra kvaða". Það láðist hins vegar
að segja fólki að það yrði sjálft að hringja inn
og segja upp þessari fríáskrift eftir mánuðinn
ef það vill hætta henni. Margir hafa vaknað upp
við vondan draum síðustu daga, farnirað greiða
áskríft að DV án þess að hafa óskað eftir því.