blaðið - 26.11.2005, Síða 16
16 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaAÍA
Gróðurhúsaáhrif
aldrei meiri
Hlýnun og hœkkun sjávar heldur áfram
Rannsóknir á Suðurskautsland-
inu sýna að gróðurhúsaáhrif í
heiminum hafa ekki verið meiri
í 650 þúsund ár. Þetta er helsta
niðurstaða rannsóknar sem
ísefnafræðingar gerðu á Suð-
urskautslandinu og birt var í
vísindatímaritinu Science.
1 sama tímariti kemur fram að
yfirborð sjávar hækki nú helmingi
hraðar en áður. Séu þessar niður-
stöður réttar má búast við fjölgun
fárviðra og stöðvun golfstraumsins.
Síðustu fimm ár hafa ísefnafræðing-
arnir borað um 3.000 metra niður í
I BÍQ
4 5
ísinn sem samsvarar því að borað
hafi verið 900.000 ár til baka. Loft-
bólur sem mynduðust af gasi sem
fundust í ísnum gefa vísbendingar
um hvernig loftslagið var áður fyrr.
Rannsóknin leiddi í ljós að magn
koltvísýrings er um 30% hærra í and-
rúmsloftinu nú en áður og magn
metans mælist 130% hærra. Að mati
Thomas Stocker frá háskólanum i
Bern sem tók þátt í rannsókninni
eykst magn koltvísýrings 200
•.:/ '"fyZ":
: ,f, , rjn. j , /',
mW ig—h .
ÍK'AKURnYRI ‘SELFOSS
Pelshúfur
og -treflar
PELSINN Kirkjuhvoli • sími 5520160 4
ÚTBOÐ
Útboð á bifreiðum og tækjum frá Varnarliðinu
verður dagana 24. - 28.nóv á
www.geymslusvaedid.is
Nénari upplýsíngar á heimasíöu okkar
www.geymslusvaedid.is og í síma 565 4599
Goymslutvmðió ehf
Jólin
nálgast
DÚN Gt FIÐUR
S É « V E 8SLUN
Laugavegi 87 • símar 551 8740 & 511 2004
sinnum hraðar nú en það hefur gert
síðustu 650 þúsund árin.
Hækkun sjávar óhjákvæmileg
Önnur rannsókn Science sýnir fram
á að hlýnun andrúmslofts muni leiða
til þess að yfirborð sjávar hækki um
hálfan metra fram að næstu alda-
mótum. Rannsóknin sýnir að yfir-
borð sjávar hefur hækkað um einn
millimetra á ári síðastliðin 5.000 ár.
Síðustu 150 árin hefur hækkunin
hins vegar numið 2 millimetrum á
ári. Kenneth Miller, einn þeirra sem
stóð að rannsókninni, kennir gróður-
húsaáhrifum um þessa þróun. Sam-
kvæmt Guardian er ekki mikið sem
hægt er að gera til að stöðva hækkun
sjávar og jafnvel þótt Kyoto bókunin
standist kæmi það ekki í veg fyrir
áframhaldandi hlýnun andrúms-
lofts og hækkun sjávar. ■
Rafah
landamærin opnuö
Mahmoud Abbas, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, tilkynnti
í dag að Rafah, landamærastöðinni
milli Gasasvæðisins og Egyptalands,
hefði verið opnuð. Þetta er í fyrsta
skipti sem Palestínumenn munu
stjórna landamærum en það mun
hafa víðtæk áhrif á efnahag lands-
ins. Evrópusambandið mun sjá um
gæslu í landamærastöðinni. Israelar
lokuðu landamærastöðinni 7. sept-
ember sl. skömmu eftir að þeir yfir-
gáfu Gasasvæðið af ótta við að landa-
mærin yrðu notuð til að smygla
vopnum og herskáum íslömum frá
Egyptalandi inn í Palestínu. Leið-
togar Palestínumanna vonast til
þess að opnun landamæranna dragi
úr atvinnuleysi Gasasvæðisins sem
hingað til hefur verið háð ísrael. ■
Sér bankadeildir
fyrir ríka
Stórir og litlir bankar í Danmörku
eru nú í óða önn að taka í notkun
deildir sem ætlaðar eru forríkum
viðskiptavinum. Þeim Dönum
fjölgar sem eru svo vel stæðir að
þeir fá aðgang að þessum deildum.
Síðustu þrjú ár hefur fjöldi þeirra
viðskiptavina í danska kreditbank-
anum sem eiga sem samsvarar 5
milljónum íslenskra króna á banka-
reikningi tífaldast. Dönsk rann-
sókn á fjármálum Norðurlandabúa
áætlar að árið 2009 muni um 2,4
milljónir Norðurlandabúa eiga yfir
2 milljarða danskra króna. ■
Danir sækja í barnaklám
Rannsókn sem gerð var í Danmörku
1.-22. nóvember sýnir að 36 þúsund
Danir reyna daglega að komast inn
á vefsíður sem innihalda barna-
klám. Sérstök sía var sett upp sem
gat gefið upplýsingar um hvort tölvu-
notendur reyndu að komast inn á
vefsíður sem tengdust barnaklámi. I
uppgjörinu kemur fram að allir sem
reyndu að komast inn á barnaklám-
síður voru danskir tölvunotendur.
gylltum ra
Saga Sigríðar Þorvaldsdóttur leikkonu
/ yyfá
um ramma
. V
p
Félagsvísinda-
stofnun 24. / /
Síuju
Su/rithtr
þort l ur
Irikkouu
Áhrifamikil og skemmtileg bók!
um bjartsýna og jákvæða konu sem hefur sannarlega
þurft á þeim eiginleikum að halda í lífinu.
Einstakt tilboðsverð í fjölda verslana!
■mJ