blaðið - 26.11.2005, Qupperneq 39
blaðið LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005
VIÐTALI 39
keppnina og vann hana. En þá kom
í ljós að ég var of ung - eins og alltaf.
Aldurstakmarkið í alheimsfegurðar-
samkeppnina var átján ár og ég var
bara sautján ára. Þátttöku minni
í þeirri keppni var frestað um ár.
„Flott,“ sagði mamma, sem var ætíð
svo jákvæð, „þá höfum við nægan
tima til að finna fína kjóla á þig.“ í
stað þess að fara til Kalilforníu var
mér boðið til London á frumsýn-
ingu á The Vikings en þar var Kirk
Douglas í aðalhlutverki. Ég hitti
Kirk sem reyndist vera ákaflega
viðkunnanlegur og indæll maður
og dansaði við hann. Vitaskuld var
ég upp með mér að hafa hitt alvöru
kvikmyndastjörnu.
Eftir ár fór ég til Kaliforníu í feg-
urðarsamkeppnina og ílengdist þar
því ég komst í Estelle Harman leik-
listarskólann og var þar í þrjú ár
og síðan tvö ár á samningi í Dallas
Theatre Centre. Þetta var yndislegur
tími og ég lærði mjög margt.
Ég var ung og vildi vitaskuld hafa
fjölskyldu mína hjá mér og ákvað
að gera mitt til að hún kæmist til
mín. Einhvers staðar gróf ég upp
símanúmerið hjá framkvæmda-
stjóra Hollywood Bowl. Áður en ég
hringdi í hann krossaði ég mig því
ég vissi að ég væri að gera nokkuð
sem fólk gerði ekki venjulega. Hann
svaraði, ég kynnti mig, sagðist vera
frá íslandi og að ég hefði áhuga á því
að faðir minn, sem spilaði í Sinfón-
íuhljómsveit Islands, fengi vinnu
hjá honum. Sennilega var það Island
sem vakti áhuga framkvæmdastjór-
ans því hann tók mér afar vel og
sagði að faðir minn yrði að dvelja í
Bandaríkjunum í sex mánuði áður
en hann fengi atvinnuleyfi. Ég sagð-
ist vita það en ég myndi sjá fyrir
honum á meðan. Hann sagði: „Ef
fjölskylda þín er enn hjá þér eftir
sex mánuði þá hringir þú í mig og
minnir mig á föður þinn. Ég skal
ég taka hann í prufu og ef mér líkar
við leik hans þá fær hann að spila í
hljómsveitinni.“ Allt gekk þetta upp,
pabbi spilaði í Hollywood Bowl sem
var mikil hamingja fyrir hann, eins
og fyrir okkur öll í fjölskyldunni.
Það var allt skemmtilegt við þennan
tíma en svo sneri ég heim því ég
vildi vera leikkona á Islandi.“
Lærði að tala upp á nýtt
Þú áttir afar farsœlati leikferil en
fékkst svo heilablóðfall. Segðu mér
frá því.
„Arið 1989 fékk ég heilablóðfall.
Þetta var um morgun, ég hafði
kvatt yngstu dóttur mína sem var
að fara í skólann og fór aftur upp
í rúm og breiddi sængina yfir mig.
Lárus, maðurinn minn var við hlið-
ina á mér. Á þessum tíma var hann
vanur að fara niður í hesthús áður
en hann fór í vinnu en hann starf-
aði sem hljóðfæraleikari í Sinfón-
íuhljómsveitinni. En þennan dag
átti hann frí vegna þess að erlendur
stjórnandi sinfóníunnar komst
ekki til landsins á réttum tíma.
Þar sem Lárus lá við hliðina á mér
heyrðist honum ég segja eitthvað.
Hann hváði: „Hvað segirðu Didda“.
Ég svaraði ekki. „Mér heyrðist þú
vera að segja eitthvað,“ sagði hann
og lagðist aftur niður. Eftir nokkru
stund heyrði hann hljóð frá mér,
eins og andvarp. „Hvað ertu að
segja?“ sagði hann og leit til mín og
sá þá að ég lá með opin augu, horfði
upp í loft og var greinilega sam-
bandslaus við umheiminn. Hann
kallaði á elstu dóttur okkar og þau
hringdu á sjúkrabíl sem fyrir til-
viljun var staddur í nágrenninu. Þar
var læknir sem gaf mér sprautu og
farið var með mig beint á spítala.
Ég var meðvitundarlaus í þrjá
sólarhringa. í byrjun vissi enginn
hvort ég gæti hreyft hendur eða
fætur, en þegar læknir kom að
skoða mig hreyfði ég tær og fingur.
Læknirinn talaði við mig en ég var
vönkuð og svaraði á ensku með
einföldum setningum og orðum
eins og: „How do you do?“ og „yes“.
Þegar Lárus kom til mín talaði ég
íslensku, sagði „já“ og „nei“ en gat
ekki sagt heilar setningar því mig
99..........................................................
Ég hefalltafverið bjartsýn. Ég vissi hvað hafði komið fyrir mig og að
ég þyrfti að læra og að það tæki tíma. Þá gekk ég í það verk.
skorti orðaforða. Ég ætlaði kannski
að segja eitthvað en fann ekki réttu
orðin. Ég þurfti að læra að tala upp
á nytt.
Ég vissi að ég þurfti að læra og
að ég yrði að muna. Ég fór í end-
urhæfingu á Reykjarlund og á
hverjum degi kom til mín kona
með blöð sem á voru myndir og orð.
Hún sýndi mér til dæmis mynd af
penna og sagði orðið „penni“ og ég
endurtók: „Penni, penni, penni...“
Leikkonureynslan nýttist mér og
ég lærði orð utan að á sama hátt og
ég hafði lært rullurnar mínar áður
fyrr. Það var ekkert mál.“
Varstu ekki niðurbrotin?
„Nei, ég er ekki þannig. Ég hef
alltaf verið bjartsýn. Ég vissi hvað
hafði komið fyrir mig og að ég þyrfti
að læra og að það tæki tíma. Þá gekk
ég í það verk. Ég fékk tíu blöð í einu
með myndum og orðum. Mér fannst
það lítið og bað um tuttugu og fimm.
Lækninum fannst það fullmikið en
ég hélt ekki og fór heim með blöðin.
Ég lærði og lærði. Sat með tuttugu
og fimm blöð og lærði orðin á þeim
utan að meðan Lárus eldaði."
Lífið og bjartsýnin
Þú skildir við Lárus eftir langt hjóna-
band og nú ertu ein.
„Það eru menn á eftir mér. Sem
betur fer.“
Er einhver einn sem þú elskar?
„Ég ætla ekki að tala um það, en
mér finnst mjög gaman þegar karl-
menn eru skotnir í mér.“
Finnstþér líkagaman að vera skotin
í karlmönnum?
„Já, auðvitað. Það er lífið.“
Heldurðu að þú verðir ekki ein það
sem eftir er?
„Örugglega ekki.“
Bjartsýnin virðist einkenna þig, hefur
hún fylgtþér ígegnum lífið?
„Líf mitt byggist upp á bjartsýni
sem ég hef frá mömmu minni sem
var yndisleg kona og kom ætíð auga
á það jákvæða. Ef eitthvað bjátaði á
sagði hún: „Það er ekki svo slæmt að
þetta kom fyrir af því að þú munt
læra svo mikið af því.“ Auðvitað er
það þannig. Maður lærir margt afar
mikilvægt af því sem hendir mann
ílífinu."
kolbrun@vbl.is
a gnmma
eftir Þorgerði Jörundsdóttur
1. verðlaun í samkeppni
um myndskreytta barnabók
„Bráðskemmtileg
og meistaralegar myndir."
Umsögn þeirra sem séð hafa.
7. sæf/, Penninn 23.11
Jane Johnson
Leynilandið
eftir metsöiuhöfundinn Jane Johnson
áður útgáfustjóra Hringadróttinssögu.
,Ákaflega vel heppnuð saga
sameinar hversdagsleika og töfra
á framúrskarandi hrífandi
og fyndinn máta."
The Times
fr
Einhyrningurinn
minn
Undarlegir atburðir
Fjórða bókin í
ofurvinsælum flokki.
Æsispennandi saga!
Hundurinn
sem átti að verða stór
eftir Irmu Lauridsen og teiknarann Jens Ahlbom.
Skemmtileg og hugljúf bók
sem komið hefur út í átta löndum.
Kossinn sem hvarf
eftir metsöluhöfundinn David Melling.
Yndisleg bók fyrir
prinsa og prinsessur.
f