blaðið - 26.11.2005, Side 54
54 I ÍPRÓTTIR
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöiö
George Best látinn:
Snillingur sem lifði hratt
George Best lést ígær eftir langvarandi veikindi, aðeins 59 ára.
Knattspyrnuheimurinn er í
sorg eftir að norður-írska goðið
George Best lést í gær á Cromwell
sjúkrahúsinu í London. Hann
náði einungis 59 ára aldri. George
Best var einn af hinum frægu
knattspyrnumönnum Manchester
United sem voru oft kallaðir The
Busby Babes.
Sir Matt Busby var stjórinn í brúnni
hjá United þegar Best og félagar
hans urðu Evrópumeistarar meist-
araliða árið 1968 eftir frábæran
úrslitaleik gegn Benfica. Þar skor-
aði Best tvö mörk í leiknum og það
á fyrstu 15 mínútum leiksins. Hið
fyrra með skalla og seinna markið
með einleik að hætti Georgie Best.
Sir Matt Busby, stjóri United, hafði
varað leikmenn sína við Eusobio og
félögum og sagði sinum mönnum að
fara varlega inn í leikinn. Það gerði
Best ekki. „Þú varst greinilega ekki
að hlusta á mig fyrir leikinn,“ sagði
Busby við Best. Þetta var í fyrsta sinn
sem enskt félagslið hampaði þessum
stóra titli. Það sama ár var George
Best útnefndur besti leikmaður
Evrópu og sá besti á Englandi. Þetta
var hátindurinn á ferli hans.
Fyrsta fótboltastjarnan
George Best fæddist 22. maí árið
1946 og var frá Belfast í Norður-
írlandi. Aðeins 15 ára gamall var
hann kominn til Manchester Untied
og tveimur árum síðar lék hann
sinn fyrsta leik. Sá leikur var gegn
W.B.A. sem þá var eitt besta lið
deildarinnar. Best gekk ágætlega
á sinu fyrsta keppnistímabili með
United en á tímabilinu 1964-65 má
segja að hann hafi orðið fyrsta al-
vöru fótboltastjarnan. Hann fékk
þá yfir 1.000 bréf á hverjum degi og
drengurinn var ekki enn orðinn tví-
tugur. Pele sagði eitt sinn um Best
að Norður-lrinn væri uppáhalds-
leikmaðurinn hans. Það fannst ein-
hverjum undarleg ummæli á þeim
tima en George Best komst aldrei
í úrslitakeppni HM með Norður-
írum. Á þessum tíma var fjölmiðla-
væðing ekki næstum eins mikil og
í dag og vinsældir þessa knáa leik-
manns voru með ólikindum. Hann
skoraði 178 mörk fyrir Manchester
United á ferlinum, vann ensku deild-
ina tvívegis og Evrópumeistaratitil-
inn einu sinni.
En Geroge Best lifði hratt og hið
ljúfa líf var eitthvað sem hann átti í
erfiðleikum með að neita sér um.
Tollur Ijúfa lífsins
Eftir að Manchester United varð
Evrópumeistari árið 1968 tók hið
ljúfa líf æ meiri toll af hans spila-
mennsku og eftir tímabilið 1973
var þetta orðið of mikið. Hann var
hættur að mæta á æfingar og annað
í þeim dúr. Best var þá aðeins 25 ára
gamall og átti í raun öll sín bestu
ár eftir sem knattspyrnumaður ef
hann hefði haldið rétt á spilunum.
Best kom víða við eftir þetta.
Lið eins og Stockport, Cork City,
Los Angeles Axtecs, Fulham, Fort
Lauderdale, Hibernian og Bour-
nemouth voru lið sem hann lék
með til ársins 1983. Þegar þarna var
komið við sögu var George Best aðal-
lega á forsíðum blaða vegna skemmt-
analifsins. Árið 2000 var svo komið
að hinu ljúfa lífi þurfti að greiða toll
og Best var fluttur á sjúkrahús þar
sem í ljós kom að hann þurfti lifra-
ígræðslu. Sú aðgerð var framkvæmd
árið 2002 en ekki hætti George Best
að drekka. Fræg er setning hans: „Ég
er hættur að drekka, en bara þegar
ég er sofandi.“ Þann í.október síð-
astliðinn var hann fluttur í skyndi
á Cromwell sjúkrahúsið, þaðan sem
hann átti ekki afturkvæmt. Þegar
Best kom fyrst inn á sjúkrahúsið
1. október var hann með einkenni
flensu og í kjölfarið fékk hann sýk-
ingu í lungu. Banamein hans voru
innvortis blæðingar.
Denis Law lék með George Best
hjá Manchester United og var hjá
honum á fimmtudagskvöldið. „Frá
1964-69 var hann besti knattspyrnu-
maður Englands," sagði Law um
George Best. „Þetta er andskoti sárt
en ég held að við höfum aldrei fengið
að sjá það besta af honum. Hann datt
af sporinu þegar hann hefði aðeins
getað orðið betri,“ sagði Law.
Ráðamenn votta virðingu
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í gær: „Best var senni-
lega sá leikmaður sem hafði mestu
náttúrulegu hæfileikana af sinni
kynslóð og einn stórkostlegasti leik-
maður sem Bretland hefur eignast
frá upphafi. Hver sem sá Best spila
mun aldrei gleyma honum,“ sagði
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, 1 gær um George Best.
Bertie Ahern, forsætisráðherra
írlands, sagði í gær: „Við eigum að
minnást George fyrir hvað hann
gerði best í sínu lífi. Hann var ein-
faldlega fótboltasnillingur."
Sir Bobby Charlton og George
Best unnu marga glæsta sigra með
Manchester United og urðu meðal
annars Evrópumeistarar saman
árið 1968. „Hann hafði gríðarleg
áhrif á leikinn sem slíkan og hafði
mjög mikil áhrif á þá sem sáu hann
leika. Fótboltinn hefur misst eina af
stjörnum sínum og ég hef misst ná-
inn vin. Hann var yndisleg persóna,"
sagði Sir Bobby Charlton um George
Best í gær. í leikjum helgarinnar í
knattspyrnunni á Englandi verður
George Best minnst með einnar mín-
útu þögn fyrir alla leikina.
awawm/
. 13.900
AMRKIÐ
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40