blaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 56
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaðið
Su Doku á
síðu 50
Á laugardögum birtir Blaðið
enn veglegri Su Doku talna-
þraut en aðra daga vikunnar.
Þetta er gert vegna gífurlegra
vinsælda þessarar dægradvalar.
Ásamt hinni hefðbundnu
Su Doku þraut bjóðum við
einnig upp á flóknari Sam-
urai Su Doku í samstarfi
við 109 Su Doku. Lausnir
birtast hér á mánudaginn.
Á dögunum var haldið stökkmót á snjósleðum fyrir framan dómkirkju heilags Basils
nálægt Rauða torgi Moskvu. Mótið hét Snjósleðabylting og mættu margir af bestu
sleðamönnum heims til að taka þátt.
Vetrarsport
2006 á
Akureyri
Um helgina verður sýningin
Vetrarsport 2006 haldin á
Akureyri þar sem hægt verður
að kikja á allt það besta sem
er í boði í heimi vetraríþrótta.
Meðal þess sem hægt verður
að sjá eru sleðar, bílar, staðsetn-
ingartæki, talstöðvar, alls konar
fatnaður, fjarstýrðir bílar og
flugvélar, kajakar, pallhýsi og
margt fleira. Auk þess munu
margir klúbbar og félagasam-
tök kynna sig og starfsemi sýna.
1 kvöld verður svo brettabíó
í Borgarbíói Akureyri. Mynd-
irnar The Community Project
frá Oakley og Redbull, með
listamönnum eins og Terje
Hákonsen, Shaun White og
Travis Rice og Smell the Glove
frá Grenade með Danny
Kass, Pat Moore, Eddie Wall
og Travis Rice verða sýndar.
„Pimpaóu"
Heimsmet í dómínó
Heimsmet var sett í dómínóralli f hoilenska bænum Leuwarden á þriðjudaginn þegar
4.002.146 dómínókubbar féllu. Söngkonan Anastacia hleypti keðjuverkuninni af stað
en einni klukkustund og 45 minútum síðar var gamla metið fallið.
561 AFPREYIMG
PSP
Kimora Lee Simmons, konan
á bak við Baby Phat tískuvör-
urnar, hefur gert aukahluti fyrir
PSP tölvurnar. Þetta er gert
úr hálfu kílói af gulli, 8 karata
gulum og svörtum demöntum
og krókódílaskinni að aftan.
Græjan kostar litlar 2,2 millj-
ónir króna - án PSP vélarinnar.
Það mátti ekki sjá á íslendingum í gær að hald-
inn væri hátíðlegur „Kaupið ekkert" dagurinn
1 (Buy Nothing Day). Kaupið ekkert dagurinn er
haldinn ár hvert daginn eftir þakkargjörðarhá-
tíðina i Bandaríkjunum, sem er allajafna sölu-
hæsti dagur ársins vestan hafs.
Fyrst var dagurinn haldinn fyrir fjórtán
árum þegar fyrrverandi yfirmaður hjá stórri
auglýsingastofu fékk nóg af kaupæðinu. Nú er
þetta alþjóðlegt fyrirbæri sem milljónir manna
í 65 löndum heldur hátíðlegt. Aðspurður segist
Kalle Lasn, upphafsmaður dagsins, ekki hafa
órað fyrir því að dagurinn yrði jafnstór og hann
er. „Þetta byrjaði á að hópur fólks var ósátt við
gömlu aðgerðarstefnurnar. Við komumst að
því að næsta stóra málið hefði eitthvað með
neytendur að gera. Þess vegna byrjuðum við
með kaupum ekkert daginn, okkur fannst sem
einhver yrði að svara neyslusamfélaginu sem á
þeim tíma var byrjað að fara úr böndunum.“
Somettmynd/StelnarHugi
Auglýsingainternet
Lasn segir að meira að segja Internetið sé svo
undirlagt af auglýsingum nú til dags að honum
þykir mjög pirrandi að nota það. „Meirihlut-
inn af okkar upplýsingakerfum er líka sýktur
af þessum auglýsingaveirum. Ég held að
kaupum ekkert dagurinn sé ein af þeim hreyf-
ingum sem hjálpar okkur að ræða á eðlilegum
og góðum grundvelli um geðheilsu og pólitískar
afleiðingar þess neyslusamfélags sem við höfum
skapað," segir Lasn.
... „ Mynd/HatalieMayer
Viktor Hjartarsort á fullu.
Lið Islands á Red Bull Rail
Storm snjóbrettamótinu, sem
haldið var á Trafalgartorgi í
Lundúnum,lenti í sjöunda
sæti af tólf. ísland var dregið í
riðil með Englandi, sem lenti
í öðru sæti í fyrra, og Austur-
ríki. Það var hörð barrátta milli
Islands og Englands og svo
fór að England sigraði, enda á
heimavelli, með litlum 5 stigum.
Lið Bandaríkjanna fór með
sigur af hólmi, Finnar urðu
aðrir og Svíar þriðju. Fyrir
vikið fékk lið BNA hálft kíló
af gulli sem er tæpra tveggja
míÖjóna króna virði.
Wig Worland Staðsetningin verður ekki mikið betri en þetta. Nelson fékk besta útsýnið og vakti yfir keppendum.
Mynd/Natalie Mayer
Gulli GuOmundsson á handriðinu.