blaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaóiö
Utanríkisráðuneytið:
Ríkisstjórn-
in styður
UNIFEM
Ríkisstjórnin mun veita um
12,5 milljónum króna í svæð-
isbundið verkefni UNIFEM í
Suðaustur-Evrópu sem hefst
á næsta ári. Þetta kom fram
í ræðu utanríkisráðherra á
morgunverðarfundi UNIFEM
á íslandi síðastliðinn föstudag.
Svæðisáætlun UNIFEM er
þróuð með hliðsjón af núver-
andi samfélags- og efnahags-
aðstæðum á svæðum sem enn
eru óstöðug en bjóða uppá
mörg tækifæri. Islensk stjórn-
völd hafa stutt UNIFEM í Kó-
sóvó síðan 1999 og hafa íjórir
íslenskir sérfræðingar á vegum
friðargæslunnar veitt verk-
efninu forstöðu þar. Þá kom
einnig fram á fundinum að
utanríkisráðuneytið muni líka
fjármagna stöðu starfsmanna
á vegum friðargæslunnar á
skrifstofu UNIFEM í Kósóvó.
Verkefnið mun standa til ársins
2008 og bera yfirskriífina
Jafnrétti, stjórnarfar og friður.
Vegabréf:
Hundruð íslendinga með diplómatapassa
Fyrrverandiforsœtisráðherrar, seðlabankastjórar og makarþeirra eru á meðal handhafa diplómatískra
vegabréfa. Finnur Ingólfsson er með slíkan passa, og erflokkaður sem Seðlabankastjóri.
Samkvæmt upplýsingum frá
utanríkisráðuneytinu eru 458
fslendingar handhafar diplómat-
ískra vegabréfa og þjónustuvega-
bréfa. Að auki eiga börn þessa
fólks einnig rétt á þessháttar
vegabréfi, en fjöldi þeirra er ekki
tilgreindur í svarinu.
Geir H. Haarde, utanríkisráð-
herra varð við beiðni Marðar Árna-
sonar, þingmanns og hefur birt lista
yfir handhafa þessara vegabréfa.
Fyrirspurn Marðar kom í kjölfar
þess að DV hafði verið neitað um
sama lista á forsendum upplýsinga-
laga. „Ég las bara um að DV hefði
verið neitað um þessar upplýsingar
og mér fannst það út í hött,“ segir
Mörður. „I raun og veru fellur málið
ekki undir upplýsingalög og þess-
vegna er honum ekki skylt að veita
upplýsingarnar, heldur ræður hann
því sjálfur. Hann neitaði blaðinu,
og var í sjálfu sér í rétti til þess, en
maður spyr um ástæðuna. En hann
gat ekki neitað mér þar sem ég bar
hana upp samkvæmt þingsköpum.
Nú liggja þessar upplýsingar fyrir,
og ég get ekki séð annað en að ráð-
herra og ráðuneytið geti bara verið
ánægðir með það.“
Finnurmeð passa
,Ég sé ekkert óeðlilegt í sjálfu sér á
þessum lista,“ segir Mörður. „Þó eru
þarna einhver mistök eins og þau að
Finnur Ingólfsson er
með diplómatapassa
sem Seðlabanka-
stjóri.“ Finnur Ingólfs-
son lét af því starfi
fyrir rúmum þremur
árum. Þeir Seðla-
bankastjórar sem
látið hafa af störfum
eiga rétt á að sækja
um þjónustuvegabréf,
en samkvæmt list-
anum er Finnur enn
með diplómatíska passann sinn. I
reglugerð um þessi mál segir að
þegar handhafi diplómatísks vega-
bréfs lætur af störfum er honum „
skylt að afhenda utanríkisráðuneyt-
inu eða næsta íslenska sendiráði,
fastanefnd eða sendiræðisskrifstofu
vegabréf sitt.“ Einnig segir í reglu-
gerðinni að þeir listamenn sem um
langt skeið hafa skarað fram úr á al-
þjóðlegum vettvangi „og öðlast hafa
heimsfrægð" geta sótt um diplómat-
ískt vegabréf. Ekki verður betur séð
en að Vladimir Ashkenazy sé eini
heimsfrægi Islendingurinn sem sóst
hafi eftir slíkum passa.
Stöðutákn
Árið 1999 kom fram í
svari þáverandi utanrík-
isráðherra, Halldórs Ás-
grímssonar, þegar hann
var spurður um tilgang
þessara „opinberu vega-
bréfa“ að þeim sé ætlað
að auðvelda fulltrúum Is-
lands erlendis að vinna
störf sín í þágu landsins.
Halldór sagði einnig
að útgáfa þeirra væri venja sem
ætti sér langa hefð, en að reynslan
sýndi að ekki væri óalgengt að þess-
konar vegabréf tefðu frekar fyrir
landgöngu heldur en hitt. Það er
undir hverju ríki fyrir sig komið
hvort handhafar slikra vegabréfa
njóti einhverja sérréttinda á landa-
mærum. Mörður segir vegabréfið
sjálft ekki hafa gildi. „Sé maður
diplómati, þá þarf maður að fara
með vegabréfið í utanríkisráðuneyti
viðkomandi ríkis, og sækja um sér-
stakt diplómata skírteini. Þá fyrst
verður maður aðnjótandi vissra
diplómatískra réttinda. Mér sýnist
þetta mestmegnis snúast um stöðu-
tákn, að ég segi ekki snobberí.“ ■
Spilað fyrir börnin
Nemendur Nýja tónl istarskólans glöddu eflaust marga þegar þeir spiluöu i
anddyri Barnaspítalans. Það vantaði ekki einbeitinguna hjá þessum unga fiðlusnillingi
þegar hann beitti boganum af stakri snilld.
v# mnuvikkii
Járn og gler ehf - Skútuvogur 1H
Barkarvogsmegin. -S: 58 58 900
Listaiagerinn
TILBOÐ
á nýjasta
trivial pursuit spilinnu
4990.-
fram yfir helgi.
Laugaivegi 70
POKER SETT
frá 3990.-
pokerborð
dvd kennsla
S:5340-300 Laugarvegi 70 opið: mán-fös 11-18 lau 11-17
KB-banki:
Verðbólgan i jafnvægi
Verðbólgan verður 3,3% að meðaltali
á: næsta ári samkvæmt verðbólgu-
sþá Greiningardeildar KB-banka.
Samkvæmt spá bankans mun verð-
bólgan hækka árið 2007 og verða um
4,5% að meðaltali. Þá er reiknað með
verulegri kólnun á fasteignamark-
aði á næstu mánuðum og árum og
að krónan muni veikjast.
Ólíkar spár
Spá Greiningardeildar KB-banka
gerir ráð fyrir því að veiking krón-
unnar sé óumflýjanleg einhvern-
timan á næstu tveimur árum og
muni valda tímabundinni verð-
bólguhækkun upp að allt að 5,3%.
Líklegast er talið að það muni eiga
sér stað við lok næsta árs og við upp-
haf þarnæsta árs. Þá segir í spá bank-
ans að fasteignamarkaður muni
kólna verulega sé litið til næstu tólf
mánaða og lengra. Gera megi ráð
fyrir annað hvort 2,5% lækkun eða
hækkun en á síðustu tólf mánuðum
hefur fasteignaverð hækkað um
sem nemur 40%. Greiningardeildin
telur einnig líklegt að draga muni
úr einkaneyslu á næstu árum m.a.
vegna mettunaráhrifa í samfélaginu.
Því er það niðurstaða KB-banka að
KB Banki telur að fyrirsjáanleg gengislækkun muni ekki hafa eins mikil verðbólguáhrif
og gengislækkunin árið 2001.
verðbólgan muni mælast um 3,2%
að meðaltali árið 2006 en verða
4,5% að meðaltali árið 2007 og ná há-
marki í 5,3%.
Spá KB-banka er töluvert á skjön
við spá Greiningardeildar íslands-
banka sem birt var í síðustu viku.
Þar voru áhrif gengislækkunar
ásamt launaskriði og ójafnvægi í
hagkerfinu falin muna valda allt
að 6,4% verðbólgu á næsta ári og
hámarki 8,2% á þarnæsta ári. Bank-
arnir eru þó sammála um að fast-
eignamarkaður muni kólna veru-
lega á næstunni en erfitt sé að meta
langtíma áhrif hennar. m
D Helðsklrt (3 léttskýjað Skýjað £ Alskýjað Rignlng, lltilsháttar C'A Rlgnlng 1 1 Suld -Jf'f
Amsterdam 03
Barcelona 11
Berlín 01
Chicago -01
Frankfurt 02
Hamborg 01
Helsinki 02
Kaupmannahöfn 03
London 08
Madrid 07
Mallorka 13
Montreal 01
New York 05
Orlando 08
Osló -00
París 05
Stokkhólmur 01
Þórshöfn 06
Vín -02
Algarve 12
Dublin 06
Glasgow 08
3° Jt>
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
0e