blaðið - 01.12.2005, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaöiö
Lífeyrissjóðir:
Nýr lífeyris-
sjóður
verður til
Nýr Iífeyrissjóður mun líta dags-
ins ljós í. janúar næstkomandi
þegar Lífeyrissjóður lækna (LL)
og Sameinaði lífeyrisjóðurinn
(SL) sameinast. Á fundi sjóðsfé-
laga SL síðastliðinn þriðjudag
var tillaga stjórnar um samein-
ingu samþykkt en áður höfðu
sjóðsfélagar LL samþykkt
sambærilega tillögu. Hinn
nýi lífeyrissjóður mun heita
Almenni lífeyrissjóðurinn með
heildareignir uppá rúmlega 6o
milljarða og verður því fimmti
stærsti lífeyrissjóður landsins.
Viðskipti
Björgólfur
hættir hjá Síld-
arvinnslunni
Björgólfur Jóhannson mun láta
af störfum sem framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstað um áramótin skv.
fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu. I hans stað hefúr verið ráð-
inn Aðalsteinn Helgason, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs
Samherja hf. Björgólfur hefur
unnið sem framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar í tæp sjö ár
og segir í fréttatilkynningunni
að hann fari sáttur frá fyrirtæk-
inu og með góðri samvisku.
Bleika slaufan:
Söfnuðu um
1,4 milljónum
Alls söfnuðust um 1,4 milljónir
króna í styrktarverkefninu
Bleika slaufan sem Krabba-
meinsfélagið og Samhjálp
kvenna stóðu að í október síð-
astliðnum. Verkefnið var helgað
árverkni um brjóstakrabba-
mein og er haldið víðs vegar
um heim. Fjölmörg framlög
bárust í sérmerkta söfnunar-
bauka og verður ágóðanum
varið til fræðslu og forvarna
um gildi brjóstaskoðunar og
brjóstakrabbameinsleitar.
leiftrandi og heillandi“
Viðskipti:
Tap hjá Ice-
landic Group
Strœtó:
Vagnar knúnir metangasi
teknir í notkun
er opinská, leiftrandi og
heillandi... Hér er vissulega
um eigulega bók að ræða,
ekki aðeinsfyrir aðdáendur
Lennons, heldur alla þá sem
... láta sigsögu dœgurtón-
listar einhverju varða.“
Sveinn Guðjónsson, Mbl.
Frábær bók sem varpar
nýju Ijósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aldar.
SKRUDDA
tyjanlóö 9-101 Rtykjtvfk
I. 552 8866 - skrudd»^»krudd».li
wwMr.tkrudda.lt
Icelandic Group samstæðan
tapaði um 22 milljónum á
fyrstu níu mánuðum þessa
árs samkvæmt níu mánaða
uppgjöri fyrirtækisins sem
birt var í gær. Hagnaður eftir
skatta var um 289 milljónir
samanborið við 296 milljónir
árið áður eða um sjö milljón
krónum minni. Þá kom fram í
uppgjörinu að hagnaður fyrir
fjármagnsliði og afskriftir hafi
numið um 867 milljónum sem
er rúmlega 100 milljón krónum
meiri hagnaður en fyrir sama
tímabil í fyrra. í fréttatilkynn-
ingu frá fýrirtækinu kemur
fram að rekstur Coldwater í
Bretlandi og Icelandic France
hafi gengið illa en afkoma
annarra félaga í samstæðunni
hafi verið umfram áætlanir.
Fiskmarkaður fslands:
Tekjur
drógust
saman
Tekjur Fiskmarkaðar Islands
drógust saman um rúmar
20 milljónir samkvæmt níu
mánaða uppgjöri félagsins sem
birt var f gær.Á tímabilinu rak
félagið uppboðsmarkað fyrir
fisk víðs vegar um landið m.a.
f Ólafsvík, Stykkishólmi, Akra-
nesi, Reykjavík og Þorlákshöfn.
Velta félagsins var um 333 millj-
ónir og seld voru rúmlega 35
þúsund tonn af fiski fyrir rúma
fjóra milljarða sem er nokkuð
lakari útkoma en fyrir sama
tímabil í fyrra. Háu gengi ís-
lensku krónunnar og lækkun á
aflaverðmæti er helst kennt um.
Strætó bs hyggst á næstunni hefja
akstur nýrra vagna sem knúnir eru
áfram á metangasi. Tilraunaakstur
sem lofar góðu stendur yfir og gert
er ráð fyrir að hægt verði að taka
vagnana tvo í fulla notkun í byrjun
desember. Metangasið er framleitt
af Sorpu í Álfsnesi og því er um að
ræða vistvænan, innlendan orku-
gjafa. Hörður Gíslason, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Strætó segir
að Strætó hafi ákveðið að kaupa
tvo metanknúna vagna til reynslu.
„Þetta er bráðskemmtilegt verkefni.
Sorpa safnar þessu á haugunum
og afhendir okkur á afhendingar-
stað. Ef hægt er að tala um eitthvað
sjálfbært, þá er þetta ansi langt í
þá áttina." Hörður segir vagnana
hefðbundna í útliti gagnvart far-
þegunum en þó má þekkja þá á
upphækkun ofan á fremri hluta
vagnsins. „Á þessu stigi er ekki að
sjá neinar hindranir þess efnis að
í framtíðinni gætum við haft fleiri
svona vagna í akstri, en þetta er til-
raun hjá okkur núna og við sjáum
hvernig hún kemur út.“ Hörður
segir ekkert síðra að keyra þessa
bíla en hefðbundna vagna, þeir
séu í alla staði liprir og léttir. „Við
eigum að geta keyrt þá jafn langt
á fyllingunni og dísilbílana okkar,“
segir Hörður.
Bwoii/SteinarHugi'
Annar þeirra vagna sem innan skamms munu aka um borgina knúnir metangasi
Vetnisbílarnir snúa aftur
Vetnisbílarnir sem verið hafa í
notkun síðustu misserin hafa ekki
sést á götunum í nokkurn tíma.
Hörður segir að sú tilraun hafi
runnið sitt skeið á enda, en ákveðið
hafi verið að halda þeim í notkun
áfram. „Með því getum við nýtt
vagnana áfram, og einnig fæst meiri
reynsla á notkun þeirra.“ Að mati
Harðar er tæknin í sambandi við
vetnisbílana allt öðruvísi en í hefð-
bundari mótorum, og segir hann þá
tækni ekki enn vera komna á það
stig að þeir séu tiltækir í venjubund-
inn rekstur. „Metanið nýtir bara vél
og er orkugjafi inn á vél, en vetnisbíl-
arnir virka á allt annan hátt. En við
munum nota vetnisbílana áfram, og
ég held að menn líti til vetnisins sem
framtíðar orkubera.“ Metanbílarnir
menga að sögn Harðar eitthvað
meira en vetnisknúnu vagnarnir, en
ekkert í líkingu við díselbíla. „Rann-
sóknir benda líka til þess að metanið
sem verið er að safna í Álfsnesi sé
mjög hreint, og af háum gæðastaðli.
Það þýðir að við bruna komi mjög
lítið af mengandi efnum úr því. En
þetta er eitt af því sem við munum
skoða í þessari tilraun.“ ■
llmandi
jolasapa
TCjÖtHdRR
...með ekta iólailm
Droifing:
BéBé Vöruhús ehf
naiöllfdgq
Simi512-3000