blaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 8
8 i ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaðiö
Námuslysið í Kína:
Tíu enn saknað
Stórfé boðið í Danska símann:
Stjórn gengur að tilboði
Stjórn Danska símans (TDC) hefur
samþykkt tilboð breskra og banda-
rískra fjárfesta í fyrirtækið. Fjárfest-
arnir bjóða 382 danskar krónur (um
3.820 íslenskar krónur) á hlut og
mun framkvæmdastjórn fyrirtæk-
isins mæla með því við hluthafa að
þeir gangi að tilboðinu. Alls er samn-
ingurinn metinn á um 758 milljarða
íslenskra króna. Fyrirtækið Nordic
Telephone Company býður í Danska
símann en meðal eigenda þess eru
fyrirtækin Apax Partners og Black-
stone Group.
„Tilboðið er eins og við bjuggumst
við. Við teljum ekki að gagntilboð
berist þegar viðræður eru komnar
svona langt,“ sagði Rune Moller
sérfræðingur hjá Jótlandsbanka og
bætti við að hann mælti með því
að tilboðinu yrði tekið. Auk Nordic
Telephone Company höfðu bresku
fjárfestingarsjóðirnir Cinven og BC
Partners boðið i TDC.
Gengi hlutabréfa í Danska sim-
anum hefur hækkað um meira en
30% síðan fjölmiðlar greindu frá
því í ágúst að fjárfestar hefðu sýnt
því áhuga að gera yfirtökutilboð í
fyrirtækið.
Kurt Bjorklund, fulltrúi fjárfesta, á blaða-
mannafundi vegna tilboðs um kaup á
Danska símanum í gær.
Tíu námuverkamanna var enn
saknað eftir sprengingu i kolanámu
í Kína á sunnudag. Xinhua-frétta-
stofan segir að tala þeirra sem fórust
sé komin upp í 161. Sprengingin varð
i Dongfeng-kolanámunni í bænum
Qitaihe í norðausturhluta landsins.
Tölum ber ekki saman um hversu
margir hafi verið að störfum í nám-
unni þegar slysið átti sér stað.
Námur í Kína eru meðal þeirra
hættulegustu í heimi og meira en
6.000 námuverkamenn fórust á
síðasta ári í flóðum, eldsvoðum,
jarðfalli eða öðrum hörmungum.
Stjórnvöld hafa margoft hrint af
stað herferðum sem miða að því að
auka öryggi í námum landsins til
Staðfest hefur verið að 161 fórst í námu-
slysinu í Kína á sunnudag og tíu er enn
saknað.
að stemma stigu við slysum og því
mikla mannfalli sem þeim fylgja en
árangurinn hefur látið á sér standa.
HJÁ OKKUfZ BRU NÆ& BILA5TÆPI
O& &OTT AP&BN&!
Ný skýrsla bandarískra stjórnvalda kynnt t geer:
Ovíst hvenær herinn
verður kallaður heim
Óljóst er hvenær hægt verður að kalla
bandarískar hersveitir heim frá írak
samkvæmt nýrri skýrslu um áætl-
anir bandarískra stjórnvalda í land-
inu sem George Bush, Bandaríkjafor-
seti, kynnti í gær. Þar kemur fram
að sífellt fleiri íraskar hersveitir hafi
hlotið þjálfun, að verið sé að koma
á lýðræðislegri ríkisstjórn í landinu
og byggja upp efnahag þess. Eftir því
sem aðstæður batna verður dregið
úr viðveru bandarískra hermanna
og borgara í landinu. „Ekkert stríð
hefur verið unnið eftir tímaáætlun,“
segir í skýrslunni.
„Við vonumst til, en getum ekki
ábyrgst, að staða hersveita okkar
geti breyst á næstu árum eftir því
sem stjórnmálaástandið lagast og
íraskar hersveitir stækka og öðlast
frekari reynslu.“ Ennfremur segir í
skýrslunni að þó að herafli Banda-
ríkjanna verði ekki jafnsýnilegur og
áður muni hann enn sem fyrr vera
skeinuhættur og einbeittur og tilbú-
inn að takast á við óvininn hvar sem
hann kann að leynast.
George Bush, Bandaríkjaforseti, kynnti
áætlanir stjórnvalda f írak í gær.
Lögregla leitar
koníaksfarms
mciwimi ícuar nu
uogiegi
að flutningabíl fullum af
finasta koníaki sem rænt
var í suðurhluta lands-
ins. Ræningjarnir
réðust á bílstjóra
flutningabílsins
þar sem hann lá
sofandi í bílnum
á bílastæði. Eftir
að honum hafði
verið fleygt út úr
bílnum héldu ræn-
ingjarnir á brott
með farminn. Flutningabíllinn
var fullfermdur af koníaki af
tegundinni Courvoisier og
er andvirði farmsins
um 85.000 pund
(um 12.900.000 ís-
lenskar krónur).
Lögreglan í
Hampshire óskar
nú eftir að heyra
í fólki sem hefur
verið boðið Cour-
voisier-koníak til
kaups nýlega.