blaðið - 01.12.2005, Page 9
blaöið FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
l 9
Mannskœðar árásir í Bangladesh:
Lögregla leitar hryðjuverkamanna
Lögregla í Bangladesh leitar nú að
hugsanlegum sjálfsmorðssprengju-
mönnum eftir að tveir íslamskir
öfgamenn sprengdu sjálfa sig í Ioft
upp og drápu átta til viðbótar á
jriðjudag. Mennirnir berjast fyrir
3ví að ströng múslimalög verði
sett í landinu. Öryggisviðbúnaður
hefur verið aukinn í Bangladesh í
kjölfar árásanna. Árásirnar á þriðju-
dag voru gerðar á dómstól í borg-
inni Chittagong í suðausturhluta
landsins og á samtök lögfræðinga
í Gazipur, í nágrenni höfuðborgar-
innar Dhaka.
„Markmið okkar er að komast að
þvi hverjir eru félagar í þessum sjálfs-
morðshópi, hvar þeir halda sig og
hversu margir þeir eru,“ sagði Farr-
ukh Ahmed, yfirmaður leynilögregl-
unnar, sem stjórnar rannsókninni.
Bönnuð samtök liggja undir grun
Víðtækum lögregluaðgerðum hefur
verið hrint af stokkunum sem miða
að því að handtaka félaga í Jamay-
etul Muhahideen-samtökunum sem
talin eru standa að baki árásunum.
Lögregla hefur kennt samtökunum
um röð árása á opinberar bygg-
ingar og dómstóla sem hafa orðið
15 manns að bana síðan í ágúst, þar
á meðal tveimur dómurum. Á vett-
vangi allra sprenginganna fundust
dreifirit þar sem krafist er að ströng
múslimalög verði sett á í ríkinu.
Samtökin voru bönnuð fyrr á árinu
eftir að stjórnvöld höfðu sakað þau
um að tengjast öðrum árásum.
Annar tilræðismannanna, 19 ára
piltur að nafni Abul Bashar, lifði af
sprenginguna en missti báða fætur.
„Álla skipaði mér að ráðast á dóm-
stólinn í Chittagong. Ég braut ekk-
ert af mér með sjálfsmorðsárásinni.
Ég breytti rétt,“ sagði Bashar við
BSS-fréttastofuna þar sem hann lá
á sjúkrahúsi.
Lögfræðingur við hæstarétt í Dhakar lætur í Ijósi reiði sína vegna sprengitilræðanna í
borginni á þriðjudag.
Skeifunni 11 d
Opið virka daga 10-18
FUJ&PRBKAHLAUPAXINN,
KHALBP HOBBBZNI
"HRBINT ÚT 2A&T PÝRLB& BÓK"
BÓKÁRSINB, OB5BKVBK
2KU6&A&ÖPN,
FBYNIR TRAUBTABON
HVBT FÓLK HL AP LBBA &KU&&ABÖRN."
KATKÍN FJBLPBTBP, MBL
KROttTFfe,
JÓN HALLUR BTBFÁNBBON:
"é& ÖFUNPA ÞÁ BPBNNUFÍKLA BBM BI&A
BFTIK AP LBBA PBBBA BÓK"
BILJA APALBTBINBPÓTTIP, TMM
'/2É„
rAF*i*naz
r AF ÖLLUM ^
BRLBNPUM BÓKUM
Á BÓKAMARKAP!
Sími 533 1010
Laugardaga 10-16
Leynifangelsi ogfangaflug CIA:
Rice heitir rannsókn á málinu
Bandarísk stjórnvöld hafa lýst því
yfir að þau muni kanna frásagnir
af leynilegum fangelsum Banda-
rísku leyniþjónustunnar (CIA) í
Austur Evrópu og meintu fangaflugi
stofnunarinnar. Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði Frank-Walter Steinmeier,
þýskum starfsbróður sínum, að hún
myndi láta athuga hvað væri hæft í
staðhæfingunum.
Sean McCormack, talsmaður Rice
sagði að áhyggjur Evrópusambands-
ins væru réttmætar og við þeim yrði
að bregðast.
Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að
CIA hafi notast við flugvelli í land-
inu til að fly tja grunaða hryðjuverka-
menn á milli landa. í síðustu viku
sagðist Evrópusambandið ætla að
fara formlega fram á það við banda-
rísk stjórnvöld að þau kanni frá-
sagnir af meintum leynifangelsum
í Austur Evrópu.
Steinmeier sem var nýlega skip-
aður utanríkisráðherra í hinni nýju
ríkisstjórn Angelu Merkel tók málið
upp við Rice í ferð sinni til Washing-
ton. Hann sagði að Rice hefði heitið
því að veita skjót og ítarleg svör við
beiðni Evrópusambandsins. McCor-
mack sagði að Bandaríkin myndu
reyna eftir bestu getu að svara
ásökununum.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandarfkjanna, sagði Frank-Walter Steinmeier,
utanríkisráðherra Þýskalands, að hún muni láta rannsaka ásakanir um leynileg fangelsi
og fangaflug CIA.
Naktir ræningj-
ar handteknir
Lögregla í E1 Salvador, hand-
tók á þriðjudag tvo nakta
karlmenn sem ætluðu að
ræna banka. Þeir höfðu grafið
göng úr nálægu húsi inn í
bankann. Þeir áttu ekki nema
ófáa metra eftir þegar göngin
hrundu skyndilega og stór hola
myndaðist. Bankaræningjarnir
reyndu að leggja á flótta en
voru fljótlega handsamaðir
af lögreglu. Lögregluyfirvöld
höfðu fylgst náið með svæðinu
í kjölfar kvartana nágranna
yfir skrýtnum hljóðum. Ekki
fylgdi sögunni af hverju
bankaræningjarnir ungu
voru naktir við iðju sína.