blaðið - 01.12.2005, Qupperneq 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
GÆTUM BRÆÐRA OKKAR
Fyrir rétt tæpum tveimur mánuðum, nánar tiltekið 8. október síðastlið-
inn, reið mjög harður jarðskjálfti yfir Pakistan. Talið er að yfir 87.000
einstaklingar hafi látið lífið í jarðskjálftanum og hundruð þúsunda
misstu heimili sín. Hjálparstarfsmenn hafa lagt nótt við nýtan dag að
reyna að aðstoða þá sem verst urðu úti í hamförunum og ekki síst að
reyna að tryggja þeim sem misstu heimili sín húsaskjól. Vetur er að
ganga í garð í Pakistan um þessar mundir og veldur það hjálparstarfs-
mönnum miklum áhyggjum. Hundruð þúsunda manna búa nú við að-
stæður sem vart er hægt að ímynda sér, án nokkurra varna gegn vetrar-
kuldanum sem nú gengur í garð. Samkvæmt nýjustu fréttum má rekja
nokkur dauðsföll síðustu daga beint til kuldanna á svæðinu. Hundruð
manna í viðbót hafa leitað sér læknisaðstoðar og gera má ráð fyrir hrinu
dauðsfalla ef ekkert er að gert.
Þegar slíkar hamfarir dynja yfir bera ríkustu þjóðir heims mikla
ábyrgð. Aðeins þær hafa fjárhagslegt bolmagn til að koma til hjálpar.
Ekki er aðeins leitað til stjórnvalda, heldur almennings alls. Hér á landi
hafa margir tekið við sér - húsfélag fjölbýlishúss í Reykjavík skreytti
ekki hús sitt, gaf fremur þá fjármuni sem slíkt hefði kostað til hjálpar-
starfsins. Búið er að endurgera lagið Hjálpum þeim og mun ágóði af sölu
þess renna til Pakistan. Listinn er langur en betur má ef duga skal.
Margir hafa orðið til þess að benda á að hamfarir í ákveðnum hlutum
heimsins vekja lítil viðbrögð og samúð hins vestræna heims. Þegar flóð-
bylgjur gengu yfir fjölmörg lönd í Asíu var samúð Vesturlandabúa mikil.
Ástæðan var að íbúar margra af þessum ríkjum lentu beint í hörmung-
unum - týndu jafnvel lífi. Fjölmiðlar á Vesturlöndum voru uppfullir af
því hvernig íbúum þeirra landa reiddi af. Fréttir af afdrifum þeirra ís-
lendingar sem voru á svæðinu tröllriðu fjölmiðlum hér á landi, en að
auki var sagt frá því hversu margir íbúar hinna Norðurlandanna létust.
Til hliðar voru síðan sagðar fréttir af afdrifum heimamanna.
Sama má segja um fréttaflutning þegar flóðbylgja skall á New Orleans
á haustdögum. Fáir Vesturlandarbúar lentu í hamförunum í Pakistan
og kannski hafði það sitt að segja um áhuga á að koma þar til aðstoðar.
Kannski skýrir það meðal annars að ríkisstjórn íslands sá ástæðu til að
styrkja ríkustu þjóð heims um 30 milljónir króna í kjölfar flóðanna í
New Orleans en sendu hinsvegar aðeins um 18 milljónir til hjálparstarfs-
ins í Pakistan.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn &auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbi.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
4 RÉTTA JÓLAMATSEÐILL kr: 3.900
4 RÉTTA VILLIBRÁÐARMATSEÐILL
kr: 4.900
Borðapantanir í
síma 5626222 eða angelo@angelo.is
14 I ÁLIT FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 bla6iö
Frelsi á vinnumarkaði
Starfsmannaleigur gegna því hlut-
verki að tengja saman fólk og störf
í mismunandi hagkerfum. Er þar
komin fram aukin sérhæfing á
vinnumarkaði sem er til hagsbóta
fyrir atvinnulausa sem fundið geta
atvinnu hjá leigunum, fyrirtækin
sem fengið geta erlenda starfsmenn
þegar skortur er á starfsmönnum
innanlands og neytendur sem njóta
lægra verðs á vörum og þjónustu.
Heldur þessi skipan verðbólgu í
skefjum þar sem ólíklegra er en ella
að launaskrið fari af stað á vinnu-
markaði. Nú er hins vegar reynt af
miklum mætti að setja sérstök lög á
starfsemi milliliða. Er sá málatilbún-
aður settur fram undir formerkjum
þess að varðveita frelsi og réttindi á
vinnumarkaði. Því miður er það svo
að áðurnefnd lagasetning og barátta
verkalýðsfélaga gegn starsfmanna-
leigum er ekki sprottin af velvild i
garð erlendra starsfmanna. Verið
er að reisa múra sem halda eiga er-
lendum starfsmönnum frá landinu.
Vegið að samningsfrelsi
Lykilatriði sem vill gleymast í um-
ræðunni er að erlendir starfsmenn
ráða sig sjálfir til starfa hjá þeim ís-
lensku starfsmannaleigum sem svo
ráða þá áfram í vinnu hjá öðrum
fyrirtækjum. Gera þeir því samn-
inga um kaup og kjör sjálfir. Margir
erlendir verkamenn fá lág laun fyrir
vinnu sína, lifa á nokkrum hundrað-
köllum á dag og hafa það bágborið
á íslenskan mælikvarða. En allt er
það eitthvað sem einstaklingarnir
kusu sjálfir. Þeir jafnvel hrósa happi
yfir þeim feng að fá vinnu á íslandi
og geta þannig sent peninga til síns
heima þar sem kaupmáttur þeirra er
gríðarlegur. En þar er einmitt kom-
inn kjarni málsins. Fólk hefur val.
Það er helgur réttur hvers einstak-
lings að semja sjálfur um það sem
varðar hann sjálían. Á þeim rétti má
aldrei brjóta.
Samningsbrot ávallt slæmt
Það dettur engum í hug að afsaka
samningsbrot. Því eru í gildi traust
lög sem taka á öllum samnings-
brotum sem eiga sér stað á frjálsum
markaði. Ef starfsmaður er svikinn
af fyrirtæki sem ekki stendur við
gerða samninga getur hann farið í
mál við fyrirtækið og í framhaldinu
fengið tjón sittbætt. Sama gildir um
fyrirtækið ef það telur starfsmann
ekki hafa staðið við gerðan samn-
ing. Slík brot gerast daglega hjá ís-
lenskum fyrirtækjum og fara sína
leið hjá dómstólum eða sátta er leitað
utan þeirra. Starfsmannaleigur eru
ekki undanþegnar þessum lögum
frekar en aðrir og því algjör óþarfi
að setja um þær sérstök lög.
Skorturinn er tímabundinn
Það er vel þekkt að einhversstaðar
verður fólk að fá að byrja baráttu
sína fyrir bættum lífsgæðum. Það
er eflaust erfitt fyrir Islendinga að
skilja stöðu þeirra sem koma frá
löndum í austanverðri Evrópu sem
vinnulaun eru örfáar krónur á dag,
ef þá einhverja vinnu er að fá. Það
þurfa allir tækifæri. Tækifæri til að
búa börnum sínum betri tíð, tæki-
færi til að vinna mikið fyrir lág laun
og taka þannig fyrsta skrefið í átt
að betra lífi. Hækka svo í launum,
færa sig til annarra fyrirtækja og á
endanum verða eins og aðrir í okkar
samfélagi hvað varðar kaup og kjör.
Þær sögur eru margar af erlendum
dugmiklum einstaklingum sem
hingað hafa komið og unnið sig úr
skorti til bjargálna. Því lægra sem
fyrsta þrepið er því auðvelda er fyrir
fólk að taka fyrsta skrefið.
Látum ekki verkalýðsfélög standa
í vegi fyrir frjálsum samningum og
jöfnum tækifærum fólks.
Höfundur er nemi í hagfræði
við Háskóla íslands og í
Frjálshyggjufélaginu.
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
Baugsmiðlarnir létu gera heljarmikla
sjónvarpsauglýsingu fyrir sig til þess
að sýna breidd miðla 365 og sjá ekk-
ert nema bjarta daga framundan eins og end-
urspeglað er í tónlistarvalinu, en þar hljómar
gamla ELO-lagið Mr. Blue Sky undir. En það
vekur hins vegarathygli að sumir miðla 365 virð-
ast vera einsog óhreinu börnin hennar Evu í þess-
ari auglýsingu. Hverjirskyldu þeirvera?
Hún er samt ansi sérstæð nýjasta
þingfyrirspurn Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar til menntamála-
ráðherra, en hún fjallar um það hvort Ríkisút-
varpið ætli ekki að taka aftur upp
útsendingar Auðlindar, frétta-
þáttar um sjávarútvegsmál. Nú
er fyrirspurnin eilítið á skjön við fe"
hefðbundnar kvartanir um að HKT b
pólitíkusar eigi alls ekki að koma nálægt neinu
á dagskrá RÚV, en Klippari hlýturað spyrja hvort
ekki sé von á fleiri fyrirspurnum af þessu tagi.
Til dæmis hvort ekki megi taka þáttinn Spjallað
við bændur aftur á dagskrá, nú eða Óskalög
sjúklinga, Á tali með Hemma Gunn, Útvarp
Matthildi, þáttinn um daginn og veginn, að ekki
sé minnst á þungarokksþáttinn Laus á Rásinni,
sem Andrés Magnússon annaðist snemma á 9.
áratugnum. Það væru gagnlegar fyrirspurnir!
Staksteinar Morgun-
blaðsins eru orðnir
öllum áhugamönnum
um stjórnmál dagleg skyldulesn-
ing, enda merkja menn að þar
haldi Styrmir Gunnarsson
um pennann. Má um leið segja að þarna sé
Styrmir með námskeið fyrir blaðamenn sína f
því hvernig skuli halda úti slíkum dálki, en um
skeið voru Staksteinar orðnir harla bragðdaufur
úrklippudálkur úr öðrum fjölmiðlum, svona
svipað eins og þessi dálkur átti að verða þegar
til hans var stofnað. í gær var rætt um umfjöllun
Fréttablaðsins um dvínandi fylgi HM|
Samfylkingarinnar eftir að Ingi-
björg Sóirún Gísladóttir tók
við forystu flokksins. Telur höf-
undur Staksteina að með þessari
- að þvf er virtist tilefnislausu - umfjöllun sé
Fréttablaðið að sýna mikið vanþakklæti (garð
Ingibjargar Sólrúnar eftir Borgarnesræðurnar
og allt það. Hins vegar er bent á að hún og stuðn-
ingsmenn hennar geti ekki horft fram hjá því að
hún náði ekki árangri sem forsætisráðherraefni
í kosningunum 2003, hún hafi engum árangri
náð sem formaðurSamfylkingarinnarog hún sé
algerlega búin að missa tökin á þingf lokknum.