blaðið - 01.12.2005, Síða 15
blaðiö FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
ÁLIT I 15
Manngerðir
vítiseldar
Á mánudagskvöld sýndi Ríkissjón-
varpið áhugaverða heimildamynd
um rannsóknir á eldvirkni undir
Yellowstone-þjóðgarðinum í Banda-
ríkjunum en þar hafa svokölluð
risaeldgos orðið þrívegis með 6oo-
700 þúsund ára millibili. Til að
gefa áhorfendum hugmynd um
afleiðingar stórra eldgosa var m.a.
brugðið upp svipmyndum af því
hvernig sprengigosin í Sankti He-
lenu og Pinatubo léku nánasta um-
hverfi fjallanna á sínum tima
Einn vísindamannanna sem
rætt var við lýsti því í stuttu máli
hvernig glóandi gosmökkurinn
gæti brennt fólk inn að beini á
augabragði, holdið ýmist bráðnaði
eða yrði líkast kolum enda hitinn
í kringum 400 gráður. Myndirnar
sem fylgdu sögðu líka allt sem segja
þurfti.
En þær vöktu líka hugrenninga-
tengsl við nýlegri hamfarir sem
hafa verið nokkuð í fréttum upp
á síðkastið. Myndirnar af fórnar-
lömbum eldgosanna miklu hefðu
eins getað verið af líkunum sem
lágu eins og hráviði á götum
Fallúdja eftir að bandaríska stríðs-
vélin hafði farið þar um fyrir réttu
ári síðan. í kjölfar þess að ítölsk
sjónvarpsstöð sýndi viðtöl við
bandaríska hermenn sem staðfestu
að íkveikjusprengjum með hvítum
fosfór hefði verið varpað á borgina
í stórum stíl, hefur verið deilt um
hvort þeim hafi verið beint gegn
óbreyttum borgurum, andspyrnu-
mönnum eða jafnvel bara myrkr-
inu svo menn sæju betur til við að
drepa fólk í Fallúdja.
Pistlahöfundurinn George Mon-
biot benti á það í ágætri grein í síð-
ustu viku að það skipti engu máli
hvort fosfórsprengjunum hafi verið
beint gegn óbreyttum borgurum
eða vopnuðum andstæðingum
Bandaríkjahers. Sáttmálinn um
bann við notkun efnavopna gerir
engan greinarmun þar á - það er
einfaldlega bannað að drepa fólk
með eiturefnum. Þótt fosfórinn
sjálfur sé ekki eiturefni myndast
stór ský af eiturgufum við brunann
og þarf ekki að binda um sár fólks
sem fyrir þeim verður.
En Monbiot heldur áfram og
vitnar til þess að í frásögn her-
mannablaðsins Marine Corps Gaz-
ette af árásinni á Fallúdja komi
fram að Bandaríkjaher hafi beitt
sérstökum háhitasprengjum, eins
og þeim sem rússneski herinn lét
rigna yfir Grosní, höfuðstað Téténíu,
fyrir nokkrum árum. Hleðslurnar í
slíkum sprengjum eru að hluta til
gríðarlega eldfimar lofttegundir
sem mynda ský áður en hinn hluti
hleðslunnar, hefðbundið sprengi-
efni, kveikir í þeim.
Þessar háhitasprengjur mynda
gríðarlegt eldhaf sem á einu augna-
bliki gleypir allt súrefni í nágrenn-
inu. Þrýstingurinn kremur hvern
þanntilbanasemlendirundirspren-
giskýinu sjálfu en höggbylgjan æðir
í allar áttir á 3000 metra hraða á
sekúndu. Hún getur m.a. valdið
brunasárum, beinbrotum og
blóðtappa í lifur og milta en líka
því að lungu fólks falli saman og
augun spýtist bókstaflega út úr
augntóftunum.
Þarna liggur vafalítið ástæða
þess að heilu hverfin í Fallúdja voru
rústir einar, rétt eins og var í Grosní
á sínum tíma. Þessum sprengjum
var varpað á borg þar sem á bilinu
30.000-50.000 óbreyttir borgarar
voru innilokaðir, vatnslausir, raf-
magnslausir og bjargarlausir á allan
hátt. öllum hjálparsamtökum var
meinaður aðgangur að borginni
og ekki einu sinni sjúkraflutninga-
mönnum leyft að sinna skyldum
sínum.
Það er ekki deilt um hversu
grimmilegt og villimannslegt það
var af nasistum að drepa fólk með
gasi og brenna síðan, fyrir miðja
síðustu öld. En þegar Bandaríkja-
her fremur slíka glæpi, sextíu árum
síðar, finnur fjöldi fólks hjá sér
knýjandi þörf til að afsaka grimmd-
arverkin. OgleiðarahöfundarMorg-
unblaðsins jórtra upp tveggja vetra
gamla þvælu úr Halldóri Ásgríms-
syni um að Íraksstríðið sé líka
liður í að koma á friði í Palestínu
en muna ekki lengra aftur en svo
að þeir halda sig vera að segja eitt-
hvað nýtt.
Steinþór Heiðarsson, bóndi
www.murinn.is
Gerðu sparikaup!
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Ýsuflök
Kjötfars
Lambasúpukjöt
Ömmupizza
659 kr. kg
398 kr. kg
399 kr. kg
299 kr. stk.
Grillaóur
kjúklingur
og 2 lítra
Coca cola
á aðeins
898 kr.
rfy
Gildir frá I. - 7. des
Svínalundir
BK Svínahamborgarhryggur m / beini
UN Hamborgarar 4 stk
Kalkúnapottréttur m/piparsósu
Tilboðsverð
Freschetta pizza Roma .9"
Skyr.is drykkur 330ml.
35% afsl. v. kassa
35% afsl. v. kassa
335 kr.pk.
30% afsláttur
629 kr.
399 kr. stk.
89 kr. stk.
«#* l’^a ^a
/
Mii ver
SP, R
BÆJARLIND 1 - Sími 544 4510
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10.00 - 20.00