blaðið - 01.12.2005, Síða 18
18 I SAMSKIPTI KYNJANNA
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blafiiö
Haltu fram hjá
Með makanum
99.............................................
Umfram allt skaltu líta á maka þinn sem spennandi
einstakling sem þig langar að halda framhjá með. Því
efþú gerir það ekki, þá gæti einhver annar gert það.
Spenna sem fylgir því sem ekki
má, ofsafengin hrifning, kynlíf
og aftur kynlíf. Allt eru þetta
tilfinningar sem fylgja framhjá-
haldi en oft veldur spennan því að
margir kjósa að svíkja maka sinn.
En væri það ekki fullkomið ef þú
gætir upplifað þessa tilfinningu,
með þínum eigin maka.
Stór hluti karla og kvenna hafa ein-
hvern tímann verið ótrúir maka
sínum. Þegar rómantíkin dvínar og
venjan tekur við þráum við oft snert-
ingu einhvers sem kveikir í okkur
þannig að við finnum blóðið renna
um æðarnar. En hver veit nema þú
gætir upplifað nákvæmlega þetta
með maka þínum. Lestu eftirfar-
andi leiðbeiningar um hvernig hægt
er að upplifa spennu og æsing fram-
hjáhalds með makanum.
Upphafið
Spennan og þetta líkamlega aðdrátt-
arafl sem við finnum fyrir þegar við
hittum einhvern aðlaðandi í fyrsta
sinn er vegna ákveðinna efna í heil-
anum og sérstaklega fenýlalanín.
Rannsóknir sýna að fenýlalanín
kemur í veg fyrir að þú sjáir galla
makans. Þegar þessi sömu gallar
sem hrifu þig áður, eru orðnir pirr-
andi þá merkir það að áhrif fenýlal-
aníns eru þverrandi. Hægt er að losa
um fenýlalanin með því að kyssast
af lífi og sál og bíða eftir alsælutil-
finningunni. Annað gott ráð er að
hunsa galla makans. Rannsókn
við Háskólann í New York leiddi í
Ijós að þáu pör sem upphefðu hvort
annað áttu í sérstaklega nánum sam-
böndum. Hunsaðu þvi galla hennar
eða hans og einblíndu á kostina.
Með því helst alsælan í sambandinu
vel og lengi.
Tilfinningar í hámarki
Fyrstu dagar framhjáhalds einkenn-
ast af miklum tilfinningum auk þess
sem öll skynfæri eru á fullu. Litir,
lykt og áferð verða raunverulegri
og líflegri. Við klæðum okkur og
förðum á þann hátt sem dregur at-
hygli að okkur og undirstrikum ást,
ástríðu með litum eins og rauðum
og bleikum. Þegar við erum komin
í langtimasamband þá eiga sumir
það til að klæða af sér kynþokkann,
ómeðvitað. Gerið sem mest úr því
sem þið hafið, hvort sem það er fal-
legt hár, brjóstaskora, axlabreidd
eða langir leggir. Makinn tekur eftir
bættu útliti og lagar til hjá sjálfum
sér. Og hvað er meira æsandi en
snyrtilegur og vel til hafður maki,
sérstaklega þegar þú veist að það er
fyrirþig?
Spennan
Ef kynlífið í sambandinu hefur
staðnað þá getur óleyfilegt kynlif
með ókunnugum virkað freistandi.
Það sem freistar mest við kynlíf með
einhverjum nýjum er einmitt hið
óþekkta, við þekkjum ekki líkama
elskhugans né hvað kemur honum
til. Einnig gerist það stundum að
ákveðnar hömlur læðast inn í kyn-
líf í langtímasamböndum og við
hræðumst að breyta til. Það vekur
ekki upp eins mikinn ótta að prófa
eitthvað nýtt með ókunnugum.
Leyndarmálið felst í því að stíga út
fyrir hefðina. Stundið kynlif á óhefð-
bundnum stöðum, eins og á þvotta-
vélinni, eldhúsborðinu eða úti í
garði. Lykillinn er að halda þessu
óvænta í kynlifinu, einungis það að
breyta um stellingar reglulega getur
heldur betur hrist upp í hlutunum.
Eftirvænting
Þú getur ekki hætt að hugsa um hinn
aðilann i framhjáhaldi. Þig dreymir
dagdrauma, hoppar hæð þín í loft
upp þegar síminn hringir og skoðar
tölvupóstinn þinn nokkrum sinnum
yfir daginn. Hægt er að skapa
þessu eftirvæntingu í langtímasam-
böndum með þvi að hugsa meira um
makann þegar hann er ekki með þér.
Ekki er verra ef þessar hugsanir eru
af kynferðislegum toga. Sendu mak-
anum kynæsandi skilaboð á daginn
þar sem þú útlistar væntanlegar kyn-
lífsstundir. Hugsaðu um kynlif með
makanum áður en þú kemur heim.
Ég, ég og aftur ég
Það getur orðið þrey tandi og óspenn-
andi að hlusta á hvort annað tala um
börnin, þrifin og vinnuna til lengdar.
Hluti af spennu framhjáhalds felst í
því að finna að einhverjum finnst
maður aðlaðandi sem getur bent
til þess að einstaklingur sé ekki
metinn að verðleikum heima fyrir.
Hægt er að leysa þetta með því að
ræða stundum saman um annað
en þetta hversdagslega. Til dæmis
mætti fara í leikinn „Truth or Dare“
þar sem hægt er að spyrja fyndinna
spurninga um fyrstu ástina, hall-
ærislegustu jakkafötin og svo fram-
vegis. Með þessu deilið þið reynslu
ykkar og tendrið frekari áhuga.
Losti að eilífu
Elskendur geta ekki haldið sig frá
hvort öðru og ástæðan er að stórum
hluta kynlíf. Það er þá kynlíf sem er
stundað út af kynlífi en ekki vegna
þess að það er ekki búið að stunda
kynlíf í þrjár vikur. Það er því mikil-
vægt að ganga ekki að kynlífi í sam-
bandi sem vísum hlut. Kynlíf verður
að vera í forgangi og má ekki mæta
afgangi. Umfram allt skaltu líta á
maka þinn sem spennandi einstak-
ling sem þig langar að halda fram-
hjá með. Því ef þú gerir það ekki, þá
gæti einhver annar gert það.
svanhvit@vbl.is
Hægt er að losa um fenýlalanín meÖ því aÖ kyssast af lífi og sál og bíöa eftir alsælutilfinningunni.
Ástríöunni viöhaldið
«Ætaffelsht
A- H A P I jy N
Álfheimar 6 S.5536280
Álfheimar 6 S.5536280
Fjarlægðu Ijósaperur úr íbúðinni og fylltu hana af kertum.
Oft er erfitt að viðhalda ástríðunni
í samböndum. Gömlu ráðin og
hugmyndirnar eru úr sér gengnar
en ástríðan Iætur bíða eftir sér. I
annríki nútímans er svo nauðsyn-
legt að gefa sér tíma til að hlúa að
hvort öðru og ástinni. Það þarf ekk-
ert endilega að kosta mikið né vera
tímafrekt heldur er hugsunin allt
sem gildir. Það getur verið erfitt að
halda ástinni á Hfi í langtímasam-
bandi en mundu að leiðindi koma
vegna neikvæðs viðhorfs frekar
en kunnugleika. Hér eru nokkrar
úrvalshugmyndir til að kveikja í
makanum.
• Skrifaðu: Ég elska þig á hvíta
koddaverið með penna sem
þrífst ekki af.
• Farið út að borða og kelið í
bílnum að því loknu.
• Kauptu góðar nuddoliur og
bjóddu makanum upp á nautna-
fullt nudd.
• Bjóddu makanum að koma
með þér í sturtu á morgnana.
• Montaðu þig af makanum við
vini og vinkonur þegar þú veist
að hann er nálægur og getur
heyrt mál þitt.
• Taktu upp ástúðlega kveðju á
kasettu eða geisladisk og settu í
bílinn þannig að makinn hlusti
á kveðjuna á leið í vinnuna.
• Vertu dugleg/ur að segja mak-
anum að hann/hún sé það besta
sem fyrir þig hefur komið.
• Á köldum morgnum skaltu fara
út á undan og hita upp bílinn.
• Skrifaðu fallegar athugasemdir
á miða og límdu þá víðs vegar
um húsið.
• Fjarlægðu ljósaperur úr íbúð-
inni og fylltu hana af kertum.
• Eyðið klukkutíma í að prófa
nýja kossatækni