blaðið - 01.12.2005, Síða 21
blaöiö FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
l 21
99....................................................................
Það er kannski ekki síst þessi reynsla sem gerir að verkum að ég á ákaflega
erfitt með að þola orðið „íslandsvinur". Ef útlendingar opna munninn
og nefna orðið ísland eru þeir samstundis orðnir„íslandsvinir". Fyrir
mér lýsir þetta í hnotskurn einangrun og heimóttarskap íslendinga."
stórstjörnu vegna þess að Erró er
einfaldlega einhver hæverskasti
og viðmótsþýðasti maður sem
ég þekki. Þegar við hittumst þá
er það bara skemmtun. Maður
verður aldrei var við það að hann
sé þekktur eða frægur nema þegar
maður kemur á veitingahús og
allir rjúka upp til handa og fóta.“
Faðir þann var það sem kallað
er kvennamaður. Ert þú harð-
línumaður í siðferðismálum eða
umburðarlyndur?
„Ég var mjög vinstri sinnaður á
sínum tíma og vil gjarnan setja al-
vöru vinstri mennsku í flokk með
umburðarlyndi. Umburðarlyndið
gildir til dæmis um innflytjendur
og samkynhneigða. Það sama á
við um kvennamál. Ég held hins
vegar að trygglyndi skipti miklu
máli. Það að vera trygglyndur og
vera fjölþreifinn í kvennamálum
getur farið saman.“
Margir myndu einmitt segja aðþað
gceti alls ekki farið saman.
„Það getur það. Aðalmálið er að
vera hreinn og beinn við þá konu
sem um er að ræða. Þótt menn
skipti oft um konur þá getur það
verið gert á heiðarlegum grunni.“
Þú minntist á vinstrimennsku áðan.
Ertu ennþá vinstri maður?
„Okkur, sem vorum ung fyrir
þrjátíu árum, fannst vanta upp-
stokkun í pólitikina á íslandi.
Okkur fannst Alþýðubandalagið
ekki vera í fararbroddi fyrir
mörgum þjóðþrifamálum og síst af
öllu standa sig í verkalýðsmálum
þannig að í áratug reyndum við að
búa til bandalag til vinstri við Al-
þýðubandalagið. Til urðu ca. fimm
hópar sem gengu undir ýmsum
nöfnum og sumir þeirra sameinuð-
ust. Hóparnir samanstóðu af ungu
hugsjónafólki. Þegar raunveruleik-
inn elti þetta fólk uppi og það fór
að stofna fjölskyldur og þurfti að
vinna fyrir sér þá lognuðusf þessi
samtök út af. Ég held líka að ein-
strengingshátturinn og bókstafs-
trúin hafi verið of mikil.
Nú hafa stjórnmálaflokkarnir
breytt um nöfn en eru samt enn
í stórum dráttum sömu gömlu
flokkarnir. Ég er í raun og veru al-
veg jafn óánægður með þá flokka
og ég var fyrir 30 árum. Eg tel mig
jafn mikinn vinstri mann og ég
var þá. Ég hef fengið nokkur til-
boð um framboð í pólitík en hef
alltaf neitað. Ástæðan er sú að
ég yrði að velja milli þess að vera
hundrað prósent í pólitík eða gera
það sem ég er að gera. Ég lít svo á
að ef menn fara út í pólitík þá sé
það fullt starf. Ég vil ekki taka það
skref.“
Rauði þráðurinn
Öll þau gríðarlegu ferðalög sem
þú hefur farið í hljóta að víkka
sjóndeildarhringinn.
„Ferðalögin hjá mér eru af
tvennum ólíkum toga. Annars
vegar eru leiðangrar, ferðir til heim-
skautalanda, upp á háa tinda eða á
Norðurpólinn. Því fylgir sterk nátt-
úruupplifun. Maður er að takast
á við sjálfan sig og náttúruöflin.
Maður er í hættu og verður fyrir
vikið næmari fyrir sjálfum sér og
umhverfinu og lærir á náttúruna.
Maður hættir að vera hræddur
við hluti sem maður ætti að vera
hræddur við.
Hin tegundin af ferðalögum er á
framandi slóðir, í aðrar heimsálfur
þar sem maður er þátttakandi í
mannlífinu. Þá er ég kannski í fá-
tækrahverfum í Suður Ameríku, í
tjöldum með hirðingjum í Mong-
ólíu eða hitti frumbyggja í Nýja Sjá-
landi þar sem allt er á fallandi fæti.
{ þessum ferðalögum sér maður
hversu fólk er í rauninni líkt þótt
húðliturinn sé mismunandi og
maður áttar sig á því hversu tengsl
umhverfis og fólks eru ólík milli
landa. Rauði þráðurinn er samt
alltaf sá sami: Fólk er að reyna að
læra á umhverfið, það er að reyna
að skilja það og vill lifa í sátt við
það.
Öll þessi upplifun hefur þroskað
mig og gert að betri manni. Það
er kannski ekki síst þessi reynsla
sem gerir að verkum að ég á ákaf-
lega erfitt með að þola orðið „Is-
landsvinur". Ef útlendingar opna
munninn og nefna orðið Island
eru þeir samstundis orðnir „Is-
landsvinir“. Fyrir mér lýsir þetta
í hnotskurn einangrun og heimótt-
arskap Islendinga.“
Helfurðu að lífið sé tilviljun eða trú-
irðu á œðri mátt ?
„Marxisminn, sem ég lærði mjög
vandlega, kennir manni að ekkert
almætti sé til. Ég er vel lesinn í
stjörnufræði og í þeim geira skipt-
ast menn í tvö horn. Sumir segja
að grunnlögmálin ráði tilurð og
þróun alheimsins og það sé al-
mættið. Aðrir segja að náttúrlög-
mál ráði öllu. Svo kynnist maður
Indjánum í Suður-Ameríku sem
geta lesið fólk, framtíð, fortíð, sjúk-
dóma og andlegt ástand, nánast
með því að horfa á það. Þeir tala
um skóginn eins og hann sé lif-
andi vera og trúa á endurholdgun.
Þegar allt þetta kemur saman þá
er maður bara efasemdamaður og
segir sem svo: „Ég get ekki verið
viss en ég get heldur ekki afneitað“.
Ég er opinn fyrir því sem ég sé og
heyri og reyni að botna í því en ég
mundi aldrei geta sagst vera sann-
kristinn maður því mér finnst trú-
arbrögðin öll jafngild. Ég skil ekki
tilgang lífsins en ég er alveg opinn
fyrir því að einn góðan veðurdag
muni ég skilja hann. Það getur
hins vegar vel verið að það verði
ekki fyrr en eftir andlátið.“
kolbrun@vbl.is
BAÐSTOFAN
DALVEGUR 4 201 KÓPAVOGUR SÍMI 564 5700 FAX 564 5701
ÁTTU ÞETTA EKKI SKILIÐ!
Útipottar frá USA á frábæru verði
KR. 149.000