blaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 22
22 I MATUR
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaöiö
ONDVEGIS-
ELDHÚS &
Þar sem það eru eingöngu fjórar vikur til jóla, þá
finnst mér tilvalið að tileinka næstu pistla mína
jólamatnum sem allir eða flestir eru að byrja að
hugsa um. Það eru sennilega flestir með fastar
hefðir í jólamatnum en það er alltaf hægt að bæta
við sig og gera smá tilbrey tingu með meðlætið,
hafa nýjan forrétt eða eftirrétt.
I dag ætla ég að fara yfir hvernig á að gera alvöru
sósu með hamborgarhryggnum sem ég hef til dæmis
alltaf á aðfangadag. Lykillinn að góðri sósu er soðið af
kjötinu og það þarf svolítið að vanda sig þegar kjötið
er sett til suðu því þá er verið að gera grunninn af sós-
unni. Mín aðferð er að setja hrygginn í kalt vatn sem
nær rétt yfir hann, með fínt skornu grænmeti eins og
lauk, gulrótum, fennel og sellerí ásamt háifri flösku af
rauðvíni, 2 msk púðursykur, 5 stk negulnagla, nokkur
korn af hvítum pipar og ein matskeið af dijon sinn-
epi. Suðan er látin koma upp og soðið í 20 mín, siðan
er potturinn tekinn af hitanum og hryggurinn látin
kólna í soðinu þar til að hann nær stofuhita. Hann er
þó ekki látinn alveg kólna því þá þarf hann svo langan
tíma í ofni og þá byrjar hann að þorna. Hryggurinn
er tekinn upp úr og settur inni í ofn með gljáanum
sem flestir setja ofan á. Á meðan er ca. helmingur-
inn af soðinu sigtað og soðið niður um 2/3, þá ættir
þú að vera kominn með kraftmikið soð. Þá er smjör-
bolla, sem er helmingur brætt smjör og helmingur
hveiti, blandað vel saman, hrært út í soðið og hrært
vel í þannig að sósan byrji að þykkna. Lykilatriði er
að sósan fái að sjóða í lágmark 15 mínútur svo að hrá-
bragðið af hveitinu fari úr. Oft geta komið kekkir af
smjörbollu og þá ráðlegg ég öllum að eiga töfrasprota/
stafmixer. Hann er settur í sósuna og látinn ganga þar
til að sósan er orðin flauelsslétt. Á þessu stigi þarf að-
eins að smakka sósuna til með nautakraftsteningi þar
til sósan er komin með góða fyllingu. Svolítið af gljá-
anum sem er notaður ofan á hrygginn er notaður til
að gera sósuna sæta. Svo bæti ég alltaf smá rjóma og
smá lit til að gera hana girnilegri. Ég læt fylgja með
uppskrift af gljáanum sem settur er á hrygginn áður
en hann fer í ofninn.
Hamborgarhryggjar-gljái
5 msk balsamico
3 msk púðursykur
1 msk sætt sitinep
1 msk dijonsinnep
2 msk soyasósa
3 msk tómatsósa
8 msk rauðvín
Allt sett í pott og látið sjóða í ca. 10 mín við vægan
hita þar til þetta verður glansandi og þykkt.
Kveðja
Raggi
Blaiii/Steinar Hugi
WOMBATHILL
Wombat Hill er dregið af nafni hins fræga
Wombat hill Garði, sem er einn af
þjóðgörðum Ástraliu í hlíðum Wombat í
suð - austur Ástralíu. Wombat Hill eru vín
sem eru fyrir alla og ganga með öllu. Mjög
vel gerð vín. Þeim hefur verið tekið afar vel
á öllum mörkuðum. John Pezzaniti er
Vínmeistari þessara vína og þykir í dag einn
efnilegasti vínframleiðandi á þessu svæði.
Jafnvel í Ástralíu.
WOMBAT HILL. MERL
Sæt ber og plómuávöxtur er það sem
einkennir þetta vín. Kirsuber í bragði,
gerir vinið mjúkt en lifandi. Lítil eik og
löng djúp ending af súkkulaði. Þetta vín
er frábær kostur yfir hátíðirnar. Kjötrétta
vín sem er sérstaklega gott með hambor-
garahryggnum. Þar sem sætan í víninu
fær að njóta sín vel.
Verð aðeins 1190.-
Skát og góða helgi.
Kv,Vínandinn Harry.
VÍNIð SEM KALLAR EFTIR HAMBORGARHR YGGNUM
Global wine er eitt stærsta fyrirtæki Ástralíu sem höndlar með vörur til útflutnings. Þetta fyritæki er í eigu
J.M. McMahon & Co sem er stærsta matvælafyrirtæki í Ástralíu. Global wine er með mjög marga samninga
við vínframleiðendur, og er með mikið af fagmönnum sem fylgjast vel með vexti og framleiðslu fyrirtæk-
janna. í dag er Global með breiða línu af gæðavínum í öllum verðflokkum. Og alla þá flóru sem
vínheimurinn í Ástraliu hefur uppá að bjóða.
Hátíðarkaffi
Lokkandi Ijúffengan hátíðarilm leggurfrá þessari
vönduðu blöndu sérvalinna úrvalskaffibauna.
Hátíðarkaffið er í fullkomnu jafnvægi, hefur fágað
hunangsmjúkt bragð, mikla fyllingu og eftirkeim
af ávöxtum og berjum.
Kaffiáhugafólk ætti ekki að láta þetta kaffi fram
hjá sér fara. Kaffið er í frábæru jafnvægi, með
meðal fyllingu og einstöku eftirbragði. Njótið vel!
Kaffihús: Verslanir:
Laugavegi 24 Kringlunni
Smáralind Smáralind
Laugavegi 27
Suðurveri
0“
'IT. & KAFFI