blaðið - 01.12.2005, Qupperneq 27
blaöið FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
VÍSINDI I 27
Hátiðnihljóð fœlir unglinga
Tœki sem kemur í vegfyrir að unglingar hangifyrir utan verslanir
Þróað hefur verið tæki sem gefur
frá sér hátíðnihljóð og er ætlað að
koma í veg fyrir að ungmenni hóp-
ist saman fyrir utan verslanir og
annarsstaðar þar sem þeir hanga og
eru með óspektir
Þessi hugmynd kom frá Howard
Stapleton þegar hann heimsótti
föður sinn í verksmiðju sem barn
og kvartaði undan hávaða sem þar
var. Howard áttaði sig á því að hann
var sá eini sem heyrði hátíðnihljóð í
verksmiðjunni. Núna hefur Howard
ákveðið að nota þessa uppgötvun til
þess að framleiða tæki sem kemur í
veg fyrir að börn og unglingar hangi
fyrir utan verslanir og séu til vand-
ræða. Howard kallar tækið moskít-
ófluguna (the Mosquito). Tækið gefur
frá sér hátíðnihljóð sem flest tvítug
ungmenni heyra en fæstir sem eru
orðnir þrítugir. Tækið er hannað til
að pirra ungt fólk sem hangir fyrir
utan verslanir. Hingað til hefur það
verið prófað í einni matvöruverslun
í Suður Wales. Unglingar voru vanir
að hópast fyrir framan verslunina
reykja, drekka, slást og kalla ókvæð-
isorð að viðskiptavinum. Búðareig-
andinn fékk frítt eintak af moskít-
óflugunni til reynslu og áhrifin létu
ekki á sér standa. Unglingar sem
áður höfðu safnast saman við versl-
unina hurfu á svipstundu. í byrjun
héldu unglingarnir áfram að hópast
Landslagskort sýnir hugsanlega
staðsetningu vatnsbóls á Mars.
*
Is á Mars
Mars Express geimfarið fann
í gær vatnsból undir yfirborði
Mars. Geimfarið er á vegum evr-
ópsku geimferðastofnunarinnar,
ESA, og er það fyrsta til að
staðfesta að vatn sé til á rauðu
plánetunni. Vatnið er reyndar
ekki í fljótandi formi heldur er
um að ræða ísklump um tvo
kílómetra undir yfirborði plán-
etunnar. Nú telja vísindamenn
að finna megi stórt vatnsból
annars staðar á Mars og gera
sér vonir um að e.t.v. geti
örverur þrifist þar. Undir norð-
urpól Mars er búist við að finna
þykkt lag af ís og eru vísinda-
menn jafnvel bjartsýnir á að
hann sé að mestu leyti hreinn.
Rækta mat í
geimnum
Eftir nokkra áratugi munu
geimfarar á leið til Mars rækta
sitt eigið grænmeti á 130
milljón kílómetra ferðalagi
sínu. Þeir munu því ekki þurfa
að treysta á þurrmeti sem
einungis þarf vatn og hita til að
verða ætt. I ferðalögunum, sem
verða sex til átta mánuða löng,
munu geimfararnir rækta salat,
spínat, gulrætur, tómata, lauk,
radísur, papriku, jarðaber og
kryddjurtir um borð í geimfór-
unum,svo eitthvað sé nefnt. Við
komuna til rauðu plánetunnar
munu kartöflur, sojabaunir,
hveiti, hrísgrjón og fleira bætast
við samkvæmt matvælafræð-
ingi NASA.„Við verðum að
rækta grænmeti þarna þar sem
engin leið er að koma ferskum
vörum alla leiðina", segir Mich-
ele Perchonok sérffæðingur.
saman en komu ítrekað inn í versl-
unina og héldu fyrir eyrun og báðu
verslunareigandann um að taka há-
tíðnihljóðið f burtu.
Þessi tilraun sannar notagildi
moskítóflugunnar. Ein 15 ára stúlka
sem beðin var að lýsa hljóðinu
sagði það mjög óþægilegt og færi í
gegnum hana.
Hljóðið sem moskítóflugan gefur
frá sér er 75 desibil og á ekki að
valda heyrnarskaða. Howard sagð-
ist ekki hafa hugsað sér að skaða
ungmennin aðeins að valda þeim
óþægindum.
Andrew King prófosssor í taugalíf-
eðlisfræði segir að hæfileikinn til að
heyra hátfðnihljóð minnki með aldr-
inum sem sé ástæða þess að moskít-
óflugan virki svona vel.
Of snemmt er að segja til um fram-
tíð tækisins en síðan sagt var frá
því í tímariti hefur Howard fengið
fjölda tilboða frá áhugasömum
kaupendum.
Howard hefur hugsað sér að þróa
nýtt tæki með hærra tíðnihjóði sem
hægt væri að kveikja á ef unglingar
létu greipar sópa í verslunum og
gerði það að verkum að þeir hyrfu af
vettvangi.
Lausn fundin á hangsi unglinga fyrir utan verslanir
BlaÖiÖ/ingó
Hádeli§ver5ar *
* ^ hlaðborð
/§' með jólalegu ívafí
y/ Hanáílijöt / Pizzur
/ Purusteik / Súpup
/ Jólasíld / Bpúnaðap kaptöflup
/ Gpaflax Gpaenap kaunip
/ Reyktup la\ / Uppstúfup
/ Lambasteik / O.fl. o.fl.
Hlaðborðið er alla virka daga
frá 11:30 - 13:30
m©CAMElR(D
RESTAURANT
SUÐURLANDSBRAUT 12// sími:
535 1400