blaðið - 01.12.2005, Síða 28
28 I MATUR
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaðiö
Svuntur sveipaðar
Ijóma fortíðar
Svuntur eru nauösynlegar á hverju heimili enda getur það reynst sóöalegt verk
*áö koma kræsingum á disk. Á mörgum heimilum er aö finna gamlar og þreyttar,
fyrirtækjamerktar svuntur en nú er aö renna upp nýtt svuntuskeið og þá dugar
ekkert slíkt lengur.
Frá þjóðbúningi....
Svuntur hafa lengi verið mikil-
vægur útbúnaður eða hlífðar-
flík en á nítjándu öldinni og ft;
fyrr voru konur nánast ekki 'h>
klæddar fyrr en svuntan var ; 4
komin á. Svuntan er enda
mikilvægur hluti íslenska
þjóðbúningsins þó hún sé
einkum ætluð til að lífga
upp á búninginn sem er
fremur dökkleitur án
hennar. Áður skipti
efnisval í skyrtum,
slaufum og svuntum
miklu þegar sauma
átti ný peysuföt eða
upphlut. Á fjórða
og fimmta ára-
tug síðustu
aldar urðu
svuntur svo
eitt helsta
vörumerki kon-
- unnar. Kven-
ímyndir þessa
tíma voru sérlega
lekkerar, velt-
ilhafðar og
lagðar með
uppsett hár
og pilsaþyt.
Svuntur þessa
tíma voru jafnan sérlega kven-
legar með pífum, blúndum og
jafnvel útsaumi og löngum
og breiðum böndum sem
mynduðu glæsilegar slaufur
í mittisstað. Svuntur sem
þessar njóta nú vinsælda í
Bandaríkjunum þar sem
hönnuðir eins og Anna
Wang leggja metnað sinn
í svuntuhönnun.
mfwm
i
...til gallabuxna
Nýju svunturnar eru
ákaflega líkar þeim sem
ömmur ungra
stúlkna í dag
sveipuðu um
sig miðjar til
að verja kjóla
og pils fyrir
óhreinindum eld
hússtarfans.
Sá grunur
hlýtur þó
ósjálfrátt
að vakna,
þegar svuntur þessa
tíma, eru skoðaðar
að hlutverk svuntunnar
hafi ekki einungis verið
að hlífa kjólum. Það er
eitthvað ómótstæðilegt
við svuntur sem sveipar
konuna dulúð og hlýju i
senn. Eitthvað óútskýr-
anlegt sem seiðar og laðar.
Það er því líklega ekki að
ástæðulausu sem svuntu-
sala hefur rokið upp í
Bandaríkjunum en það
eru einmitt verslanir eins
og Anthropologie sem
gera það hvað best og
svunturnar þar líkjast
mikið þeim sem gerðu
sitt besta á fyrri hluta
síðustu aldar. Hinar ungu
framakonur nútímans hafa
kannski ekki sömu tæki-
færi til að setja upp svuntur
og formæðurnar en það má
þó vel skella einni á þegar
heimsendu pizzurnar eða
núðlurnar eru færðar upp
á diskinn. Það borgar sig
ekki að sulla tómatsósu á
dragtina eða gallabuxurnar og fal-
leg svunta gerir hvaða klæðnað sem
er enn klæðilegri.
Hægt er að finna fallegt svuntuúr-
val á eftirfarandi síðum:
www.anthropologie.com
www.utilitycanvas.com;
www.crateandbarrel.com
Krydd
kökur
3 bollar hveiti
1 teskeið matarsódi
1 teskeið kanill
'h teskeið negull
'h tekseið múskat
129gr.Smjör
2 bollar púðursykur
2 egg
1 teskeið vanilludropar
2/3 bolli sýrður rjómi
Hitið ofnin í 175°C. Sigtið saman
hveiti, matarsóda, kanil, negul
og múskat. Hrærið saman
smjör og sykur þar til það er
létt eða ljóst. Bætið eggjunum
í, einu í senn, og hrærið vel á
milli. Bætið vanilludropunum
út í. Blandið hveitiblöndunni
í til skiptis við sýrðan rjóma.
Setjið með teskeið á plötu
klædda bökunarpappír. Hafið
kökurnar ekki of stórar. Bakið
ofarlega í ofninum í 10-12 mín-
útur. Geymið vel í lokuðu íláti í
kæli eða frysti. Úr þessu koma
um það bil 120 stykki.
Bœklingur um jólasmákökur
frá Osta- ogsmjörsölunni.
Moselland Riesling
mí'.'a^í
Þýski gæðaframleiðandinn Moselland, sem heillað
hefur landsmenn undanfarin misseri með hreint út sagt
frábærum vínum og stórglæsilegu útliti, kynnir nýtt
útlit á kassavínum. Þau hafa notið jafnmikillar ánægju
og Moselland Riesling Ars Vitis, sem nú er fáanlegt í
jólabúningi.
Bæði þessi vín fást í flestum Vínbúðunum.
Moselland Riesling Ars Vitis kr. 1.190
Moselland 3L kassavín kr. 2.690
.... i
■_ , :
ókey Oli fl| heimila og fyrirl alla virka daga pistil ækja
<ftSS&r
Stálpottasett á góðu verði
Brúðhjónalistar og gjafakort
búsáhöld
KRINGLUNNI
5 í m i : ; 568 6440 1 busahold@busahold. isj
FRÁBÆRT HÁDEGISTILBOÐ
milli kl 11.30- 14.00
Blanda af 2 réttum úr hitaborði. Frítt gos úr vél
890 kr >i
Asian Express
Smáralind Kópavogi • Strandgata Hafnfirdi
M osei.land,c
RIESLING
kabinett
QUAIITATSWIIN MIT
• ‘wéiíMv