blaðið - 01.12.2005, Side 30
* 30 I HÖNMUN
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaðiö
Dýraskinn vinsœlt í
íslenskum íatnaði
Hverfltk er einstakt listform
Hönnun úr dýraskinnum er sífellt
að verða vinsælli. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
.aálaráðherra skartaði kjól úr
hreindýraskinni á Edduverðlauna-
hátíðinni og Elva Ósk Ólafsdóttir
leikkona var í kjól úr steinbíts- og
laxaroði á Emmýverðlaunahá-
tíðinni í síðasta mánuði. Þá er
selskinnsjakki Halldórs Ásgríms-
sonar frægur.
„Elvu langaði að vera í einhverju
séríslensku á Emmýverðlaunahá-
tíðinni og mér fannst laxaroðið
fallegt efni og ákvað að nota það
ásamt steinbítsroði og silkisiffoni“,
segir Þórunn María Jónsdóttir fata-
og búningahönnuður. María segir
skinn ekki nýtast í hvaða hönnun
sem er en fannst efnin koma vel út
í kjólnum. María hefur hannað bún-
inga fyrir Þjóðleikhúsið og hannaði
m.a. fyrir leikritið Öxin og jörðin.
Þar notaði hún selskinn og roð í
búningana.
„Það var ekki mikið unnið úr
skinnum fyrir 15 árum og þetta
var viðkvæmt umræðuefni vegna
umhverfisverndarsjónarmiða. Nú
Búningar úr laxaroði og hrásilki eftir Þórunni Maríu. Mynd úr leikritinu Öxin og jörðin;
myndataka Grímur Bjarnason
hefur fólk hinsvegar farið að hugsa
um þetta útfrá nýtingu dýrsins og
fyrst sjálft dýrið er nýtt, því ekki að
nota skinnin líka. Það hafa komið
tímabil þar sem gerviefni hafa verið
í tísku en nú virðist þróunin vera í
átt að náttúrulegum efnum“, segir
Elva.
Signý Ormarsdóttir fatahönnuður
hefur hannað heimilislínu úr lambs-
og nautsleðri ásamt því að nota
laxaroð, lambaskinn, kálfaskinn,
úlfaskinn, refaskinn, kanínuskinn
og hreindýraskinn í hönnun sinni.
Signý býr ekki til hefðbundin snið
af fljkinni heldur ber hana við lík-
amann og vinnur þannig hverja flík
sem einstakt listform. Signý hefur
m.a. notað hreindýrshúðir með skot-
götum og fláningsgötum eftir hnífa
veiðimanna.
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
, _ 'SílóUHtviÁaAwiltttt
Hönnun krefst
sköpunar og
frumleika
Sérhannaðir hlutir persónulegri en
fjöldaframleiddir
„í vöruhönnun lærum við að hanna
nytjahluti af öllum stærðum og
gerðum", segir Ólöf María Ólafs-
dóttir (Marý) nemandi í vöru-
hönnun við Listaháskóla íslands.
„Ég hef t.d. hannað ljós, klukkur og
hirslur. í náminu er ætlast til að
við förum eins langt og við getum
með hluti og hugsum sem mest um
óvenjulegar útfærslur á hlutunum.
Þetta nám reynir mjög á hugmynda-
flugið og það er mikilvægt að vera
opinn fyrir nýjum hugmyndum. í
náminu lærum við að vinna eftir
hugmyndum okkar og byrjum á því
að þjáifa okkur í að opna hugann og
sleppa hugmyndafluginu lausu til
að fá betri hugmyndir. Upphaflega
ætlaði ég í grafíska hönnun en skipti
yfir þar sem mér þótti vöruhönnun
meira spennandi", segir Marý. Hún
segir meiri möguleikar fyrir hönn-
uði erlendis en hönnun sé þó að fær-
ast í vöxt hér heima. Marý segir Epal
og fleiri fyrirtæki taki inn hönnun
eftir unga og efnilega nemendur
og nefnir sem dæmi klakamót eftir
nemanda úr deildinni sem er til
sölu í Epal.
En af hverju œtti fólk að kaupa
hönnunfrekar en ódýrarifjöldafram-
leidda vöru?
„Það eru meiri gæði í hönnun en
fjöldaframleiðslu og efnisval í hönn-
uninni er vandaðra. Sérhannaðir
hlutir verða líka mun persónulegri
þar sem hver hlutur er yfirleitt ekki
framleiddur í miklu upplagi. Það er
mikil tilfinning lögð í hvern hlut
fyrir sig sem skilar sér í vörunni",
segir Marý. Hún tekur sem dæmi
ljósaverk sem hún hannaði sjálf og
er unnið út frá rómantík og lagði
hún mikla tilfinningu og metnað í
verkið.
Núna eru níu nemendur í Vöru-
hönnunardeild Listaháskólans sem
valin er úr mun stærri hóp umsækj-
enda. „Myndlistaskóli Reykjavíkur
og hönnunarbrautir Iðnskólanna í
Reykjavík og Hafnarfirði er góður
grunnur fyrir vöruhönnun en ég var
á hönnunarbraut í Iðnskólanum í
Reykjavík sem nýttist mér vel. Lista-
háskólinn metur nemendur inn í
skólann út frá hugmyndum sem þeir
senda inn og þeirri grunnkunnáttu
sem þeir hafa. Sumir fara í frekara
nám erlendis en það er ekki skilyrði
til að geta unnið við hönnun", segir
Marý.
hugrun@vbl.is
r f
Brautir- Glerveggir-
Glerhurðir - Hert Gler
mu
og gler
karvogsmei
www,
- Skútuvogur 1h
58 58 900
IS
Hawa
FALLEGIR HITAMÆLAR
28 cm Kr. 2790. • 33 cm Kr. 3180. • 44 cm Kr. 4980.
L.j(ilildo
Cjaíileo
(jalueo
C/ahL'o
falileo
ETI á íslandi Eiðistorgi 17,2 hæð*Sími 551 4220
Hirsla fyrir
sokka og sokka-
buxur eftir
Marý
4 r.
**■
. ^ i- ”*
i i *! ! nr
Rignandi, Ijósaverk eftir Marý