blaðið - 01.12.2005, Side 34
- 34 I MENNING
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaðiö
Laxness, lokabindi œvisögu Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, kemur í verslanir á nœstu
dögum. Þar er aðfinna margar skemmtilegar sögur og brot afþeim birtist hér með góðfúslegu leyfi höfundar.
Skemmtisögur af Laxness
Á kaffihúsi í París 1952
Thor Vilhjálmsson dvaldist enn
í París. Þeir Laxness hittust eitt
1 kvöldið ásamt fleiri íslendingum
á Döme á Montparnasse, rétt hjá
Coupole. Birgir Kjaran, sem rakst
á Thor og aðra Islendinga skömmu
seinna á Select og fékk þá að heyra
frásögn um kvöldið með skáldinu,
skrifaði háðslega: „Þetta hafði
orðið stórkostlegt
samtal, sfinxin talað
í stuttum, óræðum
setningum, skegg-
arnir bara hlustað,
aldrei þessu vant,
því að þeir eru ann-
ars vanir að rífast.“
Þegar bjórkoll-
unum fjölgaði
þetta kvöld, varð
Thor og félögum
hans þó smám
saman liðugra
um málbein.
Óspart var
gert gys að
fákænum ís-
lendingum
e r 1 e n d i s .
Laxness sagði
frá landa, sem hann hefði ný-
lega hitt. Sá hefði verið nýkominn
frá Róm. Hann hefði spurt, hvort
hann hefði ekki séð þar margt fal-
legt. „Jú, voða margt fallegt." Þá
spurði skáldið: „Hvað kúlturmonú-
ment sáuð þér fegurst í Róma?“ ís-
lendingurinn svaraði: „Colosseum."
Skáldið sagði: „Já, einmitt, sko, so
að Colosseum appeleraði til yðar?“
Islendingurinn svaraði: „Já, en það
hefur bara skemmst svo mikið í
stríðinu!" Einn gesturinn sagði frá
íslendingi, sem hefði tekið með sér
fjölda ferðabæklinga út á stræti Par-
ísar, en sífellt rekist á fólk, á meðan
hann var að rýna í þá, misst þá niður
hvað eftir annað og loks orðið að
leggjast á fjóra fætur til að tína þá
upp. Þessi íslendingur hefði sífellt
spurt, hvar hann gæti séð frægt fólk.
Þá bentu gárungarnir honum á tvo
tötrakarla: Þetta væru þeir Picasso
og Matisse í morgungöngu. Annar
gestur á Döme þetta kvöld með Lax-
ness sagði frá Islendingi, sem hefði
verið við skál. Lögregluþjónn hefði
vikið sér að honum og sagt: „Þér
eruð drukkinn.“ Landanum hefði
ekki orðið svarafátt, heldur gegnt
kveðjunni: „Já, og þér öfundið mig.“
„Ég skal liggja á flautunni á meðan!"
Sum tilsvör Lax-
ness lifðu á
vörum þjóð-
ge arinnar. Eitt
^ sinn ók hann
á hinum nýja
og glæsilega
Lincoln sínum
í Reykjavík.
Hann kunni
miðlungi vel á
bílinn og drap
á honum við um-
ferðarljós. Þegar
grænt ljós kom,
sat hann því fastur.
Bílstjórinn í næsta
bíl þeytti þá flautu
sína af miklum móð.
Eftir nokkra stund
steig Laxness út úr
sínum, gekk að næsta
bíl og sagði kurteislega: „Getið þér
nokkuð startað bílnum fyrir mig,
ha? Ég skal liggja á flautunni á
meðan.“ I annað sinn var Laxness á
leið upp á Gljúfrastein. Vörubíll var
á sömu leið, og tók bílstjórinn ekki
eftir Laxness, sem ók út í skurð til
að afstýra árekstri. Þá nam bílstjór-
inn staðar, steig út og hraðaði sér til
Laxness, sem spurði vingjarnlega:
„Er það eitthvað fleira sem ég get
gert fyrir yður?“
Stórt og myndarlegt tré!
Nokkrir sænskir sértrúarmenn
heimsóttu Laxness einhverju sinni
upp á Gljúfrastein. Varð þeim skraf-
drjúgt við skáldið. Þegar hann
fylgdi þeim út, hafði einn þeirra
orð á því, að nýlega hefði verið gróð-
ursett birkiplanta við húsið. „Já, ein-
b í 1
með |>inni myncJ og þinni álelrun
á jólaverði - stuttur aígreiðslutími
Syarið tíma
Syaríðyenínga
Syaríó yennann
og veríðyersónuíeg
Einnig er hægt að setja |)fna
handskrift inn f kortíð.
Skoðaðu úrvalið, pantaðu
á veísííki okkar og málið ec leyst.
wwwdéstatuts
^ign. u
HUðoynóío 11*201 Kópovogut
Slmi 414 8070 • www.design.ls
5§tf§É|
99.........................................
Laxness fórþá að tala við hann á frönsku, en
fann fljótlega, að gesturinn kunni lítið í málinu.
Hann sagði þá vingjarnlega: „Nei, þér getið
ekki verið Paul Gauguin endurborinn. Þér
hljótið að vera einhver annar endurborinn."
mitt, jahá,“ sagði Laxness. „Og ég
vona sannarlega að hún verði orðin
að stóru og myndarlegu tréi þegar
þið komið hingað næst.“ Sneru gár-
ungarnir í Reykjavíkþessu ranglega
upp á Thor Vilhjálmsson, sem gerði
sér jafnan títt um Laxness.
Má bara ekki vera hol að innan!
Á sjötta áratug bjó Guðmundur Þor-
kelsson, fasteignasali í Reykjavík, á
nýbýlinu Lundi í Mosfellsdal. Hann
var kvæntur Gyðu Briem, systur
þeirra Ingibjargar og Ásthildar,
sem Laxness hafði þekkt ungur.
Guðmundur fékk þá köllun að end-
urreisa Mosfellskirkju og gekk milli
manna að safna fé í þessu skyni.
Meðal annars knúði hann dyra á
Gljúfrasteini. Honum var tekið hið
besta, og kvaðst skáldið reiðubúið
að láta af hendi verulegt fé til þessa
þarfa verkefnis. Mikill menningar-
auki væri að því að reisa fallegar
kirkjur i sveitum landsins. Guð-
mundur var hinn ánægðasti með
þessar góðu undirtektir. Þegar Lax-
ness fylgdi honum til dyra, sagði
hann, að framlagi sínu fylgdi að-
eins eitt lítið skiiyrði. „Þessi kirkja
má bara ekki vera hol að innan, ha.“
Ekki varð af framkvæmdum við
kirkjusmíðina að sinni, en eftir að
Stefán Þorláksson lést vorið 1959 og
fé fékkst úr dánarbúi hans, var haf-
ist handa. Kirkjan var vígð sunnu-
daginn 4. apríl 1965. Laxness sást þá
bregða fyrir í kirkjudyrunum, þótt
ekki sæti hann messuna. Hann var
eflaust að gá að því, hvort kirkjan
væri hol að innan.
Enginn spítali hér!
Eitt sinn komu nokkrir drukknir
sjómenn við á Gljúfrasteini á leið
til Þingvalla. Húsráðandi opnaði og
sá óðar, hvað var á ferðinni. Hann
sagði kurteislega: „Ja, því miður,
þetta er nú einginn spítali hér. En
þið eruð velkomnir aftur þegar
ykkur batnar.“ Síðan lokaði hann.
Ekki Paul Gauguin endurborinn!
Laxness tók óvæntum gestum þó
vel, þegar sá gállinn var á honum.
Einn vetrardag skömmu eftir út-
komu greinasafnsins Seiseijú, mikil
ósköp, í fjórtán stiga frosti, var
barið að dyrum á Gljúfrasteini. Þar
úti stóðu tveir ungir menn. Annar
þeirra var Pálmi Örn Guðmundsson,
sem var aðdáandi Laxness, bróðir
Skopteikning af Laxness aö gægjast und-
an pilsfaldi Guðrúnar frá Lundi. Laxness
seldist ekki eins vel og Guörún frá Lundi,
sem var vinsælasti rithöfundur landsins á
sjötta og sjöunda áratug 20. aldar.
skáldsins Einars Más og fékkst
sjálfur við ljóðagerð, en átti við geð-
rænar truflanir að etja. Hann taldi
sig stundum vera listmálarann Paul
Gauguin endurborinn og kallaði sig
iðulega Paul Cocaine. Þeim Pálma
var boðið til stofu. Pálmi sagði Lax-
ness frá því, að hann væri Gauguin
endurborinn, og mælti nokkur orð,
sem hann kunni í frönsku. Laxness
fór þá að tala við hann á frönsku,
en fann fljótlega, að gesturinn
kunni lítið í málinu. Hann sagði þá
vingjarnlega: „Nei, þér getið ekki
verið Paul Gauguin endurborinn.
Þér hljótið að vera einhver annar
endurborinn."
Uppáhaldsmyndin þín!
Þaö hefur aldrei verlö auöveldara að gera persónuleg jólakort
Kíktu á: www.ljosmyndavorur.is þar eru sýnishorn af bæöi einföldum og tvöföldum
jólakortum, sem hægt er að panta á netinu (líka hægt að panta á staðnum).
Hægt að senda mynd í tölvupósti, koma með minniskort úr myndavél, með CD disk,
jafnvel úr Bluetooth síma!
Verð fyrir jólakort og umslag á bilinu 90-130 kr.
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450
LJÓSMYNDAVORUR
FUJIFILM
vorur.is
—*