blaðið - 01.12.2005, Side 45
blaðið FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005
Stutt spjall: Sindri Sindrason
Sindri Sindrason er i fréttamaður á NFS fréttastöðinní
Hvernig hefurðu það í dag?
„Éghefþaðmjögfínt".
Hvenaer byrjaðirðu fyrst að vinna í
fjölmiðlum?
„Eg hef unnið í fjölmiðlum í tvö og hálft ár
en ég var I tvö ár að vinna á Viðskiptablað-
inu áður en ég byrjaði á 365".
Langaði þig að verða sjónvarpsmaður
þegar þú varst lítill?
„Já ég hafði alltaf áhuga á að vinna í
fjölmiðlum".
Hvernig finnst þér að vinna í
sjónvarpi?
„Ég kann mjög vel við mig, þetta
er mjög lifandi og skemmti-
legt starf".
Hverfinnstþéraðal
munurinn vera á blaði
og sjónvarpi
„Aðal munurinn er
hraðinn".
Er vinnan í sjónvarpi
öðruvísi en þú hefð-
ir búist við?
„Ég vissi að það væri
hraði í starfinu en hann
er meiri en ég hafði
búist við".
Horfirðu á þaettina sem þú hefur verið
i?
„Nei ég geri það aldrei".
Geturðu lýst dæmigerðum degi hjá
þér?
„Ef ég er ekki á vakt þá reyni ég að fara út
að hlaupa annars geri ég lítið annað en
að fara í vinnuna og svo heim. Þess vegna
reyni ég að nýta helgarnar vel ef ég er
ekki á vakt og fer kannski út á land eða
hitti vinina".
Hvert er uppáhalds sjónvarps-
efnið þitt?
„Ég horfi litið á sjónvarp af því að
vinnutími minn er á sjónvarpstíma.
Mér fannst 60 mínútur alltaf
mjög góðir þættir".
Hiustarðu á útvarp?
„Já ég hlusta aðallega á
Bylgjuna og Létt 967".
Hvaða spurningu
■ myndirðu velja sem
síðustu spurning-
■
V „Efég væri að spyrja
eldri manneskju þá
^ myndi ég spyrja hver
væri eftirminnilegasta
stundin í lífi hans/hennar?"
„En ég er of ungur til að svara
þessari spurningu".
Breytingar á Rás 2
Dagskrá Rásar 2 tekur á sig nýja
mynd á afmælisdegi rásarinnar
sem er í dag. Þá tekur Sigrún Stef-
ánsdóttir við störfum sem dagskrár-
stjóri Rásar 2 og sem forstöðumaður
svæðisstöðva.
Fyrir hádegi verða þættirnir
Morgunútvarpið og Brot úr degi
á dagskrá. Morgunútvarpið með
Magnúsi R. Einarssyni hefst nú
klukkan hálfsjö. Það verður tónlist-
arútvarp með ýmsum hagnýtum
upplýsingum. Brot úr degi leng-
ist og hefst klukkan níu í stað tíu.
Hrafnhildur Halldórsdóttir verður
áfram við stjórnvölinn, spjallar við
hlustendur, tekur á móti gestum,
leikur tónlist og bregður á leik.
Eftir hádegi eru þættirnir
Poppland og Síðdegisútvarpið á
dagskrá. Poppland hefst strax að
loknu hádegisútvarpi og stendur til
klukkan fjögur. Guðni Már Henn-
ingsson og Olafur Páll Gunnarsson
verða áfram umsjónarmenn ásamt
nýjum liðsmanni, Ágústi Bogasyni.
Nýr þáttur á vegum Fréttastofu út-
varpsins, Síðdegisútvarpið, kemur
í stað Dægurmálaútvarpsins. Þar
verða fréttirnar, þjóðmálin og fólkið
í landinu í brennidepli.
Umsjónarmenn eru Áslaug Skúla-
dóttir ritstjóri, Freyr Eyjólfsson og
Linda Blöndal.
Á kvöldin er hugað að unga fólk-
inu og tónlistinni. Ungmennafélagið
og Konsert er á dagskrá virka daga.
Ungmenna-
félagið undir
stjórn Ragn-
heiðar Eiríks-
dóttur.Heiðu,
er á dagskrá
mánudaga
til fimmtu-
daga milli
hálfátta og
hálfníu. Að
Ungmenna-
félaginu loknu kynnir Andrea Jóns-
dóttir tónleika frá útvarpsstöðvum í
Evrópu og upptökur Rásar 2 á nýrri
íslenskri tónlist í þættinum Kons-
erti. Þátturinn lengist um þrjátíu
mínútur, hefst klukkan hálfníu og
er á dagskrá fram að kvöldfréttum
klukkan 22.00.
Umsjónarmenn Helgarútgáf-
unnar á laugardögum eru Guðrún
Gunnarsdóttir og Björn Jörundur
Friðbjörnsson en á sunnudögum
eru það Margrét Blöndal og Sigmar
Guðmundsson. I stað laugardags-
þáttar Gests Einars Jónassonar sér
Freyr Eyjólfsson um þáttinn Geymt
en ekki gleymt.
I Næturútvarpi sem er sent út á
samtengdum rásum verða nokkrar
breytingar. Þættirnir Spegillinn,
verður á dagskrá klukkan 00.30,
brot úr Síðdegisútvarpinu klukkan
01.10, Samfélagið í nærmynd
klukkan 03.00 og tónlistarþættir af
Rás 1 klukkan 05.05.
L
Sigrún Stefánsdóttir, nýr
dagskrástjóri Rásar 2
Fjölskyldugjöfin í ár
Hágæða 8,5” DVD spilari í bílinn
Fjöldi aukahluta fáanlegir
M.H.M. ehf. ■ Auðbrekka 24 • 200 Kópavoqur
Sendum í póstkröfu
um land allt
5 v iifiE
*.'• ''' *- ":'t
Við opnum
fyrir nyium hugmyndum!
Komdu til okkar í nýjan og glæsilegan sýningarsal
og sjáðu fjölbreytileikann í hönnun innréttinga fyrir heimilið.
■ Einfalt ferli • Þjónusta
• Hönnun • Ráðgjöf
rHANÁK
b/um
Síðumúla 35 ■ 108 Reykjavík • Sími 517 0200
heild@heild.is • www.heild.is
-allt fyrir heimilið é einum stað!
handan við homið (050119]