blaðið - 01.12.2005, Qupperneq 46
461 FÓLK
FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 blaöiö
HpnnHH
-b
OH
pHHKAIHIH
SÖGUR
SIGURVEGARA
Smáborgaranum hefur ekki liðið sem best
undanfarið. Fjölmiðlar hafa áhrif á hann
eins og aðra landsmenn. Ástæða vanlíð-
unar Smáborgarans er illska heimsins og
stundum er Smáborgarinn sannfærður
um að við stefnum í glötun. Það hefur
svo margt komið upp á yfirborðið nýlega
sem hræðir Smáborgarann, eins og svefn-
nauðgarinn, barnaperrinn, Thelmumálið
og annað. Smáborgarinn skilur þetta
ekki og finnst þetta sárt. Hann vorkenn-
iröllu þessu fólki enda virðast sumir láta
sér fátt fyrir brjósti brenna til að ná til
kvenna og barna til að framkvæma sínar
Illu gjörðir. Hvernig endar þetta? Viljum
við virkilega lifa í svona samfélagi? Þrátt
fyrir að Smáborgaranum finnist að það
sé hollt að heyra af öllu þessu slæma
sem gerist í heiminum þá er hann líka
viðkvæm sál. Þrátt fyrir það sækir Smá-
borgarinn í sögur og frásagnir af slæmu
í heiminum því honum finnst sem það
geri hann að betri manni. Smáborgarinn
telur að það sé nauðsynlegt að vita af
vondum hlutum, því það er eina leiðin
til að breyta þeim. Það er ekki hægt að
breyta því sem maður veit ekki af. En vit-
anlega getur þetta verið erfitt stundum
og sumar lýsingar hverfa aldrei úr huga
Smáborgarans. Þar ber helst að nefna
myndina Lilja4Ever, bókin Hann var kall-
aður þetta, Searching for Angela Shelton
og svo mætti lengi telja. Smáborgarinn
stefnir á að lesa bókina um Thelmu um
leið og hann kvíðir fyrir enn einum sann-
leikanum sem bætist (grimmd heimsins.
Þessar sögur, hjúpaðar kjarki sigurveg-
ara, valda ekki einungis brestum í hjarta
Smáborgarans heldur renna jafnan tár
niður hvarma hans. Smáborgarinn held-
ur reyndar hörðu yfirbragði og grætur
einungis þegar aðrir sjá ekki til. En þá
grætur hann líka allrosalega, yfir öllu,
allt frá fréttum til teiknimynda. Þegar
Smáborgarinn horfir á sorglegar myndir í
annað eða þriðja sinn þá grætur hann alla
myndina, einungis vegna þess að hann
veit hvað mun gerast. En vonandi munu
allar þessar slæmu fréttir um grimmd
aumingja valda einhverjum breytingum
þannig að hjarta Smáborgarans geti gró-
ið. Maður geturekki annað en vonað.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Páll Magnússon, útvarpsstjóri.
Hvað finnst þér um fyrirspurn
Magnúsar Þórs Hafsteinssonar?
Ég veit nú ekki hvaða erindi þetta á inn á þing. Er ekki réttara að hann beini
bara fyrirspurninni til Ríkisútvarpsins? Mér finnst það eðlilegra. Menntamála-
ráðherra hefur ekki mikið með það að gera hvort að Auðlindin er, eða er ekki á
dagskrá. Menn hafa nú frekar verið að gagnrýna það að stjórnmálamenn hafi af-
skipti af þessari stofnun, en svo er verið að argast í menntamálaráðherra hvort að
einhver þáttur sé á dagskrá eða ekki. Ef hann beinir þessu til mín skal ég athuga
málið og svara honum, en ég sé ekki ástæðu til þess að þetta fari inn á borð hjá
ráðherra."
Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins lagði fram fyrirspurn þess efnis hvort Ríkisútvarpið ætli að hefja á ný
útsendingar á Auðlindinni. frétaþætti um sjávarútvegsmál.
Ráðist á Antony Cotton
Stjarnan Antony Cotton úr þáttunum Corrie varð fyrir barðinu á fordómafullu gengi.
Hann leikur samkynhneigðan veitingamann á bar og var staddur fyrir utan upptöku-
ver í Manchester þar sem hann var umkringdur af átta unglingum og þurfti að kalla á
öryggisverði sér til hjálpar. Árásarmennirnir hópuðust í kringum hann og var Antony
sagður hafa verið mjög skelkaður yfir árásinni.
Ráð Clooney
duga skammt
Leikarinn George Clooney hefur ráðlagt Brad Pitt að ráða fólk í að herma
eftir honum og Angelu til að villa um fyrir fjölmiðlum þegar brúðkaup
þeirra verður. „Ég hringdi í Brad og sagði honum að við ættum að leka út
sögu, klæða fólk upp, senda þyrlur af stað og eyða fullt af peningum í mál-
ið“ sagði Clooney. Planið var gott en hann klúðraði því gjörsamlega með
því að blaðra því í fjölmiðla. Það er þvi víst að erlendir fjölmiðlar verða
vel á verði af fréttum af brúðkaupi Brad Pitt og Angelu og fyrir leikurum
sem vilja villa um fyrir því.
Er Kate búin
að sparka Pete?
Það hefur verið tilkynnt að meðferð Pete Doherty hafi ekki enst lengi en hann
hefur gefist upp eftir aðeins rúma viku. Slúðurblöðin hafa tilkynnt að sambandi
hans við fyrirsætuna Kate Moss sé lokið en Kate hafði áður hótað því að vera aldr-
ei aftur með Pete ef hann hætti ekki í ruglinu. Hann kom til baka til London eftir
að hafa stungið af úr meðferðinni og sást til hans með vinum sínum í Brixtom
akademíunni í London. Hann var stoppaður í tollinum á Heathrow þar sem hann
vildi ekki taka af sér hattinn. Hann var einn á ferð og þar var enginn mættur til
að taka á móti honum. Sögurnar segja að Kate hafi neytt hann til þess að fara í
meðferðina eftir að hún hafi sjálf lokið meðferð þar og er sögð alveg brjáluð eftir
fréttirnar því hún hafi vonast til að eyða jólunum með Pete.
eftir Jim Unger
„Því skora ég á talsmenn þjóðarinn-
ar, hvar sem er og hvenær sem er,
forseta, forsætisráðherra, utanrík-
isráðherra og aðra talsmenn: ef þið
hittið George W. skilið til hans frá
íslensku þjóðinni að okkur líki ekki
hvað hann er að gera, né hvernig
hann svari ekki fyrir alvarlegar
ásakanir í hans garð. Bendið honum
vinsamlegast á mikilvægi alþjóða-
samninga, samninga um mannrétt-
indi og meðferð stríðsfanga. Vinnu-
brögð hans og hugmyndir eru
eitthvað sem við íslendingar getum
ekki sætt okkur við og ættum ekki
að horfa framhjá. íslendingar eru
ekki stór þjóð en við höfum rödd
sem hlustað er á á alþjóðavettvangi
og við ættum að beita henni. “
Bergþór Skúlason á www.fram-
sokn.is/timinn
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
i </6 £ • Tfcf&ut+i
„Þessu fagna ég enda hef ég talið
að vandi Byggðastofnunar sé fyrst
og fremst sá að stjórnvöld hafa ekki
látið stofnunina sjá um að vera sú
miðja þess byggðastuðnings sem
þó hefur verið til staðar. Ráðherra
byggðamála sem hefur í raun verið
að veikja starfsemi stofnunarinnar
undanfarin ár virðist nú ætla að sjá
að sér. Valgerður sér þó seint sé að í
óefni er komið og bregst við með því
að lýsa því yfir að unnið verði að því
að sameina atvinnuþróunarstarf-
semi iðnaðarráðuneytisins. Þeirri u
- beygju vil ég sérstaklega fagna. Það
er full ástæða til að binda vonir við
að nú fari starfsemi stofnunarinnar
að geta aftur skilað árangri standi
stjórnvöld við þessar yfirlýsingar.
Ráðherra tekur fram að störfum á
Sauðárkróki verði ekki fækkað og
atvinnuþróunarstarfsemi á Isafirði,
Egilsstöðum og Akureyri verði efld.
Þessum yfirlýsingum fagna ég líka.
Hvar ætti svo sem að vinna þessi
verkefni frekar ?“
Jóhann Ársælsson; www.jarsaels-
son.is
HEYRST HEFUR...
Mýjasta Mannlíf er þykkt og
efnismikið, eins og vera
ber í jólaheftinu. Á forsíðunni
má sjá leikarahjúin Stefán
Karl Stefánsson og Steinunni
Ólínu Þor-
steinsdóttur,
sem eru flutt
til Los Angeles
í Kaliforniu og
liggur hreint
ekkert á að snúa
heim. í viðtali við þau boða þau
nýja bók, barn og brúðkaup, en
ekki endilega í þeirri röð...
Fleira hnýsilegt má finna
í Mannlífi, en þar á með-
al má nefna umfjöllun um
íslenska bókaflóðið eftir Kol-
brúnu okkar Bergþórsdóttur
og veitir víst ekki af að fá leið-
sögn um það á aðventu jóla.
Kolbrún kemur
þó víðar við sögu
í Mannlífi, því í at-
hyglisverðu viðtali
við Hannes Hólm-
stein Gissurarson
kemur fram að Hannes hafi
hreint ekki beðið Jón Ólafsson,
ahafnaskáld, vægðar í símtali
líkt og Jón hefur haldið fram,
heldur að hann hafi stungið
upp á því við Jón að þeir felldu
deilur sínar. Nefnir Hannes Kol-
brúnu til vitnis um það, enda
hafi hún setið við hlið sér þeg-
ar hann hringdi í sinn forna
fjanda...
Sjálfstæðisflokkurinn er
um þessar mundir að gera
könnun meðal flokksfélaga
sinna, þar sem spurst er fyrir
um skilvirkni flokksskrifstof-
unnar, áhrif einstakra hópa inn-
an hans, afstöðu flokksmanna
til tiltekinna stefnumála og
svo framvegis. Ber könnunin
það með sér að hin nýja forysta
flokksins vill komast að því
hvaða hjörð hún leiðir. Könn-
unin er gerð á vefnum og fram
til hádegis í gær gat hver sem
er skoðað niðurstöðurnar á net-
inu, en þá var skellt í lás...
m
Imeinfyndnum pistli á heima-
síðu sinni segir Mörður
Árnason, þingmaður Samfylk-
ingar, að ferðalag Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur,
menntamálaráðherra, til Sene-
gal hafi greinilega
verið brýnt þó ráðu-
neytið hafi gleymt að
geta þess á vef sínum.
Fundurinn í Dakar
hafi snúist um menningarlega
fjölbreytni og afar brýnt sé að
tryggja að hið íslenska sjónar-
horn komi inn í þá umræðu.
Andspænis slíku stórmáli þá
verði „smámál einsog önnur
umræða um fjárlagafrumvarp
einfaldlega að víkja fyrir æðri
skyldu." Mörður getur þess þó
í lokin að um þetta hafi greini-
lega ekki verið samstaða meðal
ríkisstjórna heimsins. Af 191
menntamálaráðherrum í aðild-
arríkjum SÞ hafi ekki nema 30
nenntað mæta...
Frjálslyndir í borgarstjórn
héldu almennan borgara-
fund í gærkvöldi um Reykja-
vikurflugvöll þar sem Ólafur
F. Magnússon hafði framsögu.
I fréttatilkynningu frá þeim í
gær sagði að hús-
fyllir hefði verið á 'A
fundinum og tæp-
lega 200 manns
mætt. Má vera. En
í fréttatíma RÚV
um kvöldið var sýnt frá fundin-
um og þá mátti aðeins telja sjö
manns á honum, að frummæl-
anda og blaðamönnum með-
töldum...