blaðið - 04.03.2006, Qupperneq 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaöiö
íslandsbanki
kaupir í Noregi
fslandsbanki hefur skrifað undir
samning um kaup á 50,1% hlut í
norsku samsteypunni Union Group.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem bankinn sendi frá sér í gær.
Union Group er einn stærsti aðili
í sölu, ráðgjöf og samsetningu við-
skipta og atvinnuhúsnæði í Noregi
og nam hagnaður samsteypunnar
fyrir skatta í fyrra tæpum 1 milljarði.
Að sögn Bjarna Ármannssonar,
forstjóra fslandsbanka, vill bankinn
með kaupunum styrkja stöðu
sína í fasteignaviðskiptum og
fyrirtækjaráðgjöf í Noregi. Árið
2004 keypti fslandsbanki Kred-
itBanken og í fyrra BNbank.
Báðir aðilar hafa samþykkt að
kaupverðið verði ekki gefið upp en
kaupin eru háð samþykki yfirvalda
í Noregi og á íslandi. Hjá Union
Group starfa nú um 25 manns.
Fjöltefli fyrir
grœnlensk börn
Sérvalln sveit Skákíþróttafélags stúdenta
við Háskólann f Reykjavfk telfdi f gær
fjöltefli við Henrik Danielsen, stórmeist-
ara Hróksins, sem hér tekur út stöðuna á
taflborðinu. Tilgangurinn var sá að safna
peningum til að unnt reynist að flytja
grænlensk börn og unglinga til fslands
í því skyni að kenna þeim sund. Slíka
kennslu er ekki hægt að veita á Græn-
landi þar sem alla aðstöðu skortir. Tefldar
voru alls 22 skákir. Henrik Danielsen
fór með sigur af hólmi f 16 viðureignum.
Fimm skákum lauk með jafntefli en
stórmeistarinn tapaði einni viðureign.
Segja fjölmiðla skaða imynd þingsins
Könnun leiðir í Ijós að Alþingi nýtur lítils trausts á meðal almennings. Formenn þingflokka segjafjölmiðla birta neikvœða mynd afstörfum Alþingis.
Auka verður
aðgengi að
störfum Al-
þingis og gera
starfsemi þess
gegnsærri til
að auka tiltrú
almennings á
stofnuninni ______________
að mati þing- Arnbjörg Sveins
dóttir
Magnús Stefánsson
flokksformanna.
I nýrri könnun
Gallup kemur
fram að Alþingi,
ásamt dóms-
kerfinu, nýtur
minnst trausts
allra opinberra
stofnana. Þing-
flokksformenn-
..kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
Smiðtuvtgur 66 - 200 Kópavogur - w**flanOfel&rJa jfír Söfcjaöili Akureyri Símí 461 2288
i/ 580 5800
www.expressferdir.is
STRAUMRÁS
Furuvellir 3 - 600 Akureyrf
HVERSDAGSFERÐIR í MARS
KAUPMANNAHÖFN
OGLONDON
FRABÆRT VERÐ
I mars eru Express Ferðir með í
boði hversdagsferðir til London
og Kaupmannahafnar á frábæru
verði. Brottför er á mánudögum
og þriðjudögum en heimkoma á
miðvikudögum eða fimmtudögum.
Einstakt tækifæri til að skella sér
út að leika!
29.900 kr.
^ Nánar á www.expressferdir.is
Express FerÖir, Grímsbæ,
Efstalandi 26, slmi 5 900 100
irnir segja fjölmiðla oft bregða
upp neikvæðum myndum af
störfum þingheims.
Lítið traust
í könnun Gallup var
spurt um afstöðu
fólks til átta opin-
berra stofnana og
hvaða traust það
beri til þeirra.
Háskóli Islands
naut mests
trausts af þeim
stofnunum sem
spurt var um
en ríflega 86%
þjóðarinnar segj-
ast bera traust
til hans. Þar næst
kom lögreglan með
79%. Minnst trausts
njóta Alþingi og dóms-
kerfið en aðeins 43% þjóð-
arinnar segjast bera traust
til þessara stofnana. Traust
til Alþingis
jókst þó frá síð-
ustu könnun
sem gerð var
í febrúar á síð-
asta ári en þá
sögðust aðeins
35% bera traust
til þess.
MJÓLKURVÖRUR
I SÉRFLOKKt
w
vörur m m
FLOKKl
Magnús Þór
Hafsteinsson
Neikvæð
umfjöllun
Þingflokksfor-
menn allra flokka á Alþingi eru
almennt sammála um það auka
verði aðgengi almennings að Al-
þingi enn frekar til að gefa fólki
innsýn inn í störf þess. Þá eru þeir
sammála um að sú mynd sem fjöl-
miðlar birta af störfum Alþingis
sé frekar neikvæð. Ögmundur Jón-
asson, þingflokksformaður vinstri
grænna, segir það oft erfitt fyrir
almenning að koma auga á það
starf sem unnið er innan veggja
þingsins. „Fólk sér aðeins deilur,
Stjórn á
blóðþrýstingi
LH inniheldur náttúruleg lífvirk
peptíð sem geta hjálpað til
við stjórn á blóðþrýstingi
LH-drykkurinn er gerður úr
undanrennu og því fitulaus.
Auk þess að innihalda peptíð
hefur hann verið bættur með
kalki, kalíum og magníum en
rannsóknir benda til að
þessi steinefni geti einnig
haft jákvæð áhrif á
blóðþrýsting.
ágreining og árekstra. Það kemur
síður auga á það mikla og faglega
starf sem unnið er innan veggja
þingsins."
Magnús Þór Hafsteinsson, þing-
flokksformaður Frjálslynda flokks-
ins, er sammála Ögmundi en segir
hluta af hinni neikvæðu umfjöllun
eiga sér rætur í
því hvernig fyr-
irkomulaginu sé
háttað á Alþingi.
„Það er lítið þing-
ræði hér. Meiri-
hlutinn er alveg
einráður og
allar tilllögur
sem stjórnarand-
staðan leggur
fram eru svæfðar
í nefndum. Það
er alveg sama hversu góðar þær eru.
Þetta leiðir síðan til þess að það
verða uppákomur á þingfundum.“
Margrét Frímanns
dóttir
STANGAVEIÐIMEKHSr ATHUGIÐ
Nýtt námskeið í fluguköstun hefst sunnudaginn 5. mars í TBR húsinu
Gnoðavogi 1 klukkan 20:00.
Kennt verður 5., 12., 19. og 26. mars.
Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð krónur 8.000 en krónur 7.000 til félagsmanna gegn framvfsun
gilds félagsskírteinis.
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
Að mati Arnbjargar Sveins-
dóttur, þingflokksformanns
Sjálfstæðisflokksins, erþörf
á að veita frekari upplýs-
ingar um starfsemi Ál-
þingis til almennings.
„Á undanförnum
árum er búið að
opna aðgengi að
Alþingi mjög
< mikið en það er
greinilega þörf
á frekari kynn-
< ingu. Það hefur
> jafnvel verið
rætt hvort opna
eigi aðgengi að
nefndarfundum
því þessi mynd
sem fjölmiðlar gefa
af þingstörfum er að-
eins brot af því sem
hér fer fram.“ Undir
þetta tekur Magnús Stef-
ánsson, varaformaður þing-
flokks Fram-
sóknarflokksins,
en hann segir
framkomu þing-
manna í þing-
sal og eðli um-
ræðunnar oft
gefa neikvæða
ímynd.
Ögmundur Jón-
Efla embætti
forseta Alþingis
Margrét Frí-
mannsdóttir, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar, segir umfjöllun
um störf alþingismanna oft vera á
neikvæðum nótum og sjaldan sé það
jákvæða dregið fram. „Upphlaup á
þingi er oft fréttaefni en þegar um-
ræðan er á málefnalega yfirveguðu
plani, eins og hún er oftast, vekur
það ekki eins mikla athygli. Þannig
að fólk er almennt að fá ranga mynd
af störfum þingmanna."
Margrét vill gera meira úr emb-
ætti forseta Alþingis og jafnvel
ráða sérstakan upplýsingafulltrúa
til þess að skapa jákvæðari ímynd.
„Það er slæmt fyrir Alþingi og
fólkið í landinu að við skulum ekki
geta snúið þessu við. Ég hef trú á
því að forseti þingsins muni leggja
áherslu á að Alþingi öðlist verðugri
sess í hugum fólks og þetta er eitt-
hvað sem við þingflokksformenn
og stjórnendur þingsins þurfum
að ræða.“
KKR, SVFRog SVH
*■