blaðið

Ulloq

blaðið - 04.03.2006, Qupperneq 8

blaðið - 04.03.2006, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaAÍð Khaled Mashaal fer fyrir viðræðunefnd Hamas sem sækir Rússa heim. Viðræður Rússa og Hamas valda vonbrigðum Þær vonir sem voru bundnar við viðræður Rússa við sendinefnd Hamas-samtakanna, sem hófust í gær, virðast brostnar. Við komuna til Moskvu lýsti Khaled Mashaal, einn helsti hugmyndafræðingur sam- takanna, því yfir að Hamas myndi aldrei viðurkenna tilverurétt ísra- elsríkis. Ummælin draga úr þeim vonum að stjórnarseta Hamas, sem eru talin til hryðjuverkasamtaka í flestum Vestrænum ríkjum, í Pal- estínu muni milda afstöðu samtak- anna til ísraels og umbreyta þeim í hreinræktaðan stjórnmálaflokk. Þrátt fyrir þessi ummæh lýsti Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands því yfir í gær að ekki væri öll von úti enn. Hann sagði að Hamas mætti ekki við einangrun á alþjóðavettvangi en til þess að kom- ast hjá henni þyrftu samtökin að láta af harðlínustefnu. Lavrov bætti því við að ekki væri unnt að búast við slíkri breytingu á einni nóttu. Spenna í alþjóðamálum veldur hækkunum á olíuverði Ótti um minnaframboð vegna hryðjuverka og kjarnorkuáœtlunar írana veldur óróa á mörkuðum Olíuverð hélt áfram að hækka á heimsmörkuðum í gær, föstudag, fjórða daginn í röð. Verð á olíufati nálgast óðum 64 Bandaríkjadali. Hækkanir síðustu daga má rekja til spennu í stórum olíuframleiðslu- ríkjum á borð við Sádi-Arabíu, Níg- eríu og Irak. Einnig er óttast að deil- urnar um kjarnorkuáætlun írana geti leitt til viðskiptabanns sem myndi torvelda mjög útflutning þeirra á olíu. Tilraun hryðjuverkamanna til að sprengja upp stærstu olíuhreinsun- arstöð heims í Sádí-Arabíu í síðasta mánuði hefur vakið upp vangaveltur um að hryðjuverkamenn geri fleiri atlögur að oliuframleiðslu stærsta olíuútflytjanda heims. Átök á milli uppreisnarmanna og stjórnarhers- ins við árósa Níger-fljóts í Nigeríu, þar sem stærstu olfulindir landsins eru, hafa aukið á óvissu um fram- boð á heimsmarkaði næstu mánuði. Það eykur enn á óvissuna að óljósar fréttir bárust í gær þess efnis að al- Qaeda hryðjuverkasamtökin undir- búi nú röð stórra árása í írak með það að markmiði að auka á ólguna í landinu. Þar berjast nú trúarhópar sjíta og súnníta af vaxandi hörku. Auk þess hafa deilurnar um kjarnorkuáætlun írana haft áhrif á þróun olíuverðs. Málefni Irans verða tekin fyrir á fundi Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar á mánudag. Fundir ráðamanna í Te- heran með fulltrúum Rússa annars vegar og Breta, Frakka og Þjóðverja hins vegar hafa ekki skilað tilætl- uðum árangri og eykur það líkur á að niðurstaða fundarins verði sú að vísa deilunni til öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna. Þar gæti myndast samstaða um að beita lran efnahags- þvingunum. íran er annar stærsti olíuútflytjandi OPEC-samtakanna og myndi viðskiptabann því verða til þess að draga enn frekar úr fram- boði á olíu á heimsmarkaði. Áframhaldandi órói á mörkuðum Þrátt fyrir ótryggt ástand í alþjóða- málum eru sérfræðingar þeirrar skoðunar að heimsmarkaðsverð muni sveiflast til á næstunni i stað þess að halda áfram að hækka eða lækka. Nýjar tölur frá orkumála- ráðuneyti Bandaríkjanna sýna að olíubirgðir í Bandaríkjunum eru nú meiri en á meðalári. Auk þess gengur vel að endurreisa oliuiðnað Bandarikjamanna við Mexíkóflóa, en hann varð illa úti þegar fellibylur- inn Katrín gekk yfir í ágúst í fyrra. Leiðtogar OPEC-ríkjanna munu funda í næstu viku og taka ákvörðun um hvort olíuframleiðsla þeirra verði aukin eða minnkuð til þess að hafa áhrif á verðþróun næstu missera. Ástandið í Miðausturiöndum hefur gert það að verkum að olíuverð hefur verið hátt síðustu ár. Breytingar á leiðinni! Á morgun, sunnudaginn 5. mars, taka gildi breytingará leiðakerfi Strætó. Með þessum breytingum er verið að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar og ábendingar þeirra. Nýja leiðabók er að finna á sölustöðum strætó og einnig er allar upplýsingar að fá á www.straeto.is. Alla leið með Strætó. 24 31 11 18 25 Ástæða til að fagna: Meðal breytinga á leiðakerfinu eru nýjar leiðir bæði í Kópavogi og Reykjavík.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.