blaðið - 04.03.2006, Síða 54
541 FÓLK
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaðiö
HVERNIG SEGIR
MAÐUR SLAKA
Á PÓLSKU?
Þrátt fyrlr marga augljósa galla á þjóð-
inni finnst Smáborgaranum afskaplega
notalegt að vera (slendingur. Vissulega
eigum við okkar slæmu hliðar eins og allir
aðrir og við því er litið að gera. Við hugs-
um stundum ekki lengra en okkar eigið
nef og högum okkur í samræmi við það
oft dálítið ruddalega. Innst inni erum við
þó eins og unglingur sem stöðugt þráir
viðurkenningu og athygli frá foreldrum
sínum.
Að mati Smáborgarans kristallast
þetta atferli í þessari svokölluðu útrás ís-
lenskra fyrirtækja og þránni um stöðugt
meiri hagvöxt. Líkt og unglingur með
splunkunýtt bílpróf í vasanum og Subaru
bifreiðina hennar mömmu í láni þeys-
umst við um hraðbrautir hins alþjóðlega
markaðar. Skeytum lítið um aldagamlar
reglur og finnst allir vegir vera okkur
færir.
Við hlæjum að Bensinum og finnst
hann fara sér of hægt. Volvoinn er bara
púkó og Chervolettinn eyðir alltof miklu.
Við hugsum ekki mikið til þess hversu
veikbyggður Subaruinn er og hversu lítið
má út af bera til þess að hlutirnir endi illa.
Kannski erum við of sjálfhverf og þurfum
að setja okkur í meiri samræðu við hið
alþjóðlega umhverfi. Núna setjum við
hvert heimsmetið á fætur öðru í mengun
og þykir lítið tiltökumál að leggja heilu
landsvæðin í rúst til að koma fyrir nýjum
virkjunum. Allt í þágu meiri hagvaxtar,
meiri hraða.
Um daginn var Smáborgarinn í
heimsókn í einu af þessu nýju hverfum
borgarinnar. Þar var mikil uppbygging
í gangi eins og víða á landinu öllu. Við
einn húsgrunninn var stór og mikill
byggingakrani sem var að hífa upp stein-
steypuklump. Við kranann stóð smiður
sem kallaði stöðugt upp til kranastjórn-
andans. „Slaka maður! Slaka!" Loks sneri
hann sér að vinnufélögum sínum sem
stóðu álengdar og spurði: „Hvernig segir
maður slaka á pólsku?"
( þessari spurningu smiðsins er
kannski vlsiraf því sem koma skal. Að fyrr
eða síðar neyðumst við á einn eða annan
hátt til meiri samræðna og samvinnu við
hiðalþjóðlega umhverfi. I kjölfarið mynd-
um við kannski uppgötva að við erum
ekki ein úti að aka og læra að slaka örlítið
á. Smáborgarinn er viss um að lífið yrði
betraef það myndi gerast.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hermann Gunnarsson, fjölmiðlamaður.
Hvað eiga íslendingar að gera við
Parken?
„Við ættum að endurtaka þennan fræga landsleik með sömu leikmönnum
og spiluðu árið 1967. Ég á von á því að okkur mundi farnast betur í þetta
skiptið þar sem við höfum elst betur og ég held að það sé meiri snerpa í
okkar mönnum. Við vorum með ágætislið á þessum tíma en þeir voru
bara óhugnanlega góðir.“
Islenskir kaupsýslumenn reyndu I vikunni að festa kaup á Parken, þjóðarleikvangi Dana. Völlurinn stendur á rústum gamla
Idrætsparken þar sem fslendingar töpuðu 14-2 gegn Dönum árið 1967. Hermann Gunnarsson skoraði annað af tveimur mörkum
íslenska landsliðsins.
Vill ekki valda
vonbrigðum
Söngkonunni Jessicu Simpson fannst mjög erfitt að slíta ömurlegu hjónabandi við fyrr-
verandi eiginmann sinn, Nick Lachey, vegna þess að hún vildi ekki valda
aðdáendum sínum vonbrigðum.
Simpson var hrædd við að eyðileggja tilbúna ímynd
þessa fullkomna hjónabands hennar og Lachey og að lok-
um ákvað hún að það væri ekki hægt að halda áfram að
leika þennan leik.
„Ef maður er ekki hamingjusamur getur maður
ekki gert annað fólk hamingjusamt," sagði Simpson í
samtali við Hollywood pressuna. „Þegar maður slítur
hjónabandi og það er ekkert sem togar i mann veit maður
að maður er að gera rétt.“
Anna Nicole hrœdd
Gullgrafarinn Anna Nicole Smith ákvað að mæta ekki á frumsýningu mynd-
arinnar Illegal Aliens, sem hún leikur í og fjármagnar, vegna þess að hún var
hrædd um öryggi sitt.
Smith mætti í hæstarétt í síðustu viku og fannst blaðamenn og ljósmyndar-
ar á svæðinu svo ógnandi að hún þorði ekki að mæta á frumsýninguna.
„Hún var niðurbrotin eftir að hafa mætt í hæstarétt, fjölmiðlarnir voru svo
ógnandi,“ sagði leikstjóri Illegal Aliens, David Giancola.
Umræða um geðheilsu leikkonunnar hefur einnig skotið upp kollinum aft-
ur eftir að hún mætti í sjónvarpsviðtal aðeins á nærfötunum og svaraði spurn-
ingunum með óskiljanlegu bulli.
Alba reið út í Playhoy
Leikkonan snoppufríða Jessica Alba hótar að lögsækja tímaritið Playboy
fyrir að birta mynd af henni á forsíðu sem lét lesendur halda að hún sæti
nakin fyrir í blaðinu.
Alba skrifaði Hugh Hefner og félögum hjá Playboy bréf þar
sem hún kvartaði yfir að blaðið hefði látið líta út fyrir að
hún væri nakin, eða næstum því nakin í blaðinu. Lög-
fræðingur Alba, Brian Wolf, krefst þess að dreifingu
tímaritsins verði hætt og að Playboy greiði henni væna
summu í skaðabætur fyrir að nota mynd af henni í leyf-
isleysi. Wolf sagði ennfremur að Playboy hafi boðið
Alba greiðslu fyrir að nota mynd af henni á forsíðu
en leikkonan neitaði því og gaf þannig ekki leyfi fyrir
birtingunni.
SÉRBLAÐ
FORMÖLA 1
Mánudaginn 6.mars
—-----------=blaðið —._________________
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbtúr: Ragnarsdóttir ■ Sirni 510 3722 • Gsrn 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellerr Agúst Pálsson • Simi 510 3746 • Gsru 869 9903 • olli@bladid.net
bjarni Dar.ielsson • 3Imi 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarnKfibladid.net
eftir Jim Unger
5-16
© Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla. 2001
Þú borðar of mikið af guirótum.
HEYRST HEFUR...
Enn á ný hefur steinn verið
lagður í götu þýsku bygg-
ingavöru-
keðjunnar
Bauhaus
sem ákaft
hefur reynt
á síðustu
árum að fá
lóð á höfuð-
borgarsvæð-
inu undir
stórverslun. Fyrirtækið reyndi
á sinum tíma að fá lóðir í Garða-
bæ og Kópavogi en hlaut ekki
náð fyrir augum bæjarstjór-
anna þar, þeirra Ásdísar Höllu
B r a g a -
dóttur, nú
forstjóra
BYKO, og
Gunnars I.
Birgisson-
ar. Þá sneru
Bauhaus-
menn sér
til Reykjavíkur og föluðust eft-
ir lóð i landi Úlfarsfells. Þeirri
beiðni var vel tekið en fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í höfuð-
borginni þráuðust enn við með
ýmsum athugasemdum. Nú
hefur málinu eina ferðina enn
verið sleg-
ið á frest
því þriðji
bæjarstjóri
Sjálfstæðis-
flokksins,
Ragnheið-
ur Rík-
harðsdótt-
ir í Mosfellsbæ, segir að fái
þýska fyrirtækið lóð í landi
Úlfarsfells sé það brot á sam-
komulagi um svokallaða þró-
unaráætlun um uppbyggingu
bæjarkjarna á mörkum Reykja-
víkur og Mosfellsbæjar.
Margir eru afar undrandi
á því hvernig Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur myndað breið-
fylkingu
bæjarstjóra
gegn þýska
fyrirtækinu
og á það
ekki síst við
um marga
sjálfstæðis-
menn sem
töldu að flokkurinn berðist fyr-
ir aukinni samkeppni, íslensk-
um neytendum til hagsbóta. í
gær veltu menn því fyrir sér
til hvaða ráða sjálfstæðismenn
myndu næst gripa til að hefta
samkeppni á byggingavöru-
markaði á höfuðborgarsvæð-
inu. Einna helst þykir koma
til greina að Kristján Þór Júlí-
usson, bæjarstjóri á Akureyri,
hefji afskipti af málinu undir
grunnfána byggðastefnu og
jafnstöðu dreifbýlisbúa.
Annars er því haldið fram
að Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóraefni Samfylkingar-
innar, hafi
út af fyrir
sig ekkert á
móti þeirri
töf sem orð-
ið hefur á
Bauhaus-
m á 1 i n u .
Dagur og
félagar hafi
nú þegar ákveðið að fá þýska
fyrirtækinu lóðina. Töfina telji
þeir hins vegar ágæta því með
hverjum degi færast borgar-
stjórnarkosningarnar nær og
þess meiri verði áhrifin þegar
ráðist verður gegn haftastefnu
íhaldsins á höfuðborgarsvæð-
inu.