blaðið

Ulloq

blaðið - 11.03.2006, Qupperneq 40

blaðið - 11.03.2006, Qupperneq 40
40 I MEWWIWG 4 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 blaöið Myndavélin er vopn gegn meinsemdum samfélagsins Einn af áhrifamestu myndasmiðum eftirstríðsáranna, bandaríski ljósmyndarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Gordon Parks lést á þriðjudag, 93 ára að aldri. Hann varð fyrsti þeldökki ljósmyndarinn í starfsliði tímaritsins Life og fyrsti þeldökki listamaðurinn sem fram- leiddi og leikstýrði stórri Hollywood-kvikmynd en það var myndin The Learning Tree árið 1969. Parks starfaði fyrir Life í meira en 20 ár og eignaðist á þeim tíma stóran aðdáendahóp. Á sjöunda ára- tugnum snéri hann sér í auknum mæli að skrifum og gaf út endur- minningabækur, skáldsögur, ljóð og einn ballett. Þúsundþjalasmiðurinn Gordon Parks lést í hárri elli á þriðjudag. Ólst upp í fátækt Gordon Parks ólst upp í fátækt í Kansas og Minnesota og fór að mestu á mis við hefðbundna skóla- göngu. Litlu mátti muna að hann lenti á refilsstigum og í fátækt þegar hann var unglingur en hæfileikar hans á sviði tónlistar og ljósmynd- unar urðu honum til hjálpar. I ljós- myndum sínum tvinnaði Parks saman áhuga sinn á raunsærri heimildaljósmyndun og tjáningu eigin tilfinninga. Hann var undir miklum áhrifum af Farm Security Administration-hópnum (FSA) en í honum voru ljósmyndarar sem mynduðu líf og aðstæður fátækra bænda í Bandaríkjunum á fjórða og fimmta áratugnum. Sjálfur gekk Parks til liðs við FSA árið 1942 þegar hann var þrítugur. Parks sagði í viðtali við dagblaðið The New York Times árið 1999 að hann hefði uppgötvað áhrifamátt ljósmyndunarinnar þegar hann vann sem þjónn í farþegalest á kreppuárunum. Dag einn tók hann upp tímarit og við honum blasti mynd FSA-ljósmyndara af farand- verkamönnum. „Ég sá að mynda- vélin gat verið vopn gegn fátækt, gegn kynþáttahyggju, gegn alls kyns samfélagsmeinsemdum. Á því augnabliki vissi ég að ég yrði að eign- ast myndavél," sagði hann. Margar af fyrstu ljósmyndaröðum Parks fyrir Life eins og sagan af ung- lingagengi í Harlem sem birtist árið 1948 kom mörgum lesendum tíma- ritsins í opna skjöldu og staðfestu hugmyndir Parks um áhrifamátt ljósmyndunarinnar. Myndaði fátæklinga og fræga fólkið Parks vann fyrir Life á árunum 1948- 1972 en tímaritið var á þessum tíma leiðandi í myndblaðamennsku í heiminum. Meginviðfangsefni hans á Life tengdust kynþáttahyggju, fá- tækt og daglegu lífi þeldökkra Banda- ríkjamanna en hann beindi einnig linsunni að glanshlið samfélagsins svo sem tískusýningum, fræga fólk- inu og stjórnmálamönnum. Afrek hans á bókmenntasviðinu liggja einkum í flokki endurminn- ingabóka þar sem hann rifjar upp atvik úr æsku sinni og leitar dýpri merkingar í þeim. Hæfileikar hans til að segja líflegar sögur komu berlega í ljós í The Learning Tree sem hann skrifaði upphaflega sem skáldsögu og breytti síðar í handrit. Sagan fjallar um uppvaxtarár ungs þeldökks manns sem á margt sam- eiginlegt með höfundinum. Skáld- sagan fékk góðar viðtökur þegar hún var gefin út árið 1963 og þegar hún var kvikmynduð sex árum siðar lét hann sér ekki nægja að framleiða og leikstýra myndinni heldur samdi hann einnig tónlist fyrir hana. Auk The Learning Tree leikstýrði hann vinsælum hasarmyndum á borð við Shaft og Shaft’s Big Score sem voru fyrirrennarar svonefndra blaxploitation-kvikmynda sem nutu vinsælda á áttunda áratugnum. Ljóðs manns œði Fræðsludeild Þjóðleikhússins og fjórir stuðningsmenn ljóðsins hafa tekið höndum saman um að halda nokkrar ljóðaskemmtanir á þriðjudagskvöldum í Leikhúskjall- aranum næstu vikurnar. Nokkur umræða hefur farið fram að undanförnu þar sem bók- menntamenn og ljóðaunnendur hafa harmað að ljóðið hafi orðið hornreka í þeirri umfjöllun og at- hygli sem bókmenntir fá á íslandi. Til að freista þess að snúa þessari þróun að einhverju leyti við mun fræðsludeild Þjóðleikhússins, í sam- vinnu við þau Eystein Þorvaldsson, Ástráð Eysteinsson, Sigurbjörgu Þrastardóttur og Hjalta Snæ Æg- isson, standa fyrir þematengdum ljóðaskemmtunum í Leikhús- kjallaranum undir yfirskriftinni Ljóðs manns æði. Umsjón hefur Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri og deildarstjóri fræðsludeildar. Fyrsta ljóðaskemmtunin verður i4.mars nk. en þá verður fjallað um Útrás í ljóðum eða yrkingar um útrásina, frá miðöldum til okkar daga, auk þess sem komið verður inn á íslenska landkönnun og landnám erlendis. Hvernig er ljóðagull sótt í greipar útlendinga? 28. mars er komið að Ljóðinu í lík- amlegri nálægð - líkama, útliti, nautnum og sársauka í ljóðum. 11. apríl er yfirskriftin Mér brennur í muna. Minningamyndir. Eru ljóð minnisvélar? Hvað varðveitir ljóðið og hvernig? Hvað kveikir minn- ingar? Hver eru tengsl mælenda, minninga og ákveðinna staða? Sótt og dauði íslenskunnar er heiti ljóðaskemmtunar 25. apríl, en þá verður rætt um margboðað andlát móðurmálsins. Verður ljóðlistin lífgjafi þess? Hvernig tekur ljóðið á tungumálinu? Flytjendur verða leikarar, höf- undar og fleiri. Leitast verður við að skapa ljúfa stemningu og gestir geta notið veitinga meðan á dagskránni stendur. skemmtanirnar hefjast kl. 21:00 í Leikhúskjallaranum en húsið verður opnað kl. 20:30. Gordon Parks beindi linsu sinni ekki aðeins að meinsemdum samfélagsins heldur mynd aði hann einnig stjórnmálamenn, kvikmyndastjörnur og annað frægt fólk. Þessa mynd tók hann af leikkonunni ingrid Bergman við Stromboli á ftalíu árið 1949. Ein af frægustu ijósmyndum Gordon Parks American Gothic sem hann tók af fátækri amerískri verkakonu á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. m u cfc /5 m> STÓRK0STIE6 MYND FVRIR AILA FJOISKYIDUNA. KOMIN ÚT Á DVD í VERSLANIR 06 Á IEICUR. SAM MYNDIR

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.