blaðið - 13.04.2006, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaðið
Clinton kynnir stefnu
sína í efnahagsmálum
Hillary Rodham Clinton, öldunga-
deildarþingmaður New York-ríkis,
gagnrýndi efnahagsstefnu George
Bush, forseta Bandaríkjanna.í er-
indi sem hún hélt hjá Hagfræðisam-
tökum Chicago á dögunum. Fjöl-
miðlar fylgdust með ræðu Clinton
af nokkurri athygli þar sem fastlega
er gert ráð fyrir að hún sækist eftir
útnefningu Demókrataflokksins í
forsetakosningunum 2008.
í ræðunni boðaði Clinton aft-
urhvarf til aðhaldssamra fjárlaga-
gerðar, sagði nauðsynlegt að ríkið
næði tökum á ört vaxandi kostnaði
í heilbrigðisgeiranum og boðaði
stefnu sem miðast við að milli-
stéttin fái notið góðs af auknum hag-
vexti í Bandaríkjunum. Hún benti
á að þrátt fyrir að framleiðni hefði
aukist í Bandaríkjunum hefði hagur
almennings hrakað hlutfallslega og
slíkt hefði aldrei áður gerst í sög-
unni.Öldungadeildarþingmaðurinn
tók fram að skattalækkunarstefna
George Bush kæmi ekki meirihluta
Bandaríkjamanna til góða. Annarra
úrræða væri þörf til þess að almenn-
ingur fengi notið jákvæðra áhrifa
hagvaxtar.
HAGKAUP
og apótek um land allt
Rapid white
Tannhvítunarefni
Virkar strax
Auðvelt í notkun
Meðmæli tannlækna
BM
Umboösaöili á Islandi
BERNHARD ehf. • Vatnagórðum 24 - 26 • Sími 520 I 100 • www.bernhard.is
Miðvikudaginn 19. apríl
PEUGEOT
50cc TORFÆRUHjÓL
með götuskráningu
Allt um sumarið...pantið auglýsingu tímanlega
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@vbl.is
11 Ff.Tr.rl
GRJÓTKAST
Fjöldi indónesiskra lögreglumanna slasaðist í gær þegar þelr reyndu að halda aftur af hundruðum mótmælenda fyrir framan höfuð-
stöðvar útgáfufélags Playboy-tímaritsins í Djakarta. Mótmæiendurnir grýttu skrifstofuhúsið, létu ófriðlega og mótmæltu útgáfunni
harðlega. Indónesísk útgáfa tímaritsins hófst f siðustu viku og hefur hún vakið mikla reiði meðal sumra múslima i landinu, þrátt fyrir
að siðferðileg ritstjórnastefna tímaritsins taki sérstaklega mið af því að Indónesía er fjölmennasta rfki múslima í heiminum.
Félagsskapur sem kallar sig Verndarsamtök íslams hefur heitið því að halda mótmælum áfram þangað til að útgáfu ritsins verði hætt.
Samtökin hafa áður haft sig frammi og grýtt diskótek, sendiráð vestrænna ríkja, áfengisbúðir og aðra staði sem féiagar í þeim telja
tákn fyrir menningarlega kúgun gegn íslömskum gildum.
Útgáfa Playboy er orðin að miklu hitamáli í Indónesiu og hefur forseti landsins, Susilo Bambang Yudhoyono, opinberað efasemdir um
að það geti talist hollt lesefni fyrir landsins iýð.
Reuters
íraskar öryggissveitir sýna hryðjuverkamenn sem þeir handsömuðu ásamt vopnabúri þeirra.
Dauðasveitir en ekki stjórnvöld sem
bera ábyrgð á ofbeldi gegn súnnítum
og fremji ofbeldisverk undir fölsku
flaggi. Einnig rekur Jabr ofbeldið til
fjölda vopnaðra sjálfstæðra öryggis-
veita sem eru reknar af einkaaðilum.
Hann segir stjórnvöld of máttlítil til
að hafa hemil á slíkum sveitum.
Bandarísk hermálayfirvöld segja
að þrettán hundruð óbreyttir borg-
arar hafi látið lífið í trúarátökum á
milli súnníta og sjíta í írak í síðasta
mánuði. Margir sérfræðingar telja
að tala látinna sé mun hærri þar sem
að ekki er líklegt að öll lík fórnar-
lamba finnist. Ólgan í landinu hefur
farið sívaxandi frá því að Gullna
moskan í Samarra, eitt af helstu
helgitáknum sjíta, var sprengd í loft
upp í febrúar. Stjórnarkreppan sem
hefur ríkt í landinu frá því að gengið
var til þingkosninga fyrir fjórum
mánuðum hefur ekki orðið til þess
að bæta hið viðkvæma ástand í land-
inu. Iraska þingið verður kallað
saman aftur næstkomandi mánu-
dag til þess að gera aðra tilraun til
þess að samstaða náist um skipun
ríkisstjórnar landsins.
Þrátt fyrir ólguna neita stjórnvöld
í trak að viðurkenna að borgarastríð
geisi í landinu. Stjórnvöld ákváðu
að hætta við þátttöku í ráðstefnu
utanríkisráðherra arabaríkjanna í
Kaíró um ástandið í trak. Var það
gert i mótmælaskyni við yfirlýsingu
Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, um að borgarastríð ríkti í
trak.
Bayan Jabr, innanríkisráðherra ír-
aks, segir dauðasveitir sjíta múslima
vera starfræktar í landinu en stað-
hæfir að þær hafi engin tengsl við
yfirvöld í landinu. Súnní múslimar
hafa ásakað stjórnvöld í landinu um
að styðja við bakið á ofbeldissveitum
sjíta í þeim trúarátökum sem hafa
geisað í írak frá því í febrúar. Súnn-
ítar hafa rökstutt þessar ásakanir
með því að benda á að fjölmörg
ofbeldisverk hafi verið framin af
mönnum klæddum í einkennis-
búninga lögreglu og hersins. Þessu
neitar innanríkisráðherrann og
segir að um sé að ræða hryðjuverka-
menn sem klæði sig upp í einkenn-
isbúninga lögreglu og hermanna
: . , v '"
Skírdag: Lakað
■tudaginn langa: Lakað
Laugardag: 11:00-16:00
Páskadag: Lokað
mann í páskum: Loki
Z E D R U S
porsneskar mottur / húsgögn / gjafavörur
I llít\irsm,ír,i 11 S. 534 22KK