blaðið - 13.04.2006, Síða 15
blaóið FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006
ÝMISLEGT I 15
Tónleikar Skagfirsku
söngsveitarinnar
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík
heldur 36. vortónleika sína í Lang-
holtskirkju sumardaginn fyrsta,
20. apríl, og laugardaginn 22. apríl,
báða dagana kl. 17:00. Stjórnandi er
Björgvin Þ. Valdimarsson.
Einsöng syngja Jóhann Friðgeir
Valdimarsson, tenór, og Baldvin Júlí-
usson, bassi.
Flutt verða létt lög úr ýmsum
áttum, íslensk og erlend. Má þar
nefna írska sönglagasyrpu í úsetn-
ingu Björgvins Þ. Valdimarssonar,
Þín hvíta mynd eftir Sigfús Hall-
dórsson, Björt nótt eftir Jón Björns-
son og hið skemmtilega lag Ifl were
a rich man úr Fiðlaranum á þakinu.
Einnig verður flutt hið stórglæsilega
lag Stormar eftir Sigvalda Kalda-
lóns í nýrri útsetningu kórstjórans.
Undirleik á píanó annast Dagný
Björgvinsdóttir
Aðgangseyrir kr. 1800.
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík heldur
tvenna tónleika í Langhoitskirkju þann
20. og 22. apríl.
Þrönggangalyftarar
Raftryllur
Brettahillur
Rafmagns lyftarar
Wave 50
handlangarinn
cmm
cmm
cmnrs
cmm
EZ3 MECALUX
Læstir skápar fyrir
fatnaö og
persónulega muni
Hurðir, veöurhlífar
og vörubryggur
Hillukerfi og
skápar fyrir
smávörulagerinn
Logimat lagerturnar
Hjólatrillur
henta vel í
útkeyrslubílinn
Staflarar
cmirns
E2 MECALUX
E3 MECALUX
Aratuga reynsla og þekking
við skipulagningu vöruhúsa
LOGIMAT
www.stra umur. is
Höfðabakki 9 • Simi 544 5330 • Fax 544 5355
straumur@straumur.is
m
sgS&sF' «
Smásagna-
samkeppni
Mannlífs
Tímaritið Mannlíf, í samvinnu
við Hið íslenska glæpafélag,
beinir sjónum sínum að saka-
málum í smásagnasamkeppni
ársins 2006.
í fyrra gaf Mannlíf út fylgi-
rit með sex hrollvekjum sem
valdar höfðu verið bestu inn-
sendu sögurnar. Gríðarleg þátt-
taka var í keppninni og bárust
yfir 70 sögur.
í ár er komið að flokki saka-
málasagna. Dómnefnd Mann-
lífs og Hins íslenska glæpa-
félags mun velja þrjár bestu
sögurnar og verða þær verð-
launaðar og birtar við hlið saka-
málasagna frá nokkrum af be-
stu höfundum landsins í þeim
geira i fylgiriti Mannlífs, Nýjar
íslenskar sakamálasögur, í júlí
næstkomandi.
Verðlaun fyrir bestu söguna
eru 50 þúsund krónur. Fyrir
næstbestu söguna eru veittar
30 þúsund krónur og þá þriðju
bestu 20 þúsund. Önnur verð-
laun verða kynnt síðar.
Hámarkslengd innsendra sa-
gna er 2500 orð og rennur skila-
frestur út 20. mai næstkomandi.
Sögurnar skal senda á netfangið
mannlif@frodi.is.
Tónleikar í
Langholts-
kirkju
Graduale Nobili heldur tón
leika i Langholtskirkju sumar-
daginn fyrsta, 20. apríl, kl. 20.
Á efnisskránni eru Maríuverk,
bæði íslensk og erlend. Meðal
verka má nefna Ave Maria
eftir Alice Tegnér og Gustav
Holst, þrír lofsöngvar til Maríu
eftir Javier Busto, Salve Reg-
ina, Alma Redemptoris Mater
og Magnificat, Salutatio Mar-
iae eftir Jón Nordal, Maríuljóð
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur,
Maríukvæði og Haustvisur
til Maríu eftir Atla Heimi
Sveinsson og Ég vil lofa eina
þá eftir Báru Grímsdóttur.
Graduale Nobili var stofnaður
haustið 2000 og er skipaður
ungum stúlkum, völdum úr
hópi þeirra sem sungið hafa
með Gradualekór Langholts-
kirkju. Kórinn hefur hlotið há-
stemmt lof gagnrýnenda, unnið
til verðlauna í alþjóðlegum kóra
keppnum og verið tilnefndur til
Islensku tónlistarverðlaunanna
og Menningaverðlauna DV.
Stjórnandi kórsins hefur frá
upphafi verið Jón Stefánsson.
## Allt fyrir