blaðið - 13.04.2006, Side 20
20 I DEIGLAN
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL
w:irv:v
Afkastamikið leikskáld
Tvö ný verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur frumsýnd með tíu daga millibili
Áhugaleikfélagið Hugleikur hefur
á undanförnum árum vakið verð-
skuldaða athygli fyrir frumlegar og
skemmtilegar leiksýningar. Ekki
er nóg með að Hugleikarar beri hit-
ann og þungann af uppfærslu verka
sinna, sjái um leik, söng og önnur til-
fallandi verkefni heldur semja þeir
verkin sín sjálfir.
I gær frumsýndi Hugleikur enn
eitt verkið sem heitir Systur og er
eftir Þórunni Guðmundsdóttur sem
áður hefur samið fjölda verka fyrir
hópinn. Þórunn segir að verkið fjalli
um þrjár systur um fimmtugt sem
koma saman eina kvöldstund til
að vera við dánarbeð föður þeirra.
,Þær fara að rifja upp ýmislegt úr
fortíðinni og ýmis átakamál koma
upp á yfirborðið og ýmislegt úr for-
tíðinni reynist ennþá óleyst,“ segir
Þórunn og bætir við að öfugt við
flest fyrri verk Hugleiks sé þetta
ekki beint gamanleikrit. „Þó að það
séu kannski einhverjar glettnar og
kómískar aðstæður inn á milli þá
er grunntónninn mjög alvarlegur,"
segir hún.
Valdabarátta systkina
Þegar Þórunn er spurð hvort að
verkið skírskoti á einhvern hátt til
samtímans segist hún eiga von á því
að fólk kannist við ýmislegt í verk-
inu. „Þetta er ekki nein þjóðfélags-
ádeila eða neitt slíkt heldur er fyrst
fagor ^ UPPÞVOTTAVÉL
Verð kr. 59.900
Áður kr. 79.900
RONNING
Borgartúni 24 / Reykiavfk / Sími: 562 401 1 • Óseyri 2 / Akureyri / Sími: 460 0800
Hatnargata 52 / Reykjanesbæ / Sími: 420 7200
Tvö ný verk eftir Þórunni Guðmundsdóttur, leikskáldið fjölhæfa og afkastamikla, verða frumsýnd i þessum mánuði.
og fremst verið að skoða samskipti
persóna og samskipti systkina. Þeir
sem eiga systkini kannast við það
að það er oft einhver valdabarátta
í gangi og þó að væntumþykjan sé
yfirleitt áberandi þá getur líka oft
verið grunnt á því góða,“ segir hún.
Alls hefur Hugleikur sett upp
fimmtán verk, jafnt löng sem stutt,
eftir Þórunni á aðeins sjö árum
en fyrsta verk hennar „Dómur
um dauðan hvern“ var sett upp af
félaginu leikárið 1999-2000. Það
er því ljóst að Þórunn hefur varið
talsverðum tíma við skrifborðið á
undanförnum árum. „Það fer nátt-
úrlega heilmikill tími í þetta en mér
finnst ég fá hann margfalt til baka í
ánægju. Hugleikur hefur verið mjög
duglegur við að setja upp verk eftir
mig og það hvetur mig náttúrlega til
frekari skrifa," segir hún.
Blaðið/Frikki
Gaman að sjá persón-
urnar kvikna til iífs
Þórunn hefur líka leikið í upp-
færslum Hugleiks og því liggur
beint við að spyrja hana hvort hún
hafi leikið í sínum eigin leikritum.
,Ég hef einu sinni leikið í mínu eigin
biaomnkki
Leikritið Systur, sem frumsýnt var i Möguleikhúsinu við Hlemm í gær, fjallar um þrjár
systur sem hittast við dánarbeð föður þeirra og gera upp ýmis mál úr fortíðinni.
leikriti. Það var reyndar söngleikur
sem heitir Kolrassa og af þvi að ég er
söngkona þá lá það beint við en mér
finnst skemmtilegast að sitja út í sal
og sjá persónurnar kvikna til Hfs á
sviðinu," segir Þórunn og bætir við
KENNETH COLE
new york
Verð Verð
kr. 14.500 kr. 10.500
Vfiró
kr. 9.950
Verð
Kr. 12.000
Verð
kr. 13.900
UR&GULL
Flröl • Mlöbaa Hafnarfjaröar • Slml: B66 4686
að það sé mjög góð tilfinning að sjá
hugverk sitt taka á sig mynd. „Það
sem mér finnst skemmtilegast er
þegar leikararnir eða leikstjórinn
hafa séð eitthvað í persónunum eða
í verkinu sem ég hef ekki sjálf komið
auga á þegar ég var að skrifa það.
Það hefur aldrei komið mér illa á
óvart heldur hefur alltaf verið mjög
skemmtilegt að sjá einhverja nýja
hlið á textanum eða persónunum,"
segir hún. Þórunn á von á því að
meira eigi eftir að koma henni á
óvart að þessu sinni en oft áður þar
sem hún hafi haft mjög fá tækifæri
til að fylgjast með æfingaferlinu.
: Fleiri járn íeldinum
Ástæðan fyrir því að Þórunn hefur
lítið komið að æfingum á Systrum
er sú að hún hefur verið að vinna að
uppfærslu annars verks eftir sig, óp-
eru í fullri lengd sem Tónlistarskól-
inn i Reykjavík frumsýnir þann 22.
apríl.
Operan heitir Mærþöll og segir
Þórunn að hún sé gamanópera með
alvarlegu ívafi sem fjalli um herg-
togadóttur sem grætur gulltárum.
„Hún verður fyrir álögum sem leiða
til þess að hún grætur gulli í stað
þess að gráta tárum en hún verður
einnig fyrir ýmsum öðrum álögum
sem ekki eru eins jákvæð - en það
er spurning hvort við leyfum áhorf-
endum ekki bara að komast sjálfum
að því hvað það er,“ segir Þórunn.
Áðeins verða tvær sýningar á óp-
erunni og verður sú seinni sunnu-
daginn 23. apríl. Leikritið Systur er
sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm
og eru aðeins sex sýningar fyrirhug-
aðar á því. Nánari upplýsinar má
nálgast á heimasíðu Hugleiks www.
hugleikur.is.