blaðið - 29.07.2006, Qupperneq 10
10 I I VXKULOK
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 blaðiö
Erla Ósk Ásgeirsdóttir var
ein ungu Sjálfstæðismannanna
sem sem tóku sér stöðu í húsi
Tollstjórans í Reykjavik í gær til
að koma í veg fyrir að hnýsnir
einstaklingar kæmust í við-
kvæmar persónuupplýsingar.
Svo mikil var sannfæringin að
jafnvel þegar náttúran kallaði
var ekki farið af varðstöðunni
heldur skattskýrslan tekin með.
F0T12.0LT 1
AMERÍJKUfV
FðT&OLTI
> TALvS KOÍA
FÖTT20LT1
Vaskfrir
matur
að flækir mál að taka misjafnt
á þeim, að forgangsraða. Skatt-
þrep eru röng, betra er að efla
félagslegt réttlæti á annan hátt, til
dæmis með ókeypis leikskólum og
hærri ellistyrk. Einnig er rangt að
taka mat fram yfir aðra vöru í virðis-
aukaskatti. Betra er að hafa eitt þrep
og alla vöru á því þrepi. í stað þrenns
konar afstöðu til vöru í vaski er rétt
að hafa einn vask á allri vöru. Matur
á hvorki að vera á lægra skattþrepi
né vera vaskfrír. Það flækir þjóðar-
bókhaldið og eykur líkur á undan-
skoti. Matur er of dýr, en betra er að
lækka verðið með innflutnings- og
tollfrelsi.
Pólitisk ógnargleði
Ognargleði er í herbúðum
harðlínumanna í Banda-
ríkjunum. Stríð ísraels við
umheiminn hefur vakið þá til lífs.
Langt er síðan þeir voru síðast glað-
ir. Það var, þegar Bandaríkin hófu
stríð gegn Irak. Þá átti að sigra
óvininn með rothöggi. Nú á að
sigra hann að nýju, að þessu sinni
í Líbanon. Þótt skynvilla harðlínu-
manna sé ætíð fjarri veruleikanum,
ris hún jafnan upp að nýju. Öðrum
þræði á hún að þjappa þjóðinni um
vanhæfan forseta. Stríðið í Líbanon
er ekki einkaböl Israels, heldur þátt-
ur í bandarískri pólitík, varðveizlu
og eflingu fáránlegra viðhorfa til
lífsins og tilverunnar.
Grímþór hugsar upphátt:
....ég bara fatta ekki til hvers heil nefnd var fengin til að finna út hvers
vegna maturinn er svona dýr á íslandi. Vissu ekki allir að það er vegna
tolla og aðflutningsgjalda? Ég vissi, las um það síðast í fyrra þegar
erlendir kontóristar komu hingað og tékkuðu á þessu. Þeir fundu, ef
ég man rétt, bara að því að hér er svo mikið lagt á nauðsynjarvörurnar
að það geri matvörur dýrara hér, rétt eins og í Noregi þar sem svipuð
hugsun er í gangi. Þess vegna var svo erfitt að finna ástæðu fyrir því að
aðalráðherrann setti af stað nefnd til að kanna það sem allir vissu. Og
til viðbótar var hún þannig mönnuð að vitað var að hún kæmist aldrei
að niðurstöðu. í nefndinni voru menn sem vilja ekki lægra matarverð
og aðrir sem vilja það. Allir vissu ástæðuna, nefndin gat aldrei orðið
sammála og það sem mestu skiptir, nefndin kannaði það sem allir vissu
en komst samt ekki að niðurstöðu. Til hvers var hún eiginlega...
DD
I H ÍBÍLHÚSIÐÍ
Véla- og hjólastillingar.
Tímareimaskipfi, bremsuviðgerðir,
smurþjónusta og allar almennar viðgerðir.
Smlðjuvegi 60 (Rauö gata) • Kópavogl • Síml 557 2540 - 554 6350
( H K V S I. K R
.IKEI' • DOIHili
Vikan í máli og myndum
Þrátt fyrir átök og spennu á alþjóðavettvangi heldur hið hversdagslega líf áfram. íþróttir,
bæði líkamnlegar og andlegar, eru fyrirferðamiklar þegar k'emur að því að rifja upp það
sem ekki komst í fréttirnar í vikunni.
Manntafl Líbanskir flóttamenn dreifa huganum frá þeim hörmungum sem
herja á heimaland þeirra.
Friðsæl stund Condoleezza Rice, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, er margt
til lista lagt. Hún stefndi á að verða konsertpíanisti i æsku en áhuginn á
alþjóöamálum varð yfirsterkari. Hún lék nokkrar nótur fyrir utanríkisráðherra
ríkja Suðaustur-Asíu í Malasíu í vikunni.
„Svona viljum við hafa það“ Af myndinni að dæma mætti halda að sjónvarps-
auglýsing Orkuveitu Reykjavíkur hafi haft mikil menningaráhrif víðs vegar um
heim. Svo er ekki enda sýnir myndin úkraínska landsliðið í samhæfðu sundi
taka þátt í sundmóti iBúdapest í Ungverjalandi.
Kóreskar Mulleræfingar Það er
ekki bara islensk börn sem kljást
við offitu. Um 12% barna á grunn-
skólaaldri í Suður-Kóreu eiga við
offituvandamál að stríða. Til þess að
berjast við vanda er þeim boðið upp
á sumarbúðir þar sem ofurkapp er
lagt á að ná spikinu af vömbunum.
Ofurdrengur Lu Di sem er sex ára
kínverskur strákur sem leggur stund
á kung fu. I vikunni vann hann það
frækna afrek aö gera 10 þúsund
armbeygjur á rúmum þremur klukku-
stundum.