blaðið - 29.07.2006, Page 32

blaðið - 29.07.2006, Page 32
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 Maöiö Eitt sinn sagði Walt Disney, sem er frægur fyrir teiknimyndirnar sínar, að hann elskaði Mikka Mús meira en nokk- urn annan sem hann þekkti. Vissir þú að neglur, hár, húð, dýrafjaðrir, dýrafeldur og fleira er að mestu búið til úr sama efninu. Efnið heitir keratín og er svipað plasti. Efsti hluti naglanna er ekki lifandi í raun og veru, þess vegna er ekkí sárt að klippa á sér neglurnar. Lína á Sjónarhóli Það þekkja allir hana Línu Langsokk en hún er einkar skemmtileg stelpa sem býr á Sjónarhóli. Lína er mjög sjálfstæð stelpa enda býr hún ein ásamt hestinum sínum og apa. Hún elur sig því sjálf upp og stendur sig ansi vel, að minnsta kosti finnst henni það. Bestu vinir Línu heita Anna og Tommi og þau bralla ýmislegt saman. Hér að neðan er þessi fallega mynd af Línu en því miður gleymdist að lita hana. Getur þú litað hana? Morgunstund gefur gull í mum Morgunmaturinn er mik- ilvægasta máltíð dagsins og allir þurfa að borða hollan og staðgóðan morgunmat. Jónína og Bjarni vita þetta mætavel og reyna alltaf að velja góðan morgunmat. Þau finna fyrir því að þeim líður betur á dag- inn ef þau borða hafrgraut eða aðra hollustu. Samt langar þau stundum í eitthvað annað sem er ekki eins hollt en þá hjálpa mamma og pabbi þeim og segja hvað er hollt og gott. I dag eru mamma og pabbi enn þá steinsofandi uppi í rúmi. Jónína og Bjarni eru því í smá vandræðum, þau vita ekki alveg hvað þau eiga að fá sér í morgunmat en vilja alls ekki vekja mömmu og pabba. Getur þú hjálpað þeim og sett hring í kringum það sem er hollt? Hvað gefa dýrin okkur? Tannkrem- og bursti í beljum er efni sem heitir glýseról og það veitir vernd gegn tannsýklum. Glýseról er notað í tannkrem og munnskol. Svo er gamli, góði tannburstinn úr plasti. Hjartalokur Sjúklingar sem þurfa nýjar hjartalokur hafa fengið þær úr svínum. Þetta hefur verið gert allt frá árinu 1971. Hnappar Bútar úr beinum og hornum dýra hafa lengi verið notaðir til að búa til sterka hnappa. ís Gelatín, sem er prótín sem er í beinum og húð dýra, I II MW er notað í ís til að hann haldi áferð og lögun. Stundum er ge- latín líka notað í jógúrt, tyggjó og sykurpúða. Leðurskór Húð dýra er oft notuð til að búa til skó, belti, yfirhafnir, töskur og húsgögn. Dýrin í samfélagi okkar eru til margs nytsamleg. Við fáum mjólk frá kúnum, ull frá ánum og kjöt frá fuglura svínum og öðrum dýrum. En hvað fleira gefa dýrin okkur? Vissirðu til dæmis að góði ísinn sem við gæðum okkur stundum á, er eins og hann er út af dýrum. Plastgreiða Helstu efnin í plasti sem greiður eru búnar til eru fitu- sýrur úr dýrum. Og ímyndaðu þér alla þá hluti sem eru úr plasti. Lopapeysa Gamla góða ullin er notuð mikið á íslandi, í peysur, húfur, teppi oa margt fleira. Att þú eitthvað úr ull? Hvenær áttu afmæli? „Ég á afmæli16. janúar.“ í hvaða skóla ertu og í hvaða bekk? „Ég er í Lbekk í Víðistaðaskóla og fer í 2. bekk.“ Hvað finnst þér skemmtileg- asta fagið í skólanum? „Mér finnst myndmennt skemmtilegast." Inga Rós Johnsen Hvaða kvikmynd sástu síðast og hvernig fannst þér hún? „Ég fór á Rauðhettu og mér fannst hún mjög skemmtileg." Hver er uppáhalds maturinn þinn? „Pitsa." Hver er uppáhalds tölvu- leikurinn þinn? „Það er Svampur Sveinsson." Æfirðu einhverja íþrótt? „Já, ég æfi sund.“ Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? „Vera úti og leika við vinkonur mínar.“ Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Mig langar að verða kennari." Hvernig tónlist finnst þér skemmtilegast að hlusta á? „Mér finnst Abbababb með Dr.Gunna og félögum skemmtileg- asti diskurinn.“ Hvað ætlarðu að gera í sumar? „Ég er að fara til Spánar.“ Ef þú fengir eina ósk, hvers myndirðu óska þér? Ég myndi óska þess að ég væri göldrótt." Inga R6s Inga Rós ersjö ára sund- drottning sem finnst pitsa rosalega góö. Hana langar að verða kennari þegar hún er stór og eins vill hún vera göldrótt.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.