blaðið - 04.08.2006, Side 10
10 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006 blaöið
=======
Útgáfufélag: Árogdagurehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson
Fréttastjóri: Brynjólfur Þór Guðmundsson
Ritstjórnarfulltrúi: Janus Sigurjónsson
Villt mannamót
Um verslunarmannahelgi er mikið álag á allt og alla. Þjóðvegirnir verða
fullir af alls kyns ökumönnum og tjaldsvæðin mörg hver verða hlaðin af
alls kyns fólki. Fátt segir okkur að harmur fylgi ekki mannsöfnuðum helg-
arinnar. Því miður gerist það á hverju ári.
Mótmælendur virkjana hafa verið í gæslu lögreglunnar og í gæslu vík-
ingasveitarinnar. Ekkert er til sparað til að hefta aðgerðir þess fólks. Það
er vonandi að fjárráðum lögreglunnar sé vel skipt og hvergi vanti peninga
til að gæta að umferð og öryggi fólks, hvort sem það er á ferðalagi eða á
einhverri þeirra samkoma sem kallaðar eru hátíðir. Samt má ætla að engir
kosti lögregluna jafnmikið og mótmælendurnir. Sennilega verður meira
af lögreglu þar en víðast annars staðar á landinu. Allt til þess að mótmæl-
endum takist ekki að valda hugsanlegu tjóni.
Hætta er á að margir komi sárir frá hildarleik helgarinnar. Það er stór-
hættulegt að keyra um þrönga þjóðvegi og sérstaklega þegar innan um
verða stórhættulegir ökumenn, þeir sem keyra alltof hratt og þeir sem
keyra alltof hægt. Allir óska þess að komast heilir úr umferðinni, en til að
það takist verðum við öll að taka þátt. Ef mið er tekið af þeim anda sem
ræður hjá ýmsum er barasta engin von til að það takist. Þeir sem eru eftir-
lýstir vegna glæpaaksturs og þeir sem neita að benda á fantana eru ekki lík-
legir til að meta líf okkar hinna í dag, ekkert frekar en i gær. Því miður.
Hinir sem mæta á skemmtanir til þess eins að meiða eða særa aðra eru
ekki síður hættulegir. Nauðganir og aðrir hrottalegir glæpir hafa verið
fylgifiskar villtra mannamóta. Ofurdrukkið fólk er hættulegt og þegar við
bætist neysla annarra eiturefna, jafnvel dag eftir dag, er algjörlega óljóst
hvert það leiðir. Alltof oft til harmleikja, harms sem seint eða ekki grær.
Öllu má nafn gefa, líka samkomum helgarinnar. Sumar þeirra standa
ekki undir því að vera kallaðar hátíðir. Reynslan, sem af er þessu sumri,
sannar að svona er þetta hjá okkur. írskir dagar og Færeyskir dagar voru
með þeim eindæmum að óvíst er að reynt verði að halda slík mannamót
aftur. Dauðadrukkin ungmenni ráfandi um vitandi hvorki í þennan heim
né annan eru ekki að skemmta sér, kannski skrattanum. Þetta mun allt
endurtaka sig um helgina. Það eina sem við getum vonað er að ekki verði
framdir alvarlegir glæpir. Við getum vonað það, en því miður er mikil
hætta á að vonir okkar rætist ekki. Áfengið slævir dómgreind og þegar
margir eru samankomnir í sama ömurlega ástandinu er veruleg hætta á
áföllum
Það er vonandi að víkingasveitin og óbreyttir lögreglumenn komi í veg
fyrir frjálsa för fólks við Kárahnjúka um þessa helgi einsog síðustu daga,
hvað sem það kostar.
Förum varlega og góða helgi.
Sigurjón M. Egilsson.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur
Miðvikudagur 9.ágúst
ALLT SEM TENGIST NÝBYGGINGUM OG
VIÐHALDIÁ NÝJUM SEM GÖMLUM HÚSUM
blaöið-
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Katrín L. Rúnarsdóttir • Sími 510 3727 • Gsm 856 4250 • kata@bladid.net
Magnús G Hauksson • Simi 510 3723 • Gsm 691 2209 • maggi@bladid.net
J Uít>BE»N!NGíitMfle wflbto Sj Bújftnjw nm
Steinbörn og kreddur
Langt frameftir síðustu öld gengu
margir vinstrimenn með þá hug-
mynd eins og steinbarn í maganum
að opinber rekstur fyrirtækja væri
eitthvert markmið í sjálfu sér. Það
eimdi furðu lengi eftir af gömlum
þjóðnýtingarhugmyndum og þótt
bæjarútgerðir hafr kannski verið
framfaraspor á krepputímum voru
margir skynsamir jafnaðarmenn
fyrir löngu búnir að sjá að ríkis-
eign á iðnaðar- og framleiðslufyr-
irtækjum þurfti ekkert að gagnast
markmiðum um jöfnuð og réttlæti
í þjóðfélaginu. Þetta var farið að
verða vinstrimönnum til trafala - á
íslandi urðu þeir hlægilegir þegar
það var rætt í fullri alvöru í tíð
vinstrimeirihlutans í borgarstjórn
um 1980 hvort ekki væri rétt að
bæjarsjóður ætti og ræki sælgætis-
sjoppuna á Hlemmi „frekar en að
vera að afhenda hana einhverjum
kapítalistum."
Misjöfn reynsla erlendis
I Bretlandi voru þessar kreddur
tragískar og framfarahamlandi,
eins og þegar verkalýðsarmur krata-
flokksins þar háði næstum blóðugar
styrjaldir gegn því að hætt yrði að
ríkisstyrkja úreltar og óhagkvæmar
atvinnugreinar.
Að breskir vinstrimenn sneru við
blaðinu í þeim efnum og tækju upp
fána „New Labour“ var engin hægri-
beygja eins og margir hafa haldið,
því að það að hafa ríkisforstjóra yfir
atvinnufyrirtækjum með tilheyr-
Klippt & skorið
w
tvarp Saga er að spýta í byssuna þessa
dagana, enda meira svigrúm nú en
þegar Talstöðin keppti við hana á fullu
gasi. Nýja fréttastofan er raunarsend útátíðni-
j sviði Talstöðvarinnar, en endurómun sjónvarps-
i útsendinga er bara svo og svo gott útvarps-
efni. Um næstu mánaðamót tekur Jóhann
Hauksson, sem gerði garð-
/ inn frægan hjá RÚV og sfðar
* . Fréttablaðinu, við morgunút-
varpinu á Útvarpi Sögu og
mun vafalaust veita sínum
gömlu samstarfsmönnum
harða samkeppni milli kl. 7.00 og 9.00. Jóhann
er að leggja drög að efnistökum en hann mun
hafa algerlega frjálsar hendur um þáttinn. Ef
vel tekst til mun hann svo vafalaust leita sér
liðsauka.
andi skrifræði er ekkert markmið í
sjálfu sér í baráttunni fyrir jöfnuði
og lífsgæðum almennings.
Það var vont fyrir breskt þjóðlíf að
það þyrfti hægrikreddumanneskj-
una Margréti Thatcher til að koma
fólki í skilning um þetta. Því að rétt
eins og vinstrimenn höfðu blindast
og tekið trú á úreltar baráttuleiðir í
Einar Kárason
stað þess að hafa augun á markmið-
unum, þá eru frjálshyggjumenn
slegnir trúarblindu; þeir aðhyllast
einkavæðingu út yfir alla skynsemi.
Það eru til fræg dæmi um hrapal-
legan árangur þeirrar stefnu eins
og um einkavæðingu raforkukerfis-
ins í Kaliforníu eða opinberra sam-
gangna í Englandi. í Argentínu, sem
er 3ofalt stærri en ísland, átti upp-
bygging lestarkerfis stóran þátt í því
að hægt var að nýta auðæfi landsins,
sem komst fyrir vikið í hóp auðug-
ustu samfélaga jarðarinnar. Seinna
komust frjálshyggjumenn til valda
og þeir ákváðu að einkavæða járn-
Meira er að frétta af Útvarpi Sögu,
því þar hefur András Jónsson, for-
maður Ungra jafnað- |
armanna, tekið við stjórn þáttar
eftir hádegið, milli kl. 13.00 og T" “Tj
15.00. Meðal fastra efnisliða \ 1
þar verður Skuggaráðuneytið ■ - ■
svonefnda, en það skipuðu f gær þau Margrét
Jmí T S. Björnsdóttir, einn helsti
Jm> \ hugmyndafræðingur Sam-
W ‘ 1» fylkingarinnar.GunnarSvav-
^ arsson, forseti bæjarstjórnar
■ í Hafnarfirði, og Þorleifur
Arnarson, sem sjálfsagt er einhvers staðar
í námunda við vinstrigræna. ( þættinum í
gær var meðal annars rætt um evruskýrslu
Viðskiptaráðsins og hvernig Evrópuumræðan
hefði aldrei náð flugi. Vakti athygli að Margrét
brautirnar. Sagt er að flugfélög og
olíufélög hafi átt stærstan þátt í að
kaupa lestirnar, og leggja þær svo
niður. Sem var reiðarslag fyrir efna-
hag landsins.
íslensk einkavæðing
fslenskir frjálshyggjumenn lögðu
niður opinbera strandflutninga.
Líklega vegna þess að það þurfti
að borga með þeim. En hvað með
það? Ríkið ber mikinn kostnað af
samgöngukerfinu. Og það sem spar-
aðist við að leggja niður Skipaútgerð-
ina eru smápeningar í samanburði
við við kostnaðinn sem af því hlýst
fyrir vegakerfið. Svona aðgerð, sem
stjórnast af kreddum en engri skyn-
semi, er þó saklaus í samanburði
við það að þeir einkavæddu ftski-
miðin í sjónum. Og nú á að fara að
selja orkulindir landsins.
Frjálshyggjumenn eru heimskir
og kreddufullir og þeim er ekki
treystandi til að stjórna þjóðum.
Það er rétt og skylt að við íslenskir
jafnaðarmenn hugleiðum með
hverjum við gætum starfað eftir
næstu kosningar, og þótt vissulega
séu til mætir og skynsamir hægri-
menn þá er ljóst að stjórnmálabar-
átta komandi ára mun að nokkru
snúast um það sem aldrei má fara
úr opinberri eigu þjóðarinnar: inn-
viðir samfélagsins og auðlindir svo
eitthvað sé nefnt.
Höfundur er rithöfundur.
sagði þá umræðu einfaldlega ekki vera pól-
itísks eðlis! Nei, bara spurning um að skipta
um gjaldmiðil og framselja fullveldið. Engin
pólitíkfþví.
w
Islendingar hafa löngum stært sig af því
að vera hamingjusamasta þjóð í heimi, en
nú bregður svo við að samkvæmt nýjustu
rannsókn eru Danir í 1. sæti, þá Svisslendingar,
svo Austurríkismenn, en íslendingar eru í 4.
sæti. Klippari las fréttaskeyti frá UPI um þessa
könnun, en þar var fyrirsögnin á þá leið, að
Danir væru þjóða hamingjusamastir þrátt fyrir
háa sjálfsmorðstíðni, sem mun sú næsthæsta
í Evrópu. Þrátt fyrir? Má samhengið þar á milli
ekki vera augljóst?
andres.magnusson@bladid.net