blaðið - 04.08.2006, Qupperneq 29
blaðió FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 2006
29
fjölskyldan
fjolskyldan@bladid.net
„Foreldrar, sýnum góöa fyrirmynd og látum börn
okkar vita að viö elskum þau meö því aö segja nei
þegar koma og vilja fara í eftirlitslausa útilegu.11
Herdís L. Storgaard
Breyttur lífsstíll eftir
verslunarmannahelgi?
a
V
Um þessar mundir er mikið rætt
og ritað um unglingana okkar í
tengslum við verslunarmannahelg-
ina og þær hættur sem henni fylgja.
Það er vafalaust nauðsynlegt að
draga fram í dagsljósið þá stað-
reynd að alvarleg slys hafa orðið á
unglingum á liðnum árum um þessa
tilteknu helgi, bæði í umferðinni og
ekki síst á þeim stöðum sem þeir
sækja. Mörg þessara slysa skildu
UNGLINGAR
unglingana eftir með varanlega
skaða. Þegar slíkt gerist breytir það
lífi viðkomandi það sem eftir er og
maður getur spurt sig sem foreldri,
var það þess virði að gefa það eftir
að leyfa unglingnum að fara eftirlits-
lausum í útilegu?
Dómgreindin hverfur
Öllum foreldrum finnst sinn ung-
lingur vera mjög þroskaður og
skynsamur. Eins telja þeir að það
muni ekki koma neitt fyrir hann og
sem betur fer er það rétt í flestum
tilfellum. Eitt sem vert er að hafa í
huga er að þegar unglingar koma
saman og áfengi er haft um hönd
breytast hlutirnir hratt. Dómgreind
þeirra hverfur og þrýstingur frá fé-
lögum getur verið það mikill að þau
leiðast út í að gera eitthvað hættu-
legt, sem þau myndu annars ekki
gera. Þrátt fyrir að við séum búin að
lesa yfir þeim og telja upp allar þær
hættur sem þau geta lent í þá má
ekki gleyma því að þau upþlifa sig
sem ódauðleg á þessum aldri. Allur
hræðsluáróður fer því inn um annað
eyrað og út um hitt.
Elska með því að segja nei
Foreldrar, sýnum góða fyrirmynd og
látum börn okkar vita að við elskum
þau með því að segja nei þegar
koma og vilja fara í eftirlitslausa
útilegu. Þó það sé erfitt er það mun
auöveldara en að fá tilkynningu
um að unglingurinn hafi slasað sig
lífshættulega sem verður til þess að
hann þurfi að breyta um lífsstíl eftir
verslunarmannahelgina.
Með bestu ósk um gleðilega og
slysalausa verslunarmannahelgi.
Herdfs L. Storgaard
herdis.storgaard@sjova.is,
Forstöðumaður Sjóvá forvarnahúss
www. forvarnahus.is
Segjum nei Elskum börnin okkar
með þvíað segja nei þegar þau viija
fara í eftirlitslausa útilegu
SU DOKU - LEIÐBEININGAR
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þéim tölum, sem upp eru gefnar.
5 4 1 2
5 7 8
3 1 4
6 3 8
4 1
7 5
9 7 4
1 6
8 9 3 2
9 7 4 5 6
3 5 9 2 4
1
6 1 4 3 9
3 8 2 9 6
5 3
8
7 1
6 7 2 8
9 5 6 2
3 4
6 2
8 3 4
9 1 8 5 6
4 7 9
5 7
9 8
3 4 2 5 1
8 3 6
4 5 2 6 1
8 2
2 9 8
7 6 4 1
5
3 9
5 4 8 6
6 8 2 9 1 4