blaðið - 14.09.2006, Blaðsíða 34
42 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006
blaöiö
konan
konan@bladid.net
Einstök
Maya Angelou er ekki einungis þekktur rithöfundur bóka á
borö viö Ég veit af hverju fuglinn í búrinu syngur. Hún hefur líka
lagt hart aö sér viö aö bæta hag kvenna í þróunarlöndunum,
sérstaklega í Afríku. Starf hennar hefur því hjálpað þús-
undum kvenna víðs vegar um heiminn.
I matador með
lúdóreglur
Þegar kjarnafjölskyldan er
notuö sem fyrirmynd fyrir stjúp-
fjölskyldur viö lausn verkefna
er hætta á að óheppilegar
aðstæður skapist sem vinna
gegn fjölskyldunni og draga úr
þrótti hennar. Til að mynda ef
ekki er gert ráð fyrir tengslum
barna við báða kynforeldra
sína eða ef til þess er ætlast að
stjúpforeldri taki að sér hlutverk
kynforeldris án þess að það
hafi nokkurn tíma verið rætt.
Fimmtudaginn 14. september
klukkan 17.15 mun Valgerður
Halldórsdóttir félagsráðgjafi,
MA og formaður Félags stiúp-
fjölskyldna, flytja erindið: I
matador með lúdóreglur? Hvers
er að vænta í stjúpfjölskyldum?
í fyrirlestrinum mun Valgerður
benda á algengustu verkefni
stjúpfjölskyldna þannig að þær
fái tækifæri til að vinna út frá
eigin forsendum og efla þrótt
sinn. Fundarstaður er Hringsjá
- Hátúni 10d og nánari upplýs-
ingar má fá I síma 692-9101.
Vinsælir
Allir þurfa að sanna sig
Halla Tómasdóttir: „Það voru einstakir tímarí íslensku
atvinnulífi og hagkerfi þegar ég tók viö og alþjóðleg um-
ræða á neikvæðum nótum var í hámarki. En það hefur
veriö virkilega skemmtilegt verkefni að takast á við það.“
Halla Tómasdóttir er
fyrsta konan sem er fram-
kvæmdastjóri Viðskipta-
ráðs íslands en hún tók
við því starfi í. mars síðastliðinn.
Halla segir að þessi tími hafi verið
mjög skemmtilegur enda krefjandi
og skemmtilegt starf.
„Það voru einstakir tímar í ís-
lensku atvinnulífi og hagkerfi þegar
ég tók við og alþjóðleg umræða á nei-
kvæðum nótum var í hámarki. En
það hefur verið virkilega skemmti-
legt verkefni að takast á við það,“ seg-
ir Halla sem hlakkar alltaf til að fara
í vinnuna. „Ég hætti alltaf í störfum
ef ég hlakka ekki lengur til. Við er-
um auðvitað að fást við þrjú mjög
mikilvæg málefni. í fyrsta lagi erum
við að beita okkur fyrir því að hér sé
viðskiptaumhverfi sem sé hagfellt. 1
öðru lagi erum við öflugur bakhjarl
menntunar, við rekum Háskólann í
Reykjavík og Verslunarskólann og
styðjum við bakið á sjálfstæðum
grunn- og leikskólum. I þriðja lagi
erum við vettvangur tengsla hér inn-
anlands og í auknum mæli á alþjóð-
legum vettvangi.“
Geri sjálfri mér örugglega
ekki auðveldara fyrir
Halla segir að vissulega sé starfið
annasamt. „I raun og veru skapar
maður starfið dálítið mikið sjálfur
og ég hef tilhneigingu til að gera
sjálfri mér ekki auðveldara fyrir.
Það er því alltaf mikið að gera en
það er skemmtilegra þannig,“ segir
Halla og bætir við að hún haldi að
það sé gott að vera kona í viðskipta-
heiminum og þar þyrftu að vera
fleiri konur.
„Ég held að það sé ýmislegt sem
við höfum aðra skoðun á og það tel
ég vera mjög gott. Til dæmis held
ég að við leggjum stundum meiri
áherslu á samstarf heldur en sam-
keppni. Eins tel ég að við leggjum
aðeins meiri áherslu á heildarmynd-
ina frekar en ávinning okkar eigin
hagsmuna og það held ég að sé mjög
jákvætt.“
Allir þurfa að sanna sig
„Það veit enginn fyrir víst hvaða
áhrif kyn hefur því þú veist aldrei
hvað hefði getað gerst,“ segir Halla
þegar hún var innt eftir því hvort
kyn hennar hefði eitthvað að segja.
„Það hefur aldrei háð mér sérstaklega
að vera kona en það er vissulega stað-
fest í rannsóknum að í fjölmörgum
tilfellum fá konur ekki rétt mat fyr-
ir sín störf. Ég er fyrsta konan sem
er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Islands og kannski var það skrýtið
fyrir einhverja. Ég held að þetta sé
bara spurning um að allir þurfi að
sanna sig og ég hugsa að kannski
þurfi konur stundum að sanna sig
meira. En ég held að það sé enginn
sem velti sérlega mikið fyrir sér kyn-
ferði mínu núna. Það koma vissu-
lega upp aðstæður þar sem ég er eina
konan og of oft eru hóparnir í við-
skiptalífinu of einsleitir. Almennt
trúi ég á fjölbreytta hópa og ég er
meðal annars hér því mér finnst
skipta ofboðslega miklu máli að
raddir kvenna og karla heyrist við
mótun viðskiptalífsins og við upp-
byggingu menntunar í landinu. Ég
held að fjölbreytni skipti öllu ef ætl-
unin er að skapa öflugra samfélag.“
svanhvit@bladid.net
bókaklúbbar
Flestar konur á (slandi eru í
einhvers konar saumaklúbbi
og jafnvel fleirum en einum.
Svokallaðir bókaklúbbar hafa
líka færst í aukana en þá lesa
konurnar bækur sem valdar
hafa verið. Síðan hittast þær og
ræða ítarlega um efni bókar-
innar. Bókaklúbbar hafa orðið
sífellt vinsælli og það er ekki
síst talið að Oprah Winfrey eigi
þátt í þeirri menningu þar sem
hún hefur starfrækt bókaklúbb
í þáttum sínum um nokkurt
skeið. í annasömum nútímanum
er bókaklúbbur tilvalinn leið til
að örva hugann og ýta undir
lestur en mörgum finnst hrein-
lega sem þeir hafi ekki tíma
í lestur. Það er því tilvalið að
fá vinkonurnar með og þræða
bókasöfnin í leit að fróðlegu,
skemmtilegu og jafnvel sorg-
legu lesefni.
Wýr framkvæmdastjóri SMÁÍS
Höfundarrétturinn
er mikilvægur
Tinna Jóhannsdóttir tók nýlega
við framkvæmdastjórn hjá SMÁIS,
samtökum myndrétthafa á íslandi.
Tinna segir að sér lítist mjög vel á
starfið enda sé viðfangsefnið ein-
staklega spennandi.
„Ég byrjaði að kynna mér
verkefnin í ágúst en byrjaði á
fullu upp úr mánaðarmótum. Ég
er vön sjópvarpsbransanum, var á
Skjánum í nokkur ár og millilenti
aðeins á 365. Ég kannast því að-
eins við umhverfið þótt verkefni
samtakanna snúi auðvitað að
fleiru."
SMÁÍS voru stofnuð árið 1992 til
að vera hagsmunagæsla rétthafa
myndefnis á íslandi og samtökin
hafa ýmis hagsmunamál rétthafa
á sínum snærum. Félagsmenn
samtakanna hafa rétt til dreifing-
ar á yfirgnæfandi meirihluta kvik-
mynda- og sjónvarpsefnis og tölvu-
leikja sem eru á íslenskum markaði.
Aðild að samtökunum eiga kvik-
myndahús, helstu útgefendur
kvikmynda- og sjónvarpsefnis,
sjónvarpsstöðvar og helstu dreifing-
araðilar tölvuleikja. Aðspurð seg-
ir Tinna að verndun höfunda- og
hugverkaréttar sé afar mikilvægt
hagsmunamál fyrir samfélagið allt.
„Sömu lögmál gilda um höfund-
arrétt í greinum myndbanda og
Sömu lögmál
Tinna Jóhannsdóttir:
„Það gilda sömu lög-
mál um höfundarrétt í
greinum myndbanda
og kvikmynda og í
öllum öðrum greinum,
hvort sem það eru
bókmenntir, tónlist
eða almennur hug-
verkaréttur."
Blammki
kvikmynda og i öllum öðrum grein-
um, hvort sem það eru bókmenntir,
hugbúnað, tónlist, myndlist eða al-
mennan hugverkaréttur.“
Að sögn Tinnu hafa umsvif SMÁ-
ÍS aukist undanfarið ár og eitt hlut-
verk samtakanna sé til dæmis að
fræða fólk um afleiðingar ólöglegs
upp- og niðurhals og koma í veg
fyrir það. „Hallgrímur Kristinsson,
sá sem ég tók við af byrjaði hérna
í hlutastarfi og smám saman hefur
þetta undið upp á sig. Undanfarin
4 til 5 ár hafa verkefnin gefið tilefni
til þess að hafa starfsmann sem
ræki batteríið. Við höfum einnig ný-
lega tekið við hlutverki Kvikmynda-
skoðunar.“