blaðið - 14.09.2006, Side 24

blaðið - 14.09.2006, Side 24
32 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 blaöiö Talar, hlustar og gefur ráð Karl starfar sem sérþjónustuprestur hjá Þjóðkirkjunni á sviði áfengis- og fíknimála og segist fyrst og fremst reyna að gefa þeim, sem koma til hans, styrk og hvatningu. Karl segir kirkjuna afar velviljaða að hjálpa áfengis-, vímuefna- og spilafíklum að sigrast á vanda sínum og að trúin sé mikilvægur þáttur í að fólk nái bata. Karl var þing- maður Vestfjarðakjördæmis fyrir Samfylkinguna árunum 2001-2003 og getur vel hugsað sér endurkomu á Alþingi. Aðstandendur áfellast sjálfa sig Karl segir að skjólstæðingar sínir eigi það sameiginlegt að hafa á einhvern hátt þurft að mæta erfið- leikum í sínu lífi, vegna fíkniefna- eða áfengisneyslu sinnar eða annarra. ,Ég tala við fólk, hlusta á það og gef því ráð varðandi framhaldið. Fyrst og fremst reyni ég að uppörva fólkið og gefa því styrk og hvatningu,“ segir Karl, en bætir við að hann geri mikið af því að vísa fólki til annars fagfólks sem hafi meiri tök á því að kljást við vandann, t.a.m. á meðferðarheimili eða á göngudeild SÁÁ. Karl starfar mikið með að- standendum alkohólista og segir mikilvægt að gera þeim grein fyrir því að ástandið sé ekki á nokkurn hátt þeim að kenna. „Það eru svo margir sem að áfellast sig og halda að það sé þeim sjálfum að kenna að ástandið sé svona. Sumar konur halda að það sé þeim að kenna að eiginmenn þeirra séu alkar. Það er auðvitað algjör mis- skilningur," segir hann. „Aðstandendur eru oft foreldrar ungs fólks, sem eru orðnir ráðþrota vegna neyslu barna sinna. Neyslunni fylgir engin vinna, algjört athafnaleysi og óregla á lífinu. Fólíc veit aldrei hvar það hefur sinn nánasta. í sumum tilvikum býr það jafnvel við ótta og ógnanir. Fíknin er svo mikil að hún verður öllu yfirsterkari. Það er hægt að segja að það sé eins og einhver ófreskja leggist yfír alla siðgæðisvitund og allt það góða og fallega í manninum á meðan neyslan er í gangi. Þetta hefur náttúrulega gríðarlega mikil og slæm áhrif á fólk og er mjög erfitt að glíma við. Sem betur fer gera Al- Anon samtökin kraftaverk og hafa verið mörgum aðstandendum mikil blessun,“ segir Karl. Trúin fyllir upp í tómarúmið Liður í starfi Karls er að hafa umsjón með svonefndum æðruleysismessum. Fyrsta æðruleysismessa vetrarins verður í Dómkirkjunni næsta sunnu- dag og munu tónlistarmenn leika undir söng, en þessar messur eru gjarnan með léttu yfirbragði. „Þær byggjast upp á gleðiríkum söng og svo kemur einhver og ræðir um eigin reynslu, ofast einstaklingur úr AA eða Al-Anon. Við störfum í anda 12 spora kerfisins og erum undir þeim merkjum. 12 sporin eru okkur leiðbeining enda erum við flest aðstandendur eða óvirkir alkohólistar sem stöndum að þessu," segir Karl. Hann hefur komið að æðruleysismessum víðar en í Dómkirkjunni, t.a.m. á Akureyri, Húsavík og Akranesi. Hann segir að allir séu velkomnir á æðruleysismessurnar og telur að allir geti haft gagn og gaman af því að koma þangað. „Við viljum hvetja alla til að koma. Fólk úr öllum áttum er farið að mæta í þessar messur vegna þess að þær höfða til mikið stærri hóps en bara alkohólista og aðstandenda þeirra. Reyndar er ég á þeirri skoðun að flestir íslendingar hafi kynnst á einhvern hátt ömurleika fíkniefna og alkohóls. Það þekkja eiginlega allir einhvern sem er að glíma við þennan vanda,“ segir Karl en er á því að enn sé mikill skortur á stuðningi og styrk við það fólk sem er að reyna að koma sér út úr vímuefnum og þá sem hlúa að þeim. Hann segir æðruleysismessurnar vera gott dæmi um hversu velviljuð kirkjan sé starfi AA-samtökanna og Al-Anon. „Kirkjan gerir sér grein fyrir því að fólk, sem er að ganga frá altari Bakkusar og dýrðarljóma barsins, þarf að fá andlega vakningu. Kirkjan vill styðja þar við, enda gefur trúin fólki gleði og von. Þegar menn eru að hætta þarf að koma eitthvað annað í staðinn. Menn hafa lagt líf sitt og kraft í að vera í neyslunni, að útvega sér vín eða dóp. Þegar því sleppir, hvað kemur þá í staðinn? Þá myndast tómarúm og upp í þetta tómarúm verður að fylla. Þá verður trúin, eða einhver hliðstæð kennd, að koma í staðinn. Það verður að vera einhvers konar andleg vakning." Spilafíknin hrikaleg Spilafíkn hefur verið mikið í umræðunni í þjóðfélaginu að undanförnu og vitað er til þess að þrír íslendingar hafa stytt sér aldur á árinu vegna sjúkdómsins. Karl segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki unnið mikið með spilafíklum hafi hann kynnst því hversu hrikaleg spilafíknin sé. „Ég er ekki mikill fræðingur í þessum málum, en spilafíklar hafa komið til mín og ég hef rætt við þá og bent þeim á að leita aðstoðar hjá

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.