blaðið - 14.09.2006, Síða 39
blaöiö FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2006
47
Að Sylvester Stallone er fæddur 6. júli 1946 i New York. Hann er kallað-
ur Sly og stundum er millinafnið hans skráð sem Enzio en móðir hans
vildi heldur hafa það Gardencio.
David Hasselhoff segir að Díana prinsessa hafi reynt við sig:
Díana var heilluð af Hasselhoff að hans sögn
Leikarinn og sjarmatröllið David
Hasselhoff segir að Díana prinsessa
hafi verið mikill aðdáandi sinn og
daðrað við sig þegar þau hittust á sín-
um tíma. Strandvörðurinn er í Lund-
únum um þessar mundir að kynna
nýja bók sína, sem ber hið skemmti-
lega heiti „Making Waves“, og ræddi
afþví tilefni um kynni sín af Díönu.
Hasselhoff og Díana hittust í gleð-
skap árið 1993 og segir hann að Díana
hafi gengið upp að sér og sagt: „Þú
lítur miklu betur út í fötum“ en leik-
arinn var, sem kunnugt er, löngum
stundum afar fáklæddur í þáttunum
Strandverðir. Þessu svaraði hann:
„fæja, þú lítur nú ekki sem verst út
sjálf.“ Þá sagði hann að fyrrum eig-
inkona sín, Pamela Bach, hafi orðið
æfareið yfir daðrinu, en þau skildu í
byrjun þessa árs. Hasselhoff greindi
einnig frá því á blaðamannafundin-
um að hann hefði hitt Harry, son Dí-
önu og Karls Bretaprins, á pólóleik í
sumar.
„Ég gekk beint upp að honum og
sagði: „Heyrðu, ég þekkti mömmu
þína og mér fannst hún frábær."
EITTHVAÐ FYRIR...
^ ...upprennandi blaðamenn
Shattered Glass Stöð 2
kl. 23.35
Áhugaverð kvikmynd byggð á sann-
sögulegum atburðum um ungan
bráðefnilegan blaðámann sem var
rekinn með skömm eftir að í ljós
kom að hann hafði skáldað fjölda
greina sinna og viðtala. Hayden
Christensen fer með hlutverk blaða-
mannsins unga, Stephen Glass, en
Christensen er best þekktur fyrir
hlutverk sitt sem Anakin í Star
Wars.
Umræddur Glass var blaðamaður
á dagblaðinu New Republic og í leit
að skjótfengnum frama greip hann
til þess ráðs að búa til áhugaverðar
fréttir eftir eigin ímyndunarafli. Á
þremur árum, frá 1995 til 1998, skrif-
aði hann 41 grein í dagblaðið og
voru minnst 27 þeirra skáldaðar að
hluta til eða með ölli^
^ ...útivinnandi eiginmenn
Aðþrengdar eiginkonur
Sjónvarpið kl. 23.30
Margverðlaunaðurbandariskursjón-
varpsþáttur sem hefur notið gríð-
arlegra vinsælda frá því hann kom
fram á sjónarsviðið 2004. Höfundur
þáttanna, Marc Cherry, hafði rætt
við fjölmargar sjónvarpsstöðvar í
Bandaríkjunum í von um að fá þátt-
inn framleiddan en kom alls staðar
að luktum dyrum. Það var svo loks
ABC sem keypti hugmyndina og
reyndist það hinn mesti happafeng-
ur, enda eru Aðþrengdar eiginkonur
á góðri leið með að verða einn vin-
sælasti sjónvarpsþáttur stöðvarinn-
ar frá upphafi. Þá hefur leikhópur-
inn fengið afar jákvæða gagnrýni og
eru menn almennt sammála um að
þær Teri Hatcher, Felicity Huffman,
Marcia Cross og Eva Longoria túlki
sínar stórskemmtilegu persónur af
stakri snilld.
collezione
Berivenuto
b
gatt
e(\ _70 %
LÁUHÚSIN (VIÐFAXAFE
SanD
strellson
outlet
eterna
engjutilboð!
Ótrúleg verd!
BELLINl
CANALI
j j
BELLINI
REDGREEN
BELLINl
coliszio'te