blaðið - 01.12.2006, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaðið
VEÐRIÐ í DAG
Urkomuiítið
Norðan 15 til 23 norövestantil, en hægari
sunnan- og suðvestanátt austantil.
Áfram slydda eða rigning, en úrkomu-
lítið suðvestan- og sunnanlands eftir
hádegi. Hiti víðast 0 til 6 stig, hlýjast við
suðurströndina.
Á MORGUN
Léttir til
Norðan 10 til 15 m/s og snjó-
koma eða éljagangur um norðan-
og vestanvert landið, en hægari
sunnan- og austanlands og léttir
til. Frost 1 til 6 stig, en hiti við
frostmark við ströndina.
VÍÐA UM HEIM |
Algarve 17
Amsterdam 6
Barcelona 14
Berlín 10
Chicago -8
Dublin 12
Frankfurt 7
Glasgow 12
Hamborg 7
Helsinki 7
Kaupmannahöfn 9
London 11
Madrid 12
Montreal 12
New York 15
Orlando 19
Osló 8
Palma 23
París 8
Stokkhólmur 10
Þórshöfn 9
Danmörk:
Dýrt spaug
Danska utanríkisráðuneyti
hefur beðið um aukafjárveit-
ingu vegna aðgerða í kjölfa
skopmyndanna af Múhamme
spámanni. Beiðnin hljóðar upp
á andvirði 340 milljóna íslenskra
króna. Þessi aukni kostnaður
stafar af hertri öryggisgæslu
við sendiráð viða um heim,
brottflutning fólks og fleiru.
Deilan kom upp í upphafi
árs eítir að skopmyndir af
Múhammeð spámanni birtust
í Jyllands-Posten fyrir rúmu
ári. Skopmyndirnar vöktu
mikla reiði meðal múslíma..
fírtP
m
ri;
i
Landspítali:
108 prósenta
útgjaldaauki
Útgjöld til ríkisspítala hafa
aukist um 108 prósent á síðasta
áratug, sem er árleg meðalhækk-
un sem nemur 8,5 prósentum.
Þetta kemur fram í vefriti
Fjármálaeftirlitsins. Á árinu 1998
námu samanlögð rekstrarútgjöld
sjúkrahúsanna í 14.722 milljón-
um króna á verðlagi þess árs, en
gert er ráð fyrir að útgjöldin
verði 30.614 milljónir árið 2007.
Lögregla skoðar kynþáttaníð sem ungmenni fengu sent:
Fengu ógnandi
ursbréf í pósti
i\iamsmanni misboðið vegna bréfsins ■ Heigulsháttur
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Mér er bara klárlega misboðið,“ segir
Sveinn Arnarsson lögfræðinemi en
hann ásamt fleirum fékk sent hat-
ursbréf í garð múslý}«ú.pÍSÚ á núð-
vikudagskvöld. Bréfið var póstlagt í
Reykjavik en ásamt Sveini fengu að
minnsta kosti tveir Hafnfirðingar
bréfið. Allir eru þeir á þrítugsaldr-
inum og virkir í pólitík.
„Þetta er óhugnanlegt hatursbréf og
ég tilkynnti það strax til lögregl-
unnar,“ segir Sveinn en lögreglan
í Hafnarfirði og á Akureyri hafa
fengið bréfin til rannsóknar. Að
sögn Sveins skilur hann ekkert
í því af hverju hann hafi fengið
bréfið af öllum mönnum enda
ekki þekktur fyrir neitt annað
en umburðarlyndi.
Bréfið er augljóslega heima-
tilbúið og mikil vinna lögð í að snúa
út úr ritningum
Kóransins.
Einnigeruslá-
andi myndir
sem fylgdu
bréfinu.
sýnir
ótrúlegan
heiguls-
hátt að
merkja
Óhugnanlegt haturs-
bréf Sveinn Arnarsson
lögfræðinemi fékk bréf-
ið i pósti og segir það
óhugnanlegt hatursbréf.
Ólöglegt kynþáttaníð Bréfið inni-
heldur gróft kynþáttaníð og hatur í
garð múslíma. Blaðið tekur ekki þátt
i slíku og því er textinn óskýr sem og
myndirnar.
ekki bréfið,“ segir Salmann Tamimi,
formaður Félags múslíma á íslandi.
Hann líkir hegðun bréfaskrifara við
ofsóknir gegn gyðingum í seinni
heimsstyrjöldinni. Hann segir að það
þurfi að skerpa á lögum sem varða
kynþáttníð gagnvart nýbúum en það
Heiglar sem á að vorkenna Salmann
Tamimi, formaður Félags múslíma á Islandi,
segist vorkenna bréfaskrifurum og telur þá
heigla fyrir að merkja ekki bréfið.
ólöglegt að viðhafa niðrandi um-
mæli um aðra kynþætti eða þjóðir.
Brot á þessum lögum geta varðað
allt að tveggja ára fangelsi.
„í raun og veru vorkenni ég
þessum mönnum enda ekki hollt
að hata,“ segir Salmann um hegðun
bréfaskrifara. Hann segir þá ekki
sýna kristilegan kærleik í verki og
því undarleg hræsni sem brýst þarna
fram. Hann segir að íslenska þjóðin
þurfi ekki á svona einstaklingum
að halda því þeirra markmið er ein-
göngu að hræða.
Ekki er ljóst hver sendi bréfin. Eina
undirskriftin er Group 1627 en Tyr-
kjaránið átti sér stað það ár.
Allir þeir sem vitað er að hafi
fengið bréfin eru virkir í stjórn-
málum á vinstri vængnum og á þrí-
tugsaldrinum. Samkvæmt einum við-
mælenda Blaðsins taldi hann að þetta
væri ein leið fyrir kynþáttahatara til
þess að fá athygli og umfjöllun.
Seiður lands og sagna IV
Giæsilegt afrek í
íslenskri bókargerð
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 R.
skrudda@skrudda.is
Fjórða bókin
í hinum
glæsilega
bókaflokki
Gísla
Sigurðssonar
blaðamanns
og ritstjóra.
I þessari bók
er fjallað um
Mýrar og
Snæfellsnes.
Eins og í fyrri
bókum er efnið
sótt í sögu
þjóðarinnar frá
landnámi til
okkar tíma. Á
fimmta hundrað
ljósmyndir, málverk, teikningar
og kort prýða bókina.
Fólskuleg árás á Harald í London:
Óbreytt líðan
„Það stóð til að vekja hann um
helgina en það tókst ekki,“ segir
Hörður Helgi Helgason, vinur Har-
alds Hannesar Guðmundssonar.
Haraldur varð fyrir fólskulegri árás
fyrr í þessum mánuði þegar hann
gekk heim á leið í London.
Haraldur liggur enn meðvitundar-
laus á spítala í London þar sem hann
hefur verið búsettur síðastliðin sjö
ár. Læknar reyndu að vekja hann
um helgina með því að taka hann af
svefnlyfjum en allt kom fyrir ekki.
„Hann er enn á gjörgæslu vegna al-
varlegra áverka. Líf hans er í hættu,“
segir Hörður. Fjölskylda Haralds
hefur verið hjá honum í London
en kona hans hefur ekki vikið frá
rúmi hans síðan atvikið átti sér stað.
Núna skiptist fjölskyldan á að vera í
London en móðir hans hefur verið
allan tímann hjá honum.
Fjölskylda Haralds vill koma
á framfæri þökkum til fólks sem
hefur hugsað hlýlega til hans.
Einnig hefur söfnun gengið vel og
að sögn Harðar er stuðningur fólks
ómetanlegur.
Maður var handtekinn í tengslum
við árásina í síðustu viku en honum
var sleppt stuttu síðar þar sem hann
hafði fjarvistarsönnun. Samkvæmt
Herði telur lögreglan enn að hann
tengist málinu. Rannsókn er enn í
gangi en myndavélar í hverfinu þar
sem árásin átti sér stað hafa hjálpað
talsvert við rannsóknina. I ljós kom
að veski Haraldar var stolið.
Samkvæmt Herði er ekki öll von úti
um að Haraldur vakni og nái bata.
Matvöruverð lækkar:
Frumvarpi
hraðað
Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að flýta afgreiðslu á frumvarpi
sem miðar að lækkun matvöru-
verðs. Upphaflega átti að leggja
frumvarpið fram eftir áramót en
nú er stefnt að því að afgreiða
það fyrir jól. Var frumvarpið
lagt fram á Alþingi í gær.
Verði frumvarpið að lögum
munu vörugjöld af matvælum
falla niður frá og með 1. mars á
næsta ári. Einnig verður virðis-
aukaskattsþrep matvöru lækkað
úr íjórtán prósentum í sjö einnig
á veitingaþjónustu, geisladiskum.
írland:
Best að búa á
eyjunni grænu
Breska vikublaðið The Econ-
omist hefur birt lista yfir þau
lönd sem best var að búa í árið
2005 samkvæmt lífsgæðavísi-
tölu ritsins. írland er í fyrsta
sæti, Sviss í öðru og Noregur í
því þriðja. Island er í sjöunda
sæti á listanum. Aðeins eitt
land á lista yfir tiu bestu löndin
er utan Evrópu: Ástralía.
Þrátt fyrir gott gengi Evrópu-
ríkja eru stórveldi álfunnar
neðarlega á lista. Frakkland,
Þýskaland og Bretland skipa
25., 26. og 29 sæti á listanum.
Líkamsárás:
Fékk tólf
mánaða dóm
Mbl.is Hæstiréttur hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur um að karlmaður sæti 12
mánaða fangelsi fyrir að slá
tvo menn hnefahögg í andlitið.
Annar mannanna, sem ráðist
var á, fékk blæðingu inn á höf-
uðkúpu og hinn nefbrotnaði.
Maðurinn neitaði sök og
sagðist ekki hafa verið á
vettvangi á umræddum tíma.
Hins vegar lá fyrir staðfest-
ing á notkun greiðslukorts
mannsins nálægt vettvangi um
einum og hálfum tíma áður
en árásin átti sér stað, ásamt
því að vitni voru að árásinni.