blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 43
blaðið
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006 43
talsverðar fjárhæðir meðal annars í
ómálað málverk og í að fá að sjá um
veðurfréttatíma á NFS. Stefán seg-
ist ekki skilja þá gagnrýni. „Menn
verða náttúrlega að horfa á það
þannig að uppboðið er leið til að
safna peningum. Fólk er að gefa pen-
inga í uppboðinu en ekki að kaupa
hlutina. Það verður að gera mjög
skýran greinarmun á því. Þarna var
til dæmis boðið í að fá að vera veð-
urfréttamaður á NFS. Sá veðurfrétta-
maður hefur aldrei stigið á stokk
heldur var þetta bara leið til að gefa
peninga. Ég hef talað við styrktarað-
ilana og ég veit að þeir eru að gefa
af einlægum áhuga til UNICEF, ekki
til þess að taka þátt í að kaupa ein-
hverja hluti,“ segir Stefán og bætir
við að þetta kvöíd hafi 83 milljónir
safnast.
„Þetta fer náttúrlega til að hjálpa
börnum og ég var í Gínea Bisá og
varð vitni að því þegar 180.000 mal-
aríunetum var dreift fyrir þessa
peninga. Það er hægt að segja með
nokkurri vissu að þeir peniningar
og þessi malaríunet koma í veg fyrir
dauða 4.000 barna vegna malaríu.
Mér finnst ekkert hallærislegt eða
ósmekklegt við það. Þarna er fólk að
gefa af einlægni og peningarnir fara
í að hjálpa þeim sem þurfa á aðstoð
að halda,“ segir Stefán.
Dagur rauða nefsins
Undanfarna daga hefur lands-
nefnd UNICEF staðið fyrir fjáröflun-
arátaki í tilefni af degi rauða nefsins
og hafa rauð nef og geisladiskar með
laginu Brostu í flutningi Baggalúts
Dagur rauða nefsins
Haldið verður upp á dag
rauða nefsins i fyrsta
skipti hér á iandi í dag en
það fé sem safnast renn-
ur til starfs Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
4«t
staðið fólki til boða. Átakið nær
hámarki í dag á degi rauða nefs-
ins og verður meðal annars efnt
til skemmtidagskrár á Stöð tvö í
kvöld kl. 19:40 þar sem landsþekktir
skemmtikraftar koma fram á milli
þess sem verkefni UNICEF víða um
heim verða kynnt.
Hugmyndin að degi rauða nefsins
kemur að utan en dagurinn hefur
verið haldinn í Bretlandi undanfarin
20 ár auk fleiri landa. Stefánsegir að
hugmyndin að baki deginum sé í
raun mjög einföld.
„Það er okkur mjög eðlislægt að
gleðjast og gleðja aðra. Það er gott
tákn um það að kaupa rautt nef og
ágóðinn af því rennur til þess að
gleðja börn. Nefið sjálft notar maður
til að gleðja sig og fólkið í kringum
sig þannig að þetta er mjög góð leið
til að safna peningum og hefur gef-
ist mjög vel,“ segir Stefán og bendir
á að dagsetningin sé engin tilviljun.
1. desember er alþjóðlegi alnæmis-
dagurinn og UNICEF stendur nú að
alþjóðlegu átaki til að vekja athygli
á hvernig alnæmi snertir börn í
auknum mæli. Þar fyrir utan skipar
dagurinn sérstakan sess í sögu
fslands.
ísland talandi dæmi um árangur
„Okkur fannst mjög viðeigandi að
halda þetta fyrsta desember sem er
fullveldisdagur íslands. Frá því að fs-
lendingar fengu fullveldi hefur staða
þeirra náttúrlega gjörbreyst bæði
hvað varðar tekjur og velmegun en
líka hvað varðar heilsu barna. Heilsa
Þarna var til dæmis
boðið í aðfá að vera
veðurfréttamaður á
NFS. Sá veðurfrétta-
maður hefur aldrei
stigið á stokk heldur
var þetta bara leið til
að gefa peninga.
barna árið 1918 á íslandi var ekkert
sérstaklega góð og okkur hefur tek-
ist að gerbreyta því hér.
Það er mjög athyglisvert að velta
[iví fyrir sér að fyrir 150 árum var
sland eitt fátækasta ríki í heimi
og með eina hæstu tíðni ungbarna-
dauða í heiminum. Á þessum til-
tölulega stutta tíma, þremur manns-
ævum eða svo, hefur fsland orðið
eitt af ríkustu ríkjum í heimi með
lægstu tíðni ungbarnadauða. Við
erum talandi dæmi um hvernig
hægt er að ná árangri. Þetta er hægt
að gera annars staðar og ég er full-
viss um það að eftir 150 ár munum
við líta fram á allt aðra stöðu. Það
næst árangur og verkefnin skila sér.
Tíðni ungbarnadauða hefur lækkað
og það eru fleiri krakkar sem fara í
skóla núna þannig að árangurinn er
að skila sér. fslendingar nutu stuðn-
ings til að ná þessum árangri og
þegar spurt er hvort þetta sé hægt
þurfum við bara að horfa í spegil-
inn,“ segir Stefán Ingi Stefánsson að
lokum.