blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
■ ITIIWjWDimiWiHii.
blaöiö
Jack Schidt er full alvara. Hann
vill láta dýrka sig. Hann þarfnast
þess. Hann veit líka að fólk þarfn-
ast þess að dýrka hann. Hann
er holdgervingur gullkálfsins.
Hann gengur í rauðum, þröngum
og kynþokkafullum gallabuxum, spilar á
loftgítar og vílar ekki fyrir sér að stinga sér
í dansandi mannhafið til að láta bera sig á
höndum.
„Það hefur tíðkast lengi að dýrka gullkálf-
inn af kappi,” segir Margeir Ingólfsson hljóð-
hönnuður um partýglaða og óstýriláta alter-
egóið sitt Jack Schidt.
Margeir hélt vinsæl diskókvöld einu sinni
á ári í ío ár. Aðspurður um hvers vegna disk-
ókvöldin hafi tekið enda, segist hann hafa
viljað snúa sér öðru og prófa eitthvað nýtt.
Diskókvöldin hafi verið gífurlega vinsæl en
honum hafi fundist hann þurfa að leita nýr ra
fanga. „Því var það að ég gerði upp diskótíma-
bilið,” segir hann. „Og eftir það steig Jack
Schidt fram á sjónarsviðið.”
Good shit frá Jack Schidt
„Jack er bull, þ.e.a.s. hann er fyrir bullið í
sjálfum mér. Þótt að auðvitað sé alvara í bull-
inu,” bætir Margeir við. „Jack kemur með
rokkið inn í dj-bransann og það er gaman að
því að þróa karakterinn áfram. Jack Schidt
er eini dj-inn sem hendir sér úr dj-búrinu,”
bætir hann við og segist aðspurður ekki setja
upp gullkálfsgrímuna með hornin áður en
hann hendir sér út í mannhafið. „Sem betur
fer hefur Jack verið gripinn hingað til.”
Jack Schidt gefur út efni sitt hjá Pineapple
Records sem er útgáfa á vegum GusGus. Kom-
in er út vínýlplata sem hefur fengið glimrandi
góðar viðtökur hjá þekktustu plötusnúðum
heims. í Nakta apanum fást einnig bolir með
Jack Schidt og gefins hljóðblöndur á disk sem
ber heitið Good Shit með Jack Schidt, meðan
birgðir endast.
Jack vinnur stundum efni sitt með Phil
Harmonic, vini sínum. Menn með stór nöfn
þar á ferð. Aðspurður um nafngiftina segir
Margeir að þetta sé leikur að orðum. „Eng-
inn vissi Jack Schidt um Jack Schidt þegar
hann kom fram í fyrstu. Ég hef lengi verið að
leika mér með alls kyns bull og hef þá komið
fram undir eigin nafni, en maður er að reyna
að vera virðulegur hugbúnaðarsérfræðingur
á daginn og þá er hentugt að finna bullinu
stað í Jack.”
Margeir staðfestir að Jack Schidt eigi valda-
mikla vini og hann borði oft sushi með for-
setanum.
Nú seinna í mánuðinum kemur út remix
sem Jack Schidt vinnur úr lagi í flutningi
Stinu Nordenstam. „Þá er bara að sjá hvernig
Jack fer með Stinu Nordenstam,” segir Marg-
eir en Stina Nordenstam er virt söngkona sem
er þekkt fyrir að vera lágstemmd og einlæg.
f partýstemmningu í austantjaldslöndunum
Margeir er alin upp í Breiðholti. „Ég hef
samt búið stóran hluta ævinnar í miðbæ
Reykjavíkur,” bætir hann við. Aðspurður
um hvort hann kunni að breika, segist hann
ekki vera fær í þvi. „Ég vildi að ég kynni að
breika,” segir hann. En ég vinn reyndar með
fyrrverandi íslandsmeistara í breiki, Stefáni
Baxter. Hann tekur ótrúlega góða regnhlíf á
móti vindi,” bætir hann við og hlær.
Margeir hefur ferðast mikið undanfarið
og það vekur eftirtekt að hann hefur spilað
mikið í Austur-Evrópu. „Það er skemmtilegt
að spila í þessum löndum,” segir hann frá.
Spilamennska þar á sér ekki langa sögu
þannig að stemningin er fersk. Ibúar land-
anna eru nýlega lausir undan oki kommún-
ismans og því er mikill uppgangur í tónlist
og menningu þessarra landa. Partýið er rétt
að byrja,” bætir hann við. Margeir er nýkom-
inn frá Lettlandi. „Gaman að heimsækja
þessi lönd því þetta eru lönd sem ekki er
venja að ferðast til.
Margeir hefur nýlega sent frá sér nýja
plötu sem ber nafnið Blue Lagoon Soundtr-
ack. Margeir bjó til plötuna með það að
markmiði að lýsa eiginleikum og stemningu
Bláa Lónsins þ.e. einstakt samspil orku, vís-
inda og náttúru. Tónlistin á plötunni kemur
úr ýmsum áttum og þar er meðal annars að
finna lög með Daníel Ágústi, Filur & Stina
Nordenstam og Ninu Simone .
Margeir segist ekki þreytast á löngum
vinnutíma þrátt fyrir að vera fjölskyldumað-
ur. „Það þarf að ýta við mér til að slökkva
á tónlistinni þegar stöðunum lokar,” segir
hann. „Ég hef mikinn áhuga og ástríðu til
að starfa að því sem ég geri nú og það heldur
mér gangandi.”
Heimasíða Jack Schidt: www.jack schidt.
viðtal