blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 46

blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 1. D |006 Bakað með börnunum Gleymiö ekki börnunum þegar smákökurnar eru bakaðar fyrir jólin. Börnunum finnst alltaf gaman að baka og það er lítið mál að finna verkefni sem hæfa öllum aldurshóþum. Byrja tímanlega Það er ekki úr vegi að huga að jólamatnum strax, sérstaklega ef ætlunin er að elda eitt- hvað nýtt. Þá er nægur tími til að viða að sér uþpskriftum og velta fyrir sér meðlæti og sósu, blaðið matur@bladid.net Lykt jólanna Það eru margar hefðir tengdar við jólin og ein þeirra er vafalaust ilmurinn af mandarínum og eplum. Búðarborðin svigna undan þessum kræsingum nokkrum vikum fyrir jól og flestir landsmenn fjárfesta í nokkrum mandarínum eða svo. Yngri kynslóðinni finnst kannski lítið jólalegt við epli en þeir sem muna tímana tvenna eiga barn- æskuminningar þar sem vart voru jól án eldrauðra epla. Hinir sömu rifja upp að eplin þrögðuðust allt öðruvísi í þá daga og lyktuðu jafnvel enn þetur. Þeir sem yngri eru tengja jólin frekar við mand- arínurnar safaríku sem lykta líkt og jólin séu komin. Til að fá þennan Ijúffenga ilm í húsið er tilvalið að kaupa nokkrar mandarínur og epli og hafa í opinni skál í eldhúsinu eða á borðstofuborðinu. Margir kjósa að stinga negulnöglum í mandarínurnar og þá er jólailmur- inn fullkomnaður. Hnetujól Hnetur er einkar bragð- góðar og ekki er verra að þær eru jólalegar. Bragðgóðar og fallegar Það er jaínan mikið um konfekt, smákökur og önnur sætindi á aðventunni og jólahátíðinni sjálfri. Þótt sætindin séu venjulega einstaklega bragðgóð þá fylgja þeim því miður nokkur aukakíló. Margir reyna því að halda sig frá sætindum, að minnsta kosti yfir að- ventuna, svo kílóin hrúgist ekki upp. Ef sætindaþörfin verður æpandi er alltaf gott að hugga sig með rúsínum og hnetum sem auk þess eru einstaklega jólalegar. Hnetur eru ekki einungis borðaðar yfir jólin heldur eru þær iíka fullkomnar til að skreyta með. Piparkökubakstur Góða skapið nauðsynlegt Piparkökur eru ómiss- andi hluti jólanna og ilmurinn af nýbökuðum piparkökum fyllir mörg heimili í desember. Ásgeir Sand- holt konditor segist aldrei baka piparkökur heima hjá sér enda sé meira en nóg að baka í vinnunni. „Til að piparkökurnar verði góð- ar er nauðsynlegt að vera í góðu skapi þegar maður bakar þær. Já- kvæðnin virkar mjög vel og þá er hægt að vera jákvæður ef illa gengur,“ segir Ásgeir sem segir að það sé ekki erfitt að baka pipar- kökur. „Það er ekkert erfitt þegar maður kann það. Eina ráðið sem ég get gefið um piparkökubakst- ur er þetta gamla góða að passa sig á piparnum og nota ekki of mikið af honum. Uppistaðan í piparkökuuppskriftinni hér að neðan er meira engifer heldur en pipar. Engifer gefur mildara og betra bragð en venjulegur pipar.“ Klassík deyr aldrei í Bakaríi Sandholt eru bakaðir tugir kílóa af piparkökum að sögn Ásgeirs. „Við búum til allt mögulegt úr deiginu og það er verið að panta ýmislegt frá okkur, konur, karla, húsveggi og fleira. Við hugsum um handverkið og bökum í höndunum í stað þess að stytta okkur leið með einhverjum vélum.“ Aðspurður hvort fólk fái aldrei leiða á pipar- kökum segir Ásgeir að hann telji að klassík deyi aldrei. „Ég hef til dæmis ekki breytt uppskriftunum frá langafa og þetta eru langbestu piparkökurnar í bænum, þó ég segi sjálfur frá. Þær eru orðnar að klass- ík sem má ekki breyta of mikið. Ég held að fólk kjósi klassíkina þó það vilji alltaf prófa eitthvað nýtt.“ Konfektið vinsælt Ásgeir segir að það sé því mjög mikið álag í desember. „Ég fram- leiði mikið af konfekti og konfekt- jólatrjám núna. Konfektjólatréð er nokkurs konar konfektkassi í líki jólatrés. Tréð má vera á borðum og gestir geta borðað það. Það eru marg- ir sem kjósa frekar að fá sér konfekt í eftirrétt í staðinn fyrir kökur eða ís.“ Ásgeir lætur fylgja með dýrindisupp- skrift að ljúffengum piparkökum. svanhvit@bladid.net Iflff »■# Iki-ir:?-1 krf*- Ásgeir Sandholt konditor „Til að piparkökurn- ar verði góðar er nauðsynlegt að vera í góðu skapi þegar maður bakar þær. “ mmm Piparkökur (ca. kíló af deigi) 400 grömm hveiti 10 grömm natron 400 grömm púðursykur 20 engifer ferskt 200 grömm smjör 50g kanill 3 egg 50 grömm pipar eða negull 10 grömm lyftiduft Hrærið varlega saman sykri og smjöri og bætið eggjunum saman við. Bætið síðan þurrefnunum út í. Kælið, rúllið í pylsur og skerið í ca. 1 cm þykkar sneiðar. Dreifið á bökunarplötu og bakiðvið ca. 170-180°C. Jólamaturinn minn Borða jólamatinn hjá mðmmu Nadia Banine sjónvarpskona þarf ekki að hafa mikið fyrir jóla- matnum í ár því hún er alltaf hjá móður sinni á aðfangadag. „Það er hefð fyrir því að hafa hangikjöt á jólunum hjá mömmu. Ég hef nán- ast alltaf verið hjá mömmu nema þegar ég bjó erlendis. Að vísu kom öll fjölskyldan heim til mín í fyrsta skipti í fyrra. Mamma fékk að ráða hvað var í matinn og það var hangi- kjöt. Ég er svo sem ekkert vanaföst með jólamatinn en mamma er það og hún fær að ráða þessu.“ Nadia segir að það sé engin hefð fyrir því hvað er í matinn aðra jóladaga. „Við erum nýbúin að upp- götva mjög góðan mat í Nóatúni, stóran og reyktan jólahana. Við borðum oft hanann á annan í jól- um eða jóladag. Mér finnst haninn Hefð Nadia Banine borðar oftast hangikjöt á aðfangadag. „Það er hefð fyrir að hafa hangikjöt á jólunum hjá mömmu." rosalega góður og hann er aðeins ur æðislega góður og svo er ég far- léttari en lambakjötið. Auk þess in að halda upp á reykta hanann finnst mér léttreyktur lambahrygg- sem ég elda alltaf sjálf.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.