blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 44
EMBER 2006
Mezzaluna
Mezzaluna er hnífur með tveimur handföngum og er ómissandi verkfæri til að
saxa kryddjurtir, súkkulaði og annað sem þarf að saxa smátt. Nafnið er ítalskt
og þýðir hálfmáni og vísar í lögun hnífsins. Hnífurinn er voldugur en ekki eins
hættulegur og hann lítur út fyrir að vera þar sem það er næstum ómögulegt að
skera sig á honum þegar báðar hendur halda utan um handföngin tvö.
blaöiö
Nammijól
Nammi er ekki bara sætt í munni heldur einnig sætt á borði í
hlutverki jólaskrauts. Hægt er að búa til jólakalla úr sykurhúðuðu
hlauþi og einnig er fallegt að skreyta aðventukransinn með hlaupi
og sykurstöfum. Það eina sem þarf að varast við svona girnilegt
skraut er að það verði borðað áður en jólin koma.
tlrjiZ '
matur matur@bladid.net
Nigella á skjáinn
Áhugamenn
um mat og
lífsins lysti-
semdir hrópa
húrra og láta
fara vel um sig
fyrir framan
sjónvarpið á
miðvikudags-
kvöldum þar
sem nautna-
dísin íturvaxna
Nigella Lawson er aftur komin
á skjáinn. í fyrsta þættinum
töfraði Nigella fram afslaþpaða
veislu; eldheitt chili með maís-
brauði, gamaldags rækjukokteil
og syndsamlegan eftirrétt sem
samanstóð af súkkulaðiköku,
kirsuberjum, búðingi og rjóma.
Nigella töfrar fram réttina af al-
kunnri snilld og lætur skáldlegar
setningar um rétt þeyttan rjóma
fljóta með.
Djúpsteiktir
bananar
Þetta er einfaldur og hollur
skyndíbiti fyrir krakka.
Uþþskriftin miðast við sex.
• 120 ml mjólk
• 2 bananar, maukaðir
• 250 g hveiti
• 3 g salt
• 10 g lyftiduft
• 2 egg, þeytt
• 15 g smjör, brætt \
• 945 ml grænmetisolía,
til að steikja úr
• 65 g flórsykur
Blandið saman í skál banönum
og mjólkinni. Bætið síðan við
hveiti, salti og lyftidufti. Að
lokum er bræddu smjöri og eggj-
unum hrært saman við.
Hitið olíu í potti. Mótið litlar
kökur úr deiginu og djúpsteikið
þar til þær verða gullinbrúnar.
Þegar kökurnar eru teknar upp
úr feitinni eru þær lagðar á
eldhúspappírtil þerris. Sigtið
flórsykur yfir þær og berið
fram heitar.
Jólaundirbúningurinn er löngu
byrjaður hjá Nönnu Rögnvaldardótt-
ur, matgæðingi og matarblaðamanni
hjá Bistró. „Við byrjuðum að undir-
búa jólin í október hér á blaðinu en
jólablaðið okkar kemur út í dag. Ég
er hins vegar ekkert byrjuð að und-
irbúa jólin heima hjá mér, nema í
huganum, þar er allt komið á fullt,“
segir Nanna þegar hún er spurð út í
undirbúninginn fyrir jólin.
Nanna segist ekki vera mikið að
festa sig í hefðum þegar kemur að
matargerð fyrir jólin, „Ég baka allt
frá þremur smákökusortum upp
í sautján, það fer eftir því hvernig
skapi ég er í hverju sinni. Það eru
kannski tvær smákökuuppskrift-
ir sem ég baka alltaf en hinar eru
einhverjar nýjar sem ég finn og hef
áhuga á að gera.”
Það sem mann langar að gera
Nanna segir að nú þegar mikill
annatími fer í hönd finnist henni mik-
ilvægt áð fólk finni sér tíma til þess
að slaka á og fólk eigi að nota jólatil-
standið til að slaka á en ekki láta það
auka á stressið. „Ég var einmitt að
skrifa grein um það fyrir jólablaðið
hvernig fólk getur auðveldað sér jó-
laundirbúninginn og greinin hefur yf-
irskriftina: Tíu leiðir til að lifa jólin af.
Það er hægt að stytta sér leiðir í mat-
argerðinni og sumt er hægt að kaupa
tilbúið og fólk á ekki að þurfa að búa
til allt frá grunni sérstaklega þegar
tíminn er af skornum skammti. I mín-
um huga á jólaundirbúningurinn að
snúast um það sem mann langar að
gera ekki það sem maður á að gera og
mitt mottó er að jólahefðir eru góðar
en jólakvaðir er slæmar.”
Nanna Rögnvaldardóttir er
alkunn fyrir snilldartakta
í matargerð Hún á séreitt
mottó þegar kemur að jóium
og það erað jólahefðir eru góð-
ar en jóiakvaðir eru slæmar.
Jólin byrja á Þorláksmessu
Nanna gerir ýmislegt meira þegar
kemur að matargerð en meðaljón-
inn þar sem hún hefur brennandi
áhuga á matargerð og er endalaus
uppspretta hugmynda. „Minn helsti
undirbúningur fyrir jólin er fyrir
jólaveislu sem ég held alltaf á Þor-
láksmessu. Þá er ég með opið hús
fyrir vini og kunningja þar sem ég
er með jólahlaðborð sem einkennist
af ýmsum réttum, sumir eru fastir
liðir, aðrir nýir og fer eftir því hverju
ég hef áhuga á hverju sinni og hvað
mig langar til að gera. Það eru marg-
ir sem koma til mín og margir gest-
anna segja að jólin byrji hjá mér. Ég
býð alltaf upp á jólaskinku sem ég
verka sjálf og síðan er ég með lamba-
læri, hangikjöt, fiskrétti og girnileg-
ar kökur.“
• 150 g rjómaostur með
svörtum pipar
• Va rauðlaukur, saxaður
nýmalaður pipar
• 1 vorlaukur (græni hlutinn),
mjög smátt saxaður
• 1-2 tsk. rauð paprika,
mjög smátt söxuð
• dill, steinselja eða vorlaukur
til skreytingar
Skerðu laxinn í litla bita og
settu hann í matvinnsluvél
ásamt rjómaosti og rauðlauk.
Láttu vélina ganga þar til þetta
er orðið að mauki. Kryddaðu
með pipar eftir smekk og
hrærðu smátt söxuðum vorlauk
og paprikubitum saman við.
Berðu maukið.fram í krukku
ásamt ristuðurti snittum eða
kexi eða smyrðu því á snit-
turnar eða kexið og skreyttu
kryddjurtum.
Nanna gefur lesendum hér ein-
falda og þægilega uppskrift að veislu-
borði Þorláksmessuboðsins.
Nanna segir að þessi uppskrift sé
einföld og fljótleg og hún hefur út-
fært hana á ýmsa vegu og haft hana
í boði í veislunni á Þorláksmessu.
Þennan rétt er líka hægt að nota
sem forrétt sem og fyrir þá sem vilja
gera vel við sig mitt í öllu jóíastress-
inu. Sjálf segist Nanna yfirleitt ekki
nota uppskriftir nema til hliðsjónar
og segir að þær eigi að nota sem við-
mið og uppsprettu hugmynda en
ekki sem heilagan sannleik.
Fjórir gæbaflokkar eru i bo&i:
Fyrsta flokks humarhalar, góbir humarhalar,
valdir skelbrotshalar eba smáhumar í súpur og smárétti.
Sannkallaöur sœlkeramatur fyrir alla!
Nú er tími fyrir humarveislu. Lokkandi og Ijúffengir
humarhalar bíba ykkar í hentugum umbúbum og
uppskriftir fylgja meb á bakhlibinni.
Vinnslustöðin 1/tl/
Vestmannaeyjum w J w
Oforskammaðar
súkkulaðibitasmákökur
24 kökur, undirbúningstími
20 mínútur
• 1 bolli gott súkkulaði,
gróft saxað
• 4 msk. ósaltað smjör
• 2/3 bollar hveiti
• Vi tsk. lyftiduft
• Vz tsk. salt
• 2 stór egg
• % bollar brúnn sykur
• 1 tsk. vanilludropar
• 1 Vz bolli súkkulaðibitar
Hitið ofninn á 180 gráður.
Bræðið 1 bolla af súkkulaði og
smjör saman í potti þartil það er
bráðið. Varist að blandan hitni um of.
Blandið hveiti, lyftidufti og salti
saman í skál.
Þeytið eggin, sykurinn og vanillu í
annarri skál þartil blandan er orðin
létt. Minnkið hraðann og blandið
súkkulaði og smjörbræðingnum
saman við. Blandið því næst hveiti-
blöndunni og að lokum súkkulaði-
bitunum saman við.
Setjið deigið með skeið á plötu
með bökunarpappír og hafið gott
pláss á milli kaknanna.
Bakið í 12-15 mínútur þar til kök-
urnar eru tilbúnar, þær eiga að vera
mjúkar í míðjunni.
Látið kökurnar kólna í 10 mínútur
og þá má gæða sér á þeim.