blaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaöiö
Símar alþingismanns hleraðir:
Dómari
til að
kallaður í ráðuneyti
samþykkja hlerun
■ Óeðlileg framkvæmd ■ Loftkenndar ásakanir ■ Vill öll skjöl á borðið ■ Ætlar alla leið
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bIadid.net
Sakadómari setti dómþing í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu að
beiðni ráðuneytisstjóra til þess að
hægt væri að leyfa hleranir á Hanni-
bal Valdimarssyni, þáverandi for-
seta Alþýðusambands Islands og
alþingismanns. Þetta kemur fram
í gögnum um hleranir sem Þjóð-
skjalasafnið hefur látið Ólafi Hanni-
balssyni, syni Hannibals, í té. Ólafur
segir framkvæmd málsins gagnrýn-
isverða og að beiðni um hleranir
hefðu byggst á loftkenndum ásök-
unum. Hann krefst þess að öll skjöl
um hleranir verði gerð opinber og
hyggst leita réttar síns hjá Mann-
réttindadómstólnum í Strassborg ef
þurfa þykir.
Óþolandi samkrull
„Ég veit ekki hvort það þótti
óvenjulegt á þessum tíma að dóm-
ari færi upp í ráðuneyti til að skrifa
undir beiðni en nú til dags ættu
skilin milli framkvæmdavalds og
dómsvalds að vera skýrari," segir
og mætti sérstaklega i ráðuneytið í
þeim erindagjörðum. Var þar settur
dómur og beiðnin samþykkt.
Loftkenndar ásakanir
Ólafur segir málið allt hið ein-
kennilegasta og þær ástæður sem
lagðar eru fram beiðninni til stuðn-
ings órökstuddar. „Þetta er mjög loft-
kennt því það koma engin ákveðin
sakarefni fram í beiðninni.“
Ólafur lagði upphaflega fram
beiðni um óheftan aðgang að
öllum skjölum um hleranir á
Islandi frá árinu 1949 til dags-
ins í dag. Aðeins hefur verið
fallist á aðgang að skjölum
er varða föður hans en Ól-
afur segist ekki hafa látið
af fyrri kröfu sinni um að
öll skjöl verði gerð opin-
ber. „Ef yfirvöld halda
áfram að tregðast við
beiðni minni þá mun
ég reyna dómstólaleið-
ina og jafnvel fara út
fyrir landsteinana ef á
þarf að halda.“
Bjarni Benediktsson, þaver-|
andi ráðherra Barðist gegn
hlerunum á 4. áratugnum en
lét sjálfur hlera andstæðinga
sína tæpum 30 árum síðar
Hannibal Vaidimarsson,
þáverandi forseti ASÍ og
alþingismaður Sfmar hans
voru hleraðir að skipan
dómsmálaráðherra
Óeðlileg fram-
kvæmd og mátt-
lausar ásakanir
Ólafur Hannibalsson,
blaðamaður
Ólafur Hannibalsson. „Eðlilegra
hefði verið að ráðuneytisstjóri færi
til dómsvaldsins en kveddi ekki
dómsvaldið til sín. Þetta samkrull
dómsvalds og framkvæmdavalds er
ekki þolandi.“
Baldur Möller, þáverandi ráðu-
neytisstjóri dómsmálaráðuneytis-
ins, lagði fram beiðni um hlerun á
síma Hannibals Valdimarssonar í
lok febrúar árið 1961. Á þeim tíma
var Bjarni Benediktsson starfandi
dóms- og kirkjumálaráðherra. I
beiðninni kemur fram að óttast sé
um starfsfrið Alþingis og ástæða
sé til að ætla að öryggi ríkisins
stafi hætta af. Ekki er greint frá því
hvað það er sem veldur áhyggjum
manna.
Valdimar Stefánsson, þáverandi
sakadómari, heimilaði hlerunina
Ósló afþakkar styttu af Ólafi konungi:
Ólafur Noregskonungur Margir
vilja meina að styttan líkist um of
j| fasískum einræðisherra.
Sú hægri of fasísk
Óslóarborg hefur afþakkað að
setja upp styttu arkitektsins Knuts
Steens af Ólafi Noregskonungi. Upp-
haflega stóð til að setja sty ttuna upp
á Ráðhústorginu í Ósló.
Per Ditlev-Simonsen, borgarstjóri
Óslóar, segir í viðtali við Verdens
Gang að það hafi verið afskaplega
erfið ákvörðun að neita að setja
upp styttuna. „Ég tel það mjög erf-
itt að finna rétta blöndu af konung-
legri tign og alþýðleika. Minningin
um Ólaf konung er mjög sterk í
huga Norðmanna, sem gerir það
að verkum að við erum að leita að
einhverju sem við höfum enn ekki
fundið.“
Fjölmargir hafa gagnrýnt stytt-
una og þá sérstaklega hægri hönd
Ólafs og segja að hann líkist helst
fasískum einsræðisherra. Styttan
hefur kostað borgina tvær milljónir
norskra króna og þar af hafa 1,8
milljónir farið til arkitektsins, eða
tæpar tvö hundruð milljónir. Dóttir
Steens segir að faðir sinn íhugi að
sækja um frekari greiðslur vegna
verksins. „Faðir minn hefur ekki
hagnast um fimm aura á gerð stytt-
unnar. Hann hefur lagt ótal vinnu-
stundir í verkið, en sex ár fóru í gerð
styttunnar. Við teljum reyndar að
borgarstjórn Óslóar hafi fyrst fengið
efasemdir um styttuna fyrir þremur
árum þegar styttan af Saddam Hus-
sein, fyrrverandi forseta íraks, var
rifin niður í Bagdad."
Bæjarstjóri Heroy, smábæjar
skammt frá Álesund, hefur
boðist til að taka við styttunni
auk forsvarsmanna tíu annarra
sveitarfélaga.