blaðið - 01.12.2006, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaðiö
JAPAN
Geta smíðað kjarnorkuvopn
UTAN ÚR HEIMI
Utanríkisráðherra Japans, Taro Aso, segir Japana
geta framleitt kjarnorkuvopn kjósi þeir það en segir
það ekki á stefnuskránni. Hinsvegar segir hann ekkert
í stjórnarskránni sem meini þeim að ráðast í smíði
slíkra voþna.
INDLAND m
Mikill hagvöxtur
Hagvöxtur á Indlandi var mun meiri en búist var við
á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Hagvöxtur mældist
um 9,2 prósent. Mestur var vöxturinn í þjónustu-
iðnaði eða 13,9 prósent og í kjölfarið fylgdi fram-
leiðslugeirinn með 11,9 prósenta hagvöxt.
FRAKKLAND
Sarkozy fer fram
Innanríkisráðherra Frakklands, Nicolas Sarkozy, hefur lýst því yfir að
hann muni bjóða sig fram til forseta á næsta ári. Flestar kannanir gefa
til kynna að Frakkar séu reiðubúnir til þess að kjósa hann til embætt-
isins. Flokkur hans velur frambjóðanda í janúar og ekki er búist við að
flokksfélagi hans og forsetinn, Jacques Chirac, gefi kost á sér.
Ökufantur á ofsahraða komst undan:
Stakk lögguna af
„Við náðum númerinu," segir
Karl Hermannsson, yfirlögreglu-
þjónn í Keflavík, en lögreglan
veitti BMW-bifreið eftirför á
Reykjanesbraut aðfaranótt
fimmtudags. Ökumaðurinn ók á
201 kílómetra hraða sem mun vera
hæsta hraðamæling í langan tíma
á Reykjanesinu að sögn Karls en
því miður ekki einsdæmi.
Eftirförin hófst rétt fyrir þrjú á
miðvikudagsnótt þegar lögreglan
mældi hraða BMW-bifreiðar-
innar. Lögreglan hóf strax eftirför
vestur Reykjanesbrautina en há-
markshraði er 90 kílómetrar og
bifreiðin því á rúmlega tvöföldum
leyfilegum hámarkshraða.
Ökumaður sinnti ekki stöðv-
unarljósum lögreglunnar heldur
hélt áfram á ofsahraða. Lögreglan
Fantur á ofsahraða Ökumaöur
keyrði á rúmlega tvö hundruð km
hraða á Reykjanesbrautinni.
hætti eftirför þegar þeir höfðu
misst sjónar á bifreiðinni.
Samkvæmt Karli bárust vís-
bendingar um bifreiðina en talið
er að rannsókn muni ganga vel
fyrir sig enda náðist númerið.
* T 'f ST* m.
Útgjöld til vegamála:
Mest á kosningaárum
■ Engin trygging fyrir framkvæmdum ■ Ytri ástæður kallað á frestun
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Ríkisstjórnin hefur boðað stórátak í
vegamálum. Á næsta ári á að verja
13,6 milljörðum til vegaframkvæmda
miðað við 8,7 milljarða í fjárlagafrum-
varpi 2006. Samkvæmt yfirliti frá
upplýsingaþjónustu Alþingis, sem
nær til áranna 1998 til 2007, eru út-
gjöld ríkisins til vegamála að jafnaði
mest þau ár sem þingkosningar eru.
„Fjögurra ára vegaáætlun, sem
samþykkt var á síðasta kjörtímabili,
hefur verið skorin niður um 2 millj-
arða á ári síðan. Það er verið að setja
inn á næsta ár það sem safnast hefur
upp. Núna er verið að lofa að gera
það sem svikist hefur verið um á síð-
astliðnum íjórum árum. Þetta er gert
af því að það er kosningaár og kosið
Lofa því nú
sem svikist
hefur 1rerið um
Jón Bjarnason, þing-
maður Vinstri grænna
áður en vegaframkvæmdir á árinu
hefjast,” segir Jón Bjarnason, þing-
maður Vinstri grænna, og bætir því
við að tryggingin fyrir því að farið
verði í boðaðar framkvæmdir sé ekki
meiri núna en fyrir fjórum árum.
Ríkisstjórnin hafi ítrekað ákveðið
að fresta vegaframkvæmdum vegna
yfirstandandi stóriðjuframkvæmda
og áhrifa þeirra hætti ekki að gæta
á næstunni. „Það er kannski ekki
óeðlilegt þótt stjórnarandstaðan sé
í vafa um að áætlanir standist. Það
Sannfærður
um að áætlun
standist
Guðmundur Hall-
varðsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins
hafa náttúrlega verið ytri ástæður
sem hafa kallað fram frestun á fram-
kvæmdum þó að þær hafi í reynd
ekki orðið nema að litlu leyti,” segir
Guðmundur Hallvarðsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og for-
maður samgöngunefndar Alþingis.
„Auðvitað er boðað mikið átak til
að greiða fyrir umferð að og frá borg-
inni og það er mál sem er mjög brýnt.
En ég er sannfærður um að þetta
muni standast,” leggur Guðmundur
áherslu á.
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006a 2006b 2007
Fjárfestingar 3.805 4.469 4.631 6.067 5.354 8.404 9.002 6.714 5.905 4.805 10.441
% af ríkisútg. 2,0% 2,4% 2,4% 3.2% 2,8% 4,4% 3,0% 2,2% 1,9% 1,5% 2,9%
Viðhald 3.277 3.754 4.151 4.187 4.399 4.248 2.561 2.405 2.835 2.85 3.159
% af ríkisútg. 1,7% 2,0% 2,2% .. 2,2% 2,3% 2,2% O co 0,8% 0,9% j 8.740 0,9% 0,9%
Samtais 7.082 8.223 8.782 9.753 9.753 12.652 11.563 9.119 7.640 13.600
% af ríkisútg. 3,7% 4,1% 3,8% 3,6% 3,6% 4,5% 3,8% 3,0% 2,8% 2,3% 3,8%
Útgjöld ríkisins til vegamáia 1998-2007 Útgjöld til vegagerðar skiptast í fjárfestingar og viðhald. Útgjöld 2006a eru
eins og í fjárlagafrumvarpi 2006 en útgjöld 2006b eru eins og áætlanir ríkisstjórnar gera ráð fyrir, þ.e. niðurskurður í
fjárfestingum um 1,1 milljarð króna. Tölur eru í milljónum króna.
LISTMUNAUPPBOÐ
verður haldið sunnudagskvöldið 3. desember,
kl. 19 á Hótel Sögu, Súlnasal
Boðin verða upp um 140 verk,
þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna.
Verið velkomin a& skoða verkin í Galleríi Fold, Rau&arárstíg 14,
föstudag 10-18, laugardag 11-17 og sunnudag 12-17.
Hægt er aö nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14, sími 5510400 • www.myndlist.is
Gunnlaugur Blöndal