blaðið - 01.12.2006, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
Eftirlaunaaldur hækkaður
Ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara hefur
ákveðið að hækka eftirlaunaaldurinn í land-
inu úr 65 ára í 67. Er meðal annars gripið
til þessara aðgerða til þess að draga úr
útgjöldum ríkisins vegna eftirlaunagreiðslna.
Viðræður um þjóðstjórn runnar í sandinn
Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar,
segir viðræður Fatah-hreyfingarinnar og Hamas hafi
runnið út í sandinn. Myndun þjóðstjórnar sem viðurkennir
tilverurétt Ísraelsríkis hefur verið ein helsta forsenda þess
að rjúfa alþjóðlega einangrun palestínskra stjórnvalda.
Uil.UViJiJ, *
Ekki sterkara gagnvart dollara í 14 ár
Gengi pundsins hefur ekki verið hærra gagnvart dollara í
14 ár. Fréttir um samdrátt í Bandaríkjunum og væntingar
um að Englandsbanki hækki vexti hafa kynt undir sterkri
stöðu pundsins. Ástæða vaxtahækkana er ekki síst rakin
til að mikil þensla hefur verið á húsnæðismarkaði.
t^Trúlofunar
hríngar
Laugavegi61 • Sími 552 4910
www.jonogoskar.is
blaði
nuiiuiuu
alla þriöjudaga
Vinstri grænir:
Kæra söluna
Borgarfulltrúar Vinstri
grænna sendu kæru til félags-
málaráðherra þar sem þeir vilja
að hann felli úr gildi samþykkt
borgarstjórnar á sölu á hlut
borgarinnar í Landsvirkjun.
Fulltrúar VG segja að andvirðið
sé að stórum hluta greitt með
skuldabréfum til handa Lífeyris-
sjóði starfsmanna Reykjavíkur-
borgar en samkvæmt lögum er
lífeyrissjóðnum óheimilt að taka
við greiðslunni þar sem eingöngu
er heimilt að fjárfesta fyrir tíu
prósent af hreinni eign sjóðsins í
bréfum af því tagi sem um ræðir.
Utsölustaðir:
Jens Kringlunni ■ Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 ■ Helgi Sigurðsson úrsmiður
Skólavörðustíg 3 • Georg Hannah úrsmiður Keflavik ■ Guðmundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi ■ Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi
Leonard Kringlunni
Menntamálanefnd afgreiddi frumvarp um
Ríkisútvarpið á miðvikudaginn Gerðu með-
al annars tvær breytingar er lúta að stöðu
Ríkisútvarpsins á augiýsingamarkaði.
. u
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Forstjóri 365 boðar miklar upp-
stokkanir innan fyrirtækisins og að
dregið verði verulega úr fréttaþjón-
ustu verði frumvarp um Ríkisút-
varpið samþykkt óbreytt á Alþingi.
Hann segir þær tillögur menntamál-
anefndar sem lúta að takmörkunum
á stöðu Ríkisútvarpsins á auglýs-
ingamarkaði gagnslausar og engu
breyta. Sjónvarpsstjóri Skjás eins
segir tillögur nefndarinnar hafa
valdið vonbrigðum og að hann trúi
því ekki Alþingi samþykki frum-
varpið án breytinga.
Vísvitandi stefnumörkun
„Ef þetta verður óbreytt að lögum
þá hefur það í för með sér mikla
uppstokkun hjá okkur,“ segir Ari
Edwald, forstjóri 365. „Við höfum
verið að reyna að halda úti ýmissi al-
mannaþjónustu, þar á meðal frétta-
flutningi í sjónvarpi. Það er enginn
vafi á því að með þessari tillögugerð
stefnir ríkisstjórnin að ríkisein-
okun í fréttaflutningi í sjónvarpi.“
Menntamálanefnd Alþingis af-
greiddi á miðvikudaginn frumvarp
umRíkisútvarpiðmeðtveimurbreyt-
ingartillögum er lúta að stöðu Ríkis-
útvarpsins á auglýsingamarkaði.
Kemurbaratil
með að bitna á
einkareknum
stöðvum
Ari Edwald,
forstjóri 365
Samkvæmt tillögunum verður
Ríkisútvarpinu bannað að birta
auglýsingar á Netinu og þá verða
settar takmarkanir á það hversu
langt er hægt ganga við gerð
kostunarsamninga um dagskrár-
liði. Er þá miðað við 10 prósent af
heildarauglýsingatekjum.
Fyrir fundinn hafði verið rætt
um að ganga jafnvel lengra í að tak-
marka umsvif Ríkisútvarpsins á aug-
lýsingamarkaði en þær hugmyndir
fengu ekki hljómgrunn meðal meiri-
hluta nefndarmanna.
Ari segir þær tillögur sem nú
liggja fyrir ekki breyta neinu heldur
sé þvert á móti verið að gefa Ríkis-
útvarpinu meira svigrúm til að
keppa við einkaaðila. „Þeir fá meira
svigrúm til að sækja fram á markað-
inum og þeim eru ekki settar neinar
skorður í samkeppni við einkafyr-
irtæki. Þetta er vísvitandi stefnu-
mörkun þeirra stjórnmálamanna
sem að þessu standa og er beint
gegn einkareknu stöðvunum.“
Þessarbreyt-
ingar hafa engin
■\ áhrif
w
§
É
Magnús Ragnarsson,
sjónvarpsstjóri
Skjás eins
Engin áhrif
Magnús Ragnarsson, sjónvarps-
stjóri Skjás eins, tekur undir orð
Ara og segir afgreiðslu menntamála-
nefndar hafa valdið vonbrigðum.
„Ég treysti því að niðurstaðan yrði
eitthvað meira en þetta. Ég veit ekki
hvað þeir voru að dunda sér í þessu.
Þessar breytingar hafa nákvæmlega
engin áhrif.“
Magnús segir eðlilegra að Rík-
isútvarpið hverfi smám saman af
auglýsingamarkaði enda fái það
töluvert forskot á einkastöðvarnar
í formi skattpeninga. „Ég Iýsti því
yfir við menntamálanefnd að ég
gæti vel sætt mig við einhverjar tak-
markanir í fyrstu en langtímamark-
miðið ætti að vera að Ríkisútvarpið
fari af auglýsingamarkaði. Þessar
takmarkanir sem nefndin leggur
fram eru hins vegar gagnslausar. Ég
vildi óska þess að einhver af þessum
ágætu alþingismönnum hefði
reynslu af því að reka fyrirtæki í
samkeppni við ríkið.“
Barnahúsgögn sem stækka
Barnahúsgögnin okkar bjóða upp á ótal samsetningarmöguleika og sveigjanleika sem gerir þér kleift að nota
eitt og sama rúmið allt frá því barnið hættir í grindarrúminu og fram á unglingsár.
nOscflciuuitinuiit*
Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 - www.husgogn.is