blaðið - 01.12.2006, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaóiö
HVAÐ MANSTU?
1. Hvað heitir höfuðborg Möltu?
2. (hverju er nýkjörinn forseti Ekvadors, Rafael Correa, menntaður?
3. Á hvaða plötu Franks Zappa má finna lagið Broken Hearts Are For Arseholes?
4. Hver er söluhæsta bókin á íslandi í dag?
5. Hver er formaður menntamálanefndar Alþingis.
GENGI GJALDMIÐLA
Svör:
KAUP
»0 CD w h= £2
m ÍD >- O) o o
™ 2 ^ c "2 '52,
‘o) Ö5 £= =1 oo
ca 03 o .EP 'z:
t-1 c\i co in
■ Bandaríkjadalur 67,97
m Sterlingspund 133,96
SS Oönskkróna 12,023
H— Norskkróna 10,938
SS! Sænskkróna 9,887
SS9 Evra 89,64
SALA
68,13
133,6
12,093
11,002
9,945
89,89
Finnland:
Fundu bíl
strokufangans
Finnska lögreglan leggur nú
mesta áherslu á Helsinki í leit
sinni að Juha Valjakkala, fang-
anum sem strauk úr fangelsi í
Hamina fyrr í vikunni. Lögregl-
an telur sig hafa fundið bíl sem
líklegt er talið að Valjakkala hafi
notað við flóttann en bílnum
var stolið í Hamina sömu nótt
og Valjakkala strauk. Talið er
að stokufanginn fari huldu höfði
ásamt nýjustu kærustu sinni,
fertugri finnskri konu sem hefur
sjálf margoft komist í kast við
lögin. Valjakkala var dæmdur
í ævilangt fangelsi árið 1988
fyrir að myrða þrjá, en þetta er í
fimmta sinn sem hann strýkur
úr fangelsi.
Grunnskólanemendur skoöa umferð:
Skagamenn nota
stefnuljósin lítið
Aðeins um helmingur fullorð-
inna notar gangbrautarljós rétt og
36 prósent bílstjóra fara að settum
glum þegar kemur að notkun
tefnuljósa í hringtorgum. Þetta
kemur fram í könnun nemenda 9.
og 10. bekkjar Grundaskóla á Akra-
nesi sem þeir unnu í tengslum við
svokallað umferðarval skólans.
Grundaskóli er í forsvari fyrir
grunnskóla landsins varðandi um-
ferðarfræðslu. Sigurður Arnar Sig-
urðsson, kennari við skólann, segir
að átakið hafi fallið vel í kramið hjá
nemendum.
„Um 25 nemendur tóku þátt í
þessu umferðarvali sem var að
ljúka og þau skipta sér á ákveðin
verkefni." Könnun nemenda náði
einnig yfir mælingar á notkun
bílbelta, stöðvunarskyldu og
umferðarhraða.
Umferðarmenning a Akranesi
mæld Grunnskólanemendur vilja
breyta viðhorfum ökumanna.
Utsala, Útsali
Helgaropnun
30 - 50 % verðlækkun
Einntg úrval af eldri
fatnaði ó QQft ■ ^
Helgaropnun
Föstudagur 1 des opið 10.00-19.00
Laugardag 2 des opið 10.00-19.00
Sunnudog 3 des opið 12.00-18.00
Virka daga opið 10.00-18.00
www.friendtex.is
Orkuveita Peykjavíkur Hækk-
ar raforkuverð um áramótin.
nnrr’T**
• K*:
Orkuveita Reykjavíkur hækkar raforkuverð:
Frelsið enn í
barnsskónum
■ Orkuveitan hækkar raforkuverö
■ Verðmunur lítill ■ Tapiö 1,4 milljarðar
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
„Gjaldskrá Landsvirkjunar hefur
hækkað um tíu prósent frá upp-
hafi árs 2005 og það er hækkun
sem við verðum að velta áfram
með þessum hætti,“ segir Eiríkur
Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi
Orkuveitu Reykjavíkur. Stjórn
Orkuveitunnar ákvað á fundi í
vikunni að hækka raforkuverð
til almennings á veitusvæði Orku-
veitunnar um 2,4 prósent frá og
með áramótum.
Á fundinum var jafnframt lagt
fram níu mánaða uppgjör Orkuveit-
unnar sem sýndi tap upp á 1,4 millj-
arða á fyrstu níu mánuðum ársins
2006. „Reksturinn gengur ágætlega
og samkvæmt áætlun. Álagning
á rafmagni í smásölu er ekki það
mikil að við getum tekið á okkur
svona hækkun án þess að okkar við-
skiptavinir verði varir við það.“
Aðspurður hvort Eiríkur telji
frjálsan raforkumarkað virka segir
hann markaðinn enn vera á barns-
skónum. „Fyrirtækin eru smátt og
smátt að aðlagast nýju umhverfi.
Markaðurinn ber þess náttúrulega
merki hversu stóran hluta af raf-
magnsframleiðslu Landsvirkjun er
með. Af því sem við erum að dreifa
Fyrírtækin eru
að aðlagast nýju
umhverfí
Eiríkur Hjálmarsson
Upplýsingaf ulltrúi
Orkuveitu Reykjavíkur
Utifí verðmunur
letur neytendur
tilað leita
tilboða
Jóhannes Gunnarsson
Formaður
Neytendasamtakanna
til almennings er um sextíu pró-
sent frá Landsvirkjun.“
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir að
kannanir samtakanna hafi sýnt
fram á að það sé sáralítill verð-
munur hjá fyrirtækjum á raforku-
markaði. „Verðmunurinn er mjög
lítill, sem letur neytendur til að
leita tilboða í rafmagn. Vissulega
gerðum við okkur vonir um að
þessi breyting, að gera raforku-
markaðinn frjálsan, myndi halda
aftur af hækkunum á meðan fyr-
irtæki væru að þreifa fyrir sér á
þessum samkeppnismarkaði til að
fá nýja viðskiptavini.“
SAMANBURÐUR Á RAFORKUVERÐI
Miöað við 140 fermetra raðhus i Reykjavík og 5.400 kWh/ari
Hitaveita Suðurnesja
Orkuveita Reykjavíkur
RARIK
Dreifing (kr) Sala (kr)
29.583 22.354
29.583 21.750
29.583 21.817
Heildarupphæð á ári (kr)
51.937
51.333
51.400
*Heimiid: Orkustofnun.