blaðið


blaðið - 01.12.2006, Qupperneq 24

blaðið - 01.12.2006, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006 blaöiö Sérfræðinefndin um málefni íraks: Brotthvarf hersins hefjist á næsta ári H Lögð verði meiri áherslu á stuðning við íraka ■ Tímarammi brotthvarfs ekki lagður fram Frakkland: 300 metra hár turn í París Nýr þrjú hundruð metra hár skýjakljúfur mun rísa í París í Frakklandi og er áætlað að hann verði opnaður árið 2012. Skýjakljúfurinn mun bera nafnið „Phare“ og vera hitaður með vindorku sem framleidd er á toppi byggingarinnar. Phare rís í La Defence-hverfinu i vesturhluta borgarinnar, en bandaríski arkitektinn Thom Mayne er hönnuður hússins. Friðarsúla Yoko Ono: Ljósið truflar ekki vita „Það er nú ekki alveg á hreinu hvort sækja þurfi um leyfi hjá Siglingastofnun fyrir slíkri ljóssúlu,“ segir Baldur Bjartmarsson, forstöðumaður hjá Siglingamálastofnun, um fyrirhugaða friðarsúlu Yoko Ono sem á að rísa í Viðey.„Efþetta er stöðugt ljós þá ætti það ekki að trufla umferð báta þar sem vitar eru með blikkandi ljós.“ Kolviður Helgason, varaformað- ur Snarfara, félags sportbátaeig- enda í Reykjavík, segir að félagið hafi ekki verið að velta fyrirhug- aðri friðarsúlu mikið fyrir sér. „Það eru svo mörg önnur ljós sem við horfúm á þegar við siglum til lands, þannig að ég held að þetta verði ekkert til að trufla okkur frekar en hvað annað.“ Þverpólitíska sérfræðinefndin um málefni f raks sem var skipuð afBanda- ríkjaþingi kemur til með leggja til að bandaríski herinn hefji brotthvarf sitt frá írak á næsta ári. Sérfræði- nefndin, sem er leidd af James Baker, fyrrum utanríkisráðherra, og Lee H. Hamilton, fyrrum fulltrúadeild- arþingmanni, telur að ef það liggi ekki fyrir að Bandaríkjaher hverfi frá írak þá muni ríkisstjórn Nuri al- Malikis forsætisráðherra ekki finna fyrir nægjanlegum þrýstingi til þess að beita sér fyrir pólitískum sáttum milli stríðandi fylkinga. Hinsvegar kýs nefndin ekki að setja fram tíma- ramma um brotthvarf hersins. Með þessari tillögu siglir hún milli skers og báru en repúblikanar vilja halda kúrsinn á meðan margir demókratar hafa viljað að nákvæmur tímarammi verði gefinn út um brotthvarf hersins frá landinu. Skýrslan hefur ekki verið gerð opinber en innihaldi hennar hefur verið lekið í fjölmiðla. Nefndarmennirnir tíu hafa verið að störfum í átta mánuði og bú- ist er við að þeir kynni tillögur sínar fyrir George Bush forseta og Bandaríkjaþingi í næstu viku. Fjöl- miðlar fullyrða að ásamt fækkun í herliði muni hlutverk hersins brey tast úr því að berjast gegn upp- reisnar- og hryðjuverkamönnum yfir í það að styðja við bakið á íröskum öryggssveitum við að kveða niður skálmöldina i land- inu. Þetta þýðir að bandarískir her- menn muni leggja meiri áherslu á aðdrætti, upplýsingaöflun, ráðgjöf og þjálfun íraskra öryggissveita. Slík útfærsla kallar hinsvegar á að bardagasveitir verji þá Bandaríkja- menn sem sinna ofangreindum hlutverkum í landinu. Dagblaðið Washington Post hefur heimildir fyrir því að þrátt fyrir brotthvarf hermanna leggi nefndin til að Bandaríkjamenn viðhaldi öflugum herstyrk í land- inu. Blaðið hefur eftir öðrum heim- ildum að eftir eitt til tvö ár verði búið fækka í herliði Bandaríkja- manna í Irak um helming. Ekki kemur fram í skýrslunni hvort hersveitirnar verði kallaðar heim eða hreinlega færðar til þeirra ná- grannalanda þar sem Bandaríkja- her hefur hersveitir. Ásamt því að mæla með að meiri áhersla verði lögð á að aðstoða írösk stjórnvöld við að taka sín mál eigin hendur þá er lögð mikil áhersla í skýrslu nefndarinnar á að finna lausnir á vettvangi milliríkja- samskipta. Talið er að nefndin leggi það til við stjórnvöld að byggja upp tengsl við klerkastjórn- ina í íran og sýrlensk stjórnvöld. Fram til þessa hefur ríkisstjórn Ge- orge Bush útilokað slik samskipti að öllu óbreyttu. Auk þessa er talið að skýrsluhöfundur leggi til að efnt verði til ráðstefnu um málefni Mið-Austurlanda og reynt verði að virkja nágrannalönd Iraks til þess að beita sér fyrir því að koma á stöðugleika í landinu. Bush hefur sagt að hann hlakki til að heyra tillögur nefndarinnar og vonist til þess að þær inn- leiði ferska sýn á lausnir á þeirri skálmöld sem ríkir í Irak. Þrátt fyrir þessi ummæli fyrirskipaði hann ríkisstjórn sinni að ráðast í endurskoðun á núverandi stefnu í írak fyrir tveim vikum. Er það talið til marks um að forsetinn viji ekki lenda i þeirri stöðu að þurfa að fallast á allar tillögur sérfræðinefndarinnar. Gerum kort meö þínum myndum, eöa kort sem þú hannar frá grunni. Verö frá kr. 99, fyrir mynd, kort og umslag. Hægt aö panta á netinu og sækja eða fá sent heim en þá bætist póstkostnaöur viö. FUJiFILM pfftm'i'H'ffliiTra mmi Skipholti 31; sími 568-0450 Ijosmyndavorur.is Ivl a IvíUPIW*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.