blaðið - 01.12.2006, Side 50
50 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006
blaðiö
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Luque slapp við meiðsl en missti bílinn
Albert Luque, spænski vandræðagemsinn hjá Newcastle, slapp við meiðsl þeg-
ar vörubill sem skartaði Liverpool-fána í framrúðunni keyrði yfir átta milljóna
króna Porsche-bifreið hans. Luque var svo lánsamur að vera ekki inni i bíln-
um þar sem hann var að athuga hvort það hefði sprungið hjá honum dekk.
Skeytin inn
Stevens lávarður, sem
rannsakað hefur ólögleg-
ar greiðslur í kringum
leikmannakaup í ensku úrvals-
deildinni undanfarna mánuði,
mun greina frá niðurstöðum
sínum n. desember.
Stevenslagði
fyrr á árinu upp
með rannsókn _ f
á 362 leikmanna-
kaupum frá fyrsta
janúar 2004 til 31.
janúar 2006 og
tilkynnti annan
október
síðastliðinn
að átta
úrvalsdeild-
arfélög væru
enn undir rannsókn í sam-
bandi við 39 leikmannakaup.
Eggert Magnússon vill Olympíuleik-
vang fyrir West Ham Eggert Magnús-
son, eigandi og stjórnarformaður West
Ham, segir félagið ætla i Meistaradeild■
ina og þviþurfi það stærri leikvang.
Eggert í viðræðum við yfirvöld um Ólympíuleikvanginn:
V
t
I
Jose Mourinho, stjóri
Chelsea, segir að þess sé
ekki langt að bíða að félagið
verði í efsta sæti deildarinnar.
„Ég er ánægður með að vera
ekki nema þremur stigum á
eftir Manchester United því við
höfum leikið
mun erfiðari
leiki en þeir.
Þeir hljóta að
vera ósáttir
með að vera
ekki með
meiri forystu
í deildinni en
raunin er,“ sagði
Mourinho.
Manchester United hefúr
samkvæmt breska
dagblaðinu Daily Mirr-
or ekki áhuga á að semja við
bandaríska undrabarnið Fred-
dy Adu eftir
að leikmað-
urinn dvaldi
í vikutíma
hjá félaginu
til reynslu.
West Ham þarf stærri völl
■ Mike Lee opnaði dyrnar ■ Vilja yfir 15 milljarða frá West Ham
„Við viljum komast í Meistara-
deildina og þá þurfum við stærri
leikvang,“ segir Eggert Magnússon,
eigandi og stjórnarformaður West
Ham, spurður um hvaða ávinningur
væri af því fyrir West Ham United
að flytja heimavöll félagsins af Bol-
eyn Ground á Ólympíuleikvanginn í
Lundúnum árið 2012, en Eggert hóf
viðræður við borgarstjóra Lundúna-
borgar og iþróttamálaráðherra Bret-
lands í gær um að West Ham United
eignaðist eða fengi afnot af leikvang-
inum eftir leikana.
Spurður um hvernig það kom til
að West Ham sæktist eftir þessum
leikvangi í stað þess að byggja nýjan
frá grunni sagði Eggert að Mike Lee
(talsmaður og fjölmiðlafulltrúi Egg-
erts) hefði opnað dyrnar að þessum
möguleika, en hann var fjölmiðla-
og almannatengslafulltrúi nefndar-
innar sem Lundúnaborg skipaði til
að sjá um tilboð hennar í Ólympíu-
leikana 2012.
Hyggjast rífa leikvanginn eftir ÓL
Boleyn Ground, heimavöllur West
Ham, rúmar 35.000 áhorfendur í
sæti en hinn væntanlegi Ólympíu-
leikvangur mun rúma um 80.000,
sem gerir hann að stærsta íþróttaleik-
vangi Bretlandseyja. Ef af áformum
yfirvalda í Bretlandi og Lundúnum
verður mun það þó ekki vara lengi,
því þau hyggjast rífa leikvanginn að
leikunum loknum og breyta honum
í æfingasvæði fyrir frjálsíþróttafólk
í nágrenninu. Mun hann þá aðeins
rúma um 25.000 manns. „Við erum
í rauninni að reyna að fá yfirvöld til
að hætta við þau áform að rífa niður
leikvanginn en breyta honum að
fyrirmynd Stade de France í París,
þannig að hægt verði að setja fær-
anleg sæti yfir hlaupabrautina svo
áhorfendur sitji alveg upp við völl-
inn,“ segir Eggert.
Boleyn Ground upp í kostnaðinn
Eggert segir að ef félagið fengi
samþykki yfirvalda fyrir tillögum
sínum færu þau fram á að West
Ham United legði yfir fimmtán
milljarða króna til breytinganna.
.,Ef samningar nást undir þessum
formerkjum hafa borgarstjóri og
íþróttamálaráðherra mælt svo fyrir
að West Ham leggi vel yfir hundrað
milljónir punda til breytinganna,"
segir Eggert. Hann reiknar þá með
að skoðað verði hvort sala á svæðinu
sem fer undir Boleyn Ground í dag
gæti gengið upp í kostnaðinn við
breytingarnar.
Af West Ham er það annars að
frétta að Eggert og Alan Pardew,
knattspyrnustjóri West Ham, munu
hittast snemma í næstu viku og
ræða hvaða leikmönnum félagið
ætlar að falast eftir í janúar þegar
opnað verður fyrir félagaskipti. Þá
munu þeir jafnframt ræða framtíð
Argentínumannanna Carlosar Te-
vez og Javiers Mascherano hjá félag-
inu sem hafa alls ekki staðið undir
væntingum það sem af er tímabih.
PÓSTURINN
Bflstjórar til
starfa f desember
Útkeyrsludeild óskar eftir starfsfólki til útkeyrslu á
höfuðborgarsvæðinu í desember, á minni sendibílum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari
upplýsingar eru veittar í síma 580 1243.
Hæfniskröfur:
• 18 ára aldurstakmark
• Hreint sakavottorð
• Stundvísi, snyrtimennska og góð þjónustulund
Umsóknum skal skilað til:
(slandspóstur hf.
Póstmiðstöð
Stórhöfða 32
110 Reykjavík
Merkt: Bílstjórar í desember
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu íslandspósts:
www.postur.is
Skeytin inn
Fabio Capello, stjóri Real
Madrid, er hæstánægður
með Ronaldo eftir að
hann tók sig á í mataræði og
setti meiri kraft í æfingarnar.
Capello vonaðist til að Ronaldo
tæki sig á eftir að hann ákvað
að setja Ronaldo
út úr liðinu
vegna auka-
kílóanna.
Árangurinn
hefur ekki
látið á sér
standa því
Ronaldo hef-
ur lést um tvö
og hálft kíló á
aðeins einni
viku. Farið
úr 90 kíló-
um í 87,5.
Ronaldo
verður þó
ekki í leik-
mannahópi Re-
al þegar liðið
mætir Valencia
um helgina
þar sem hann
er að jafna sig
á hnémeiðslum.