blaðið - 12.12.2006, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaAiA
VEÐRIÐ I DAG
Á MORGUN
VÍÐA UM HEIM
Léttskýjaö
Norðaustan 10 til 15 m/s norðvestantil,
annars heldur hægari. Léttskýjað að
mestu suðvestanlands, en él eða skúrir
í öðrum landshlutum. Hiti kringum frost-
mark. Úrkomulítið á landinu og bjartviðri
vestanlands. Frost í flestum landshlutum.
Kalt
Austan og suðaustan 5-10
m/s og víða snjókoma eða
slydda, en úrkomulítið á Norð-
urlandi. Frost 1 til 7 stig, en
kringum frostmark sunnan- og
vestanlands.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
15
9
13
6
12
7
3
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
7 New York
7 Orlando
6 Osló
6 Palma
10 París
10 Stokkhólmur
1 Þórshöfn
9
16
9
20
7
5
6
Hafnarfjörður:
Sportarinn
áminntur
Fjölskylduráð Hafnarfjarðar
samþykkti á síðasta íundi að
áminna sportbarinn Sportarann
fyrir áfengisauglýsingu sem birt-
ist í Víkurfréttum í lok nóvember.
Þá var einnig samþykkt að fela
forvarnarfulltrúa og upplýsinga-
fulltrúa að ræða við ritstjóra
Víkurfrétta og kynna honum
tillöguna.Áminningin gildir
í tvö ár og verður staðurinn
hugsanlega sviptur vínveitinga-
leyfi endurtaki hann brotið.
Rúta valt:
Sjö sluppu
án meiðsla
Áætlunarrúta með sjö farþega
auk bílstjóra fauk út af veginum
á Gemlufallsheiði í gærmorgun.
Sterk vindhviða feykti henni
eina veltu og hafnaði hún utan-
vegar. Engin alvarleg slys urðu
á fólki en bíllinn var á leiðinni
frá Þingeyri yfir á Isafjörð.
Ökumaður moksturstækis
sem var við vinnu á heiðinni
kom að slysinu og óskaði
eftir aðstoð lögreglu. Ekkert
GSM-samband er á heiðinni
og þar sem hvorki farþegar né
ökumaður moksturstækisins
voru með NMT-síma í sínum
fórum, þurfti að keyra að næsta
sfma til að hringja eftir aðstoð.
Viðhaldsvinna á Álftanesi:
Forseti bæjarstjórnar situr
einn að framkvæmdum
K Undarlegt að ekki sé boðið út ■ Fær fjórar milljónir á ári ■ Ekki pólitík sem ræður för
Eftlr Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Fyrirtækið Aðal-Rafmagnsþjón-
ustan, sem er í eigu forseta bæjar-
stjórnar Álftaness, Kristjáns Svein-
björnssonar, hefur á undanförnum
árum verið eitt um viðhaldsvinnu
ýmiss konar fyrir sveitarfélagið
án þess að útboð hafi farið fram.
Reikningar fyrirtækisins hafa náð
fjórum milljónum árlega.
„Auðvitað hafa menn alltaf
smá áhyggjur af svona málum og
spurning um matsatriði hverju
sinni. Verið er að skoða þetta og
fyrir liggja samþykktir um að fara
með þetta í útboð,“ segir Þórður
Kristleifsson, skrifstofu- og fjár-
málastjóri sveitarfélagsins Álfta-
ness. Þórður tekur undir að það
geti orkað tvímælis að undirmenn
þurfi að samþykkja reikninga frá
yfirboðurum sínum.
Fagiegar forsendur
Kristján staðfestir að hann hafi
séð um allt viðhald fyrir sveitarfé-
lagið og skilur gagnrýni á að hann
sitji báðum megin við borðið í mál-
inu. „Það er alveg hárrétt að þessi
mál hafa ekki verið í nógu góðum
farvegi og erfitt í svona litlu sveit-
arfélagi. Menn eru fyrst og fremst
þeirrar skoðunar að vinna eigi að
haldast innan sveitarfélagsins,“
segir Kristján.
„Reynt hefur verið að skipta við
aðra en það hefur bara ekki reynst
nógu vel. Eftir það var byrjað að
skipta við mig aftur enda þekki ég
vel allar rafmagnshliðar sveitarfé-
lagsins. Viðskipti mín við sveitarfé-
lagið byggjast eingöngu á faglegum
sjónarmiðum.“
Óeðlileg staða
Guðjón B. Helgason, rafvirki og
íbúi á Álftanesi, furðar sig á því að
starfsemin hafi ekki verið boðin
út. „Það er heldur betur undarlegt
að fyrirtæki forseta bæjarstjórnar
sitji eitt að framkvæmdum bæjar-
ins. Auðvitað er þetta mjög óeðli-
leg staða,“ segir Guðjón. „Við sem
erum í samkeppni á markaðnum
höfum ekkert með þetta að segja.
Öll vinna fyrir sveitarfélagið á að
vera boðin út.“
Aðspurður segir Kristján sum
verk hafa verið boðin út en önnur
ekki. Hann er sammála gagnrýni á
að þjónustan hafi ekki verið boðin
út. „Það er sjálfsagður hlutur að
fara með í útboð og þau mál hafa
ekki verið í lagi. Þau útboð sem
hafa farið fram eru verk sem ég hef
á endanum unnið.“
Ekki pólitík
Kristján ítrekar að þjónusta hans
við sveitarfélagið byggist ekki á pól-
itískum forsendum heldur faglegum.
„Þetta tengist ekkert pólitík, frekar
öfugt ef eitthvað er. Fyrrverandi
meirihluti Sjálfstæðisflokks reyndi
að koma þessum verkum á verktaka
tengdum flokknum en sá reyndist
ekki nógu vel,“ segir Kristján. „Þetta
er mjög viðkvæmt og persónulegt
í svona litlu samfélagi. Ég veit um
önnur sveitarfélög sem hafa gengið
miklu lengra í þessum málum.“
Rafmagn á Alftanesi Síðustu
ár hefur fyrirtæki íeigu forseta
bæjarstjórnar á Álftanesi setið eitt
að viöhaldsframkvæmdum sveitar-
félagsins. Hann segir faglegar en
ekki pólitískar forsendur ráða för.
Seiður lands og sagna IV
Fjórða bókin
í hinum
glæsilega
bókaflokki
Gísla
Sigurðssonar
blaðamanns
og ritstjóra.
í þessari bók
er fjallað um
Mýrar og
Snæfellsnes.
Eins og í fyrri
bókum er efnið
sótt í sögu
þjóðarinnar frá
landnámi til
okkar tíma. Á
fimmta hundrað
ljósmyndir, málverk, teikningar
og kort prýða bókina.
Glæsilegt afrek í
íslenskri bókargerð
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 R.
skrudda@skrudda.is
Ungir ökumenn á Austfjörðum:
Kapp í göngum
Lögreglunni á Fáskrúðsfirði hafa
borist ábendingarþess efnis að ungir
Austfirðingar nýti sér Fáskrúðsfjarð-
argöngin til að þreyta kappakstur.
Óskar Guðmundsson varðstjóri
segir að lögreglan hafi áreiðanlegar
heimildir fyrir því að kappakstur
sé stundaður i göngunum. Tvíbreið
Fáskrúðsfjarðargöngin eru um sex
kílómetra löng og segist Óskar hafa
traustar heimildir fyrir því að öku-
menn hafi ekið þar á yfir 200 kíló-
metra hraða, en leyfilegur hámarks-
hraði í göngunum er 70 kílómetrar.
Hann segir að enn sem komið sé
hafi lögreglan ekki gripið neinn við
glæfraaksturinn. „Þetta er nú yfir-
leitt við þær aðstæður að þeir vita af
löggunni í útköllum eða þá að það
er bara gæsla sitt hvorum megin við
munnana."
Óskar segir að eina leiðin til að
stöðva þessa ökuþóra sé að setja upp
hraðamyndavélar í göngin. „Þegar
verið var að opna þessi göng þá
lýstum við strax yfir þessari skoðun
okkar að í jarðgöngum ættu að vera
hraðamyndavélar."
Auður Þóra Árnadóttir, forstöðu-
maður umferðardeildar Vegagerðar-
innar, segir að vel komi til greina að
setja myndavél í göngin fyrir austan.
„Það er ekkert búið að ákveða núna
hvar á að setja allar vélar á næsta ári
þannig að það er ennþá allt opið með
það.
Palestína:
Þrjú börn
voru myrt
Þrjú börn og bílstjóri háttsetts
embættismanns í leyniþjón-
ustu Palestínu voru skotin til
bana við grunnskóla á Gasa-
svæðinu í gær. Enginn hefur
lýst yfir ábyrgð á ódæðinu, en
embættismaðurinn er í Fatah-
hreyfingunni og var einn af
aðalmönnunum í herferð gegn
Hamas-hreyfingunni fyrir tíu
árum. Spenna milli Fatah-hreyf-
ingarinnar og Hamas-hreyfing-
arinnar hefur farið stigvaxandi
undanfarið og ítrekað leitt til
vopnaðra átaka á götum Gasa.
Um helgina slapp Said Siam,
innanríkisráðherra ríkisstjórnar
Hamas-hreyfingarinnar, þegar
skotið var á bílalest ráðherrans.