blaðið - 12.12.2006, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaðiö
Sektaður fyrir að reykspóla
Tvítugur maður hefur verið dæmdur í Héraðs-
dómi Suðurlands til að greiða 70.000 króna
sekt fyrir að reykspóla innanbæjar á Selfossi.
Það var í sumar sem maðurinn spólaði en
dómur var kveðinn upp í síðustu viku.
UMFERÐARÓHAPP
Bílvelta á Holtavörðuheiði
Tvennt var flutt á heilsugæslustöðina í Borgarnesi
eftir bílveltu á Holtavörðuheiðinni á sunnudagskvöldið.
Ökumaður missti stjórn á bílnum í hálku, ók á vegrið
og síðan valt bíllinn út fyrir veginn. Meiðsli hans og
farþega reyndust ekki mikil.
Tekist á í réttarsal
Krafa Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og annarra
um að rannsókn rikilögreglustjóra á meintum skattalagabrotum
þeirra verði dæmd ólögmæt var tekin fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Krafan er þríliðuð, þar á meðal að rannsóknin falli niður
vegna þess hve langan tíma hún hefurtekið. Saksóknari andmælti.
Líkamsárás:
Sakborningur
sýknaður
Karlmaður var sýknaður í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær af
því að hafa ráðist á fyrrverandi
kærustu sína þann 24. október.
Manninum var gefið að sök að
hafa ráðist á hana á göngustíg
í Víðidal, tekið hana hálstaki,
slegið höfði hennar nokkrum
sinnum í jörðina og kastað í hana
steinum. Hinn ákærði hefur alla
tíð neitað ákærunum og hefur
sagt að konan hafi sjálf veitt sér
þessa áverka sökum ölvunar.
Við dómsuppkvaðningu var
tekið fram að óljós frásögn
konunnar ásamt misræmi í
framburði hennar drægi úr trú-
verðugleika hennar sem vitnis.
Því var sakborningur sýknaður.
Búið að kæra 16 þjófnaði til
lögreglunnar í Reykjavík Þjófarnir
taka ýmislegt smálegt en líka stærri
hluti þegar svo ber undir.
Aukning á búðahnupli
Búið að kæra sextán mál Þjófagengi beitá skipuiögðum áðferðum Nýta sér háannati
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Fleiri eru staðnir að búðahnupli í
desember en aðra mánuði ársins
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík. Dæmi eru um
heilu þjófagengin sem fara á milli
verslana og stela vörum á afar skipu-
lagðan hátt. Forstöðumaður gæslu-
sviðs Securitas segir þjófana fremja
sína glæpi á háannatímum þegar
starfsfólk verslana er hvað mest
upptekið. Oftast er um smáhluti að
ræða en í sumum tilvikum er reynt
að stela fullum innkaupakerrum.
Bitur reynsla
„Það er miklu meira um að fólk
sé að stela smáhlutum og svo eru
fleiri að stela en venjulega í desemb-
ermánuði," segir Sigurður Jónsson,
framkvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu. „Verslunarmenn
hafa lært af biturri reynslu að það
þarf að auka gæslu í desember."
Fleirí stela I
desember
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu
Samkvæmt upplýsingum frá forn-
varnardeild lögreglunnar voru 49
hnuplmál kærð til lögreglunnar í
Reykjavík í desember á síðasta ári.
Það sem af er þessum mánuði
er búið að kæra sextán mál og
stefnir allt í að heildarfjöldi mála
verði svipaður og í fyrra. Að með-
altali eru kærð um þrjátíu til fjöru-
tíu hnuplmál til lögreglunnar í
hverjum mánuði en hafa ber í huga
að ekki eru allir þjófnaðir kærðir til
lögreglunnar.
Sigurður segir afbrotin vera að
þróast í þá átt að í stað einstaklinga
séu nú komin upp þjófagengi sem
gangi á milli verslana. Þau beiti
síðan úthugsuðum aðferðum til að
blekkja starfsfólk. „Því miður er
þetta að þróast. í stað þess að það
sé einn og einn að stela eins og var
áður sjáum við meira heilu gengin
sem eru að stela og beita til þess alls
konar aðferðum."
Stela fullum innkaupakerrum
Ómar Ármannsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá lögreglunni í
Reykjavík, segir ekkert nýtt að smá-
þjófnaður aukist í desembermánuði.
Hann segir misjafnt hvað þjófarnir
reyni að taka með sér. „Fólk stelur
alls konar hlutum. Allt frá smádóti
upp í heilu innkaupakerrunum.“
Flestar verslanir á höfuðborgar-
svæðinu ráða til sín sérstaka örygg-
isverði til að sinna öryggisgæslu í
desembermánuði.
Að sögn Árna Guðmundssonar,
forstöðumanns gæslusviðs Secu-
ritas, vinna öryggisverðir fyrirtæk-
isins um þrjú þúsund fleiri vinnu-
tíma i desember en aðra mánuði
ársins. Hann segir þjófa oft nýta
ÞEKKTAR AÐFERÐIR
ÞJÓFAGENGJA
■ Einn heldur afgreiöslumanni uppteknum
meöan aörir tæma úr hillum.
■ Einn kemur á afgreiðslukassa og segist
hafa séð grunsamlegan mann í versluninni.
Á meðan afgreiöslumaöur fer aö athuga fer
sá hinn sami og gerði viðvart ránshendi um
nálæga rekka.
■ Tveir ganga út i gegnum öryggishlið á
samatíma. Báðir með þýfi. Öryggishlið
byrjar að pípa en annar stoppar á meðan
hinn heldur áfram. Sá sem stoppar biðst
afsökunar og segist hafa tekið vöru í
misgripum.
sér háannatímann til að fremja sína
glæpi. „Þjófar koma á annatíma
þegar starfsfólk hefur ekki eins mik-
inn tíma til að sinna eftirlitsstörfum.
Þannig aukast líkurnar á því að þeir
komist upp með þjófnaðinn."
Gjafabréf upp á ljúfa kvöldstund á Argentínu steikhúsi er
jólagjöf sem gleður og líður seint úr minni.
Tilvalin gjöftilþeirra sem manni finnst mikið til komol
Barónsstíg 11 a • 101 Reykjavík • Tel.+354 551 9555 • www.argentina.is.
Tvö kynferðisbrot í rannsókn á Selfossi:
Tvítug kona kærir nauðgun
Tæknimenn á staðnum Tæknimenn voru
sendir til þess að afla gagna um það sem
raunverulega gerðist en nokkuð ber á milli
í framburði hins kærða og fórnarlambs.
1
Kaftj
r
-'. i
Wáfcff?
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Rúmlega tvítug kona kærði nauðgun
til lögreglu snemma á laugardags-
morgun sem á að hafa átt sér stað
aðfaranótt laugardags.
Stúlkan fór heim með manni á
fertugsaldri. Þau höfðu bæði verið
að skemmta sér fyrr um kvöldið og
farið heim saman að kvöldi loknu.
Þar segir stúlkan að maðurinn hafi
ráðist á sig og nauðgað.
Stúlkan var send á neyðarmót-
töku nauðgana þegar hún kærði.
Hún vissi ekki hvað maðurinn hét
og þurfti því nokkra rannsóknar-
vinnu til þess að finna hann. Lög-
reglunni tókst að lokum að hafa
uppi á honum.
Tæknideild lögreglunnar var
send á heimili hans og hann var yf-
irheyrður. Maðurinn neitar sök og
ber mikið á milli i framburði hans
og konunnar. Stúlkan var ekki með
sjáanlega áverka samkvæmt lögregl-
unni á Selfossi.
Enn er óupplýst nauðgunarárás
sem átti sér stað í júní síðastliðnum
en þá braust erlendur maður inn
á heimili stúlku og reyndi að
nauðga henni. Það mál er einnig í
rannsókn.
Wrt/iuu)/v>/Y) /rieb íich'/ó/cii uY(Jí /i/n/nho//iJa, li/su/l/uu/yUJíI
Verð 5.500 á mann, aðeins 4.900 á fimmtudögum og sunnudögum
Borðapantanir
hereford Alltaf Ijúfir píanótónar frá fimmtudegi til sunnudags
S T E I K H U S
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík
5 11 3350 • www.hereford.is
Hereford nautasteikurnar eru rómaðar, þú velur stærð, steildngu og meðlæti. Magnað!