blaðið - 12.12.2006, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaöið
INNLENT
LÖGREGLA
Olvunarakstur í Reykjavík
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði þrjá ölvaða
ökumenn í gærmorgun. Sá fyrsti var stöðvaður
um tíuleytið, annar um ellefu og sá síðasti í
kringum hádegið. Fátítt sé að menn séu teknir
fyrir ölvunarakstur á mánudagsmorgni.
LÖGREGLA
LSD í Hafnarfirði
Lögreglan í Hafnarfirði lagði hald á 10 til 15 skammta
af LSD aðfaranótt sunnudagsins. Fíkniefnin fundust öll
á þeim sama og er því líklegt að þau hafi verið ætluð
til sölu. LSD er mjög sjaldgæft í fíkniefnaheiminum og
sjaldan sem menn séu teknir með þess háttar efni.
LÖGREGLA
í mánaðarfangelsi fyrir SMS-hótanir
Héraðsdómur Norðurlands dæmdi í gær 21 árs karlmann til að sæta
eins mánaðar fangelsisvist fyrir að hafa hótað tveimur stúlkum ofbeldi
og lífláti í gegnum SMS-skilaboð. Hinn ákærði grunaði stúlkurnar um
að hafa stolið peningum af herbergisfélaga hans í vinnubúðum á Reyð-
arfirði. Þetta er sjötti dómur mannsins á innan við þremur árum.
KOKKarnir
I VEISLUÞJÓNUSTA ■
jóiajjaffr af öífum
Karfa 1. Kr. 1.980,-
Karfa 3. Kr.
Osta- og SxlkeraborSinu Hogkoupum í Krrngfurmi og Srrrórafrncf
Hrtngdu og fáSu uppfrjstngar r stma 511^4466
eða sendu töfoupóst á (toftftarnfrðftofrftarnfr.fs
Tómstundahúsið * Nethyl 2 • S. 587 0600 * www.tomstundahusid.is
PUSTMÓDEL I IV8SKI.il ÚRVALS
álfiftll
Karfa 7. Kr. 9.590,-
Vertu r sambandf
(rtna efjfn safherahörfu
KOKKarni
I II VltSlW»«6*WtfA ■
5. Kr. 7.890,-
Karfa
TÖmsfunÖfíHÚSÍB
Mikið álag Sigríöur Ásgeirsdóttir,
formaður Dýraverndarsambands
Islands, segir gríöarlegt áiag fyigja
bióötöku á hryssum, sem jafnvel
geti leitt til dauöa. Myndin er ekki
af vanræktum blóömerum.
Formaður dýraverndunarsinna segir blóðmerar vanræktar:
Sakar yfirdýralækni
um eftirlitsleysi
■ Mest þrjátíu lítrar af blóði teknir úr hverri ■ Blóðmerar hafa drepist
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Fyrir nokkrum árum fékk ég stað-
fest að nokkrar blóðmerar deyja
á hverju ári og mér sýnist ekkert
hafa breyst,“ segir Sigríður Ásgeirs-
dóttir, lögfræðingur og formaður
Dýraverndarsambands Islands.
Hún hefur sent tilraunadýranefnd
fyrirspurn vegna blóðtöku á svo-
kölluðum blóðmerum.
Þegar merarnar eru orðnar fyl-
fullar, það er að segja þegar þær
kasta folaldi, er tekið blóð úr þeim.
1 hvert sinn eru teknir fimm lítrar.
Blóðtakan fer fram með viku milli-
bili í fimm til sjö skipti. Fyrirtækið
fsteka, sem framleiðir stillingarlyf
fyrir fengitíma dýra, kaupir blóðið
og er það selt nær eingöngu á er-
lendan markað.
„Það er ólöglegt að gera tilraunir
á dýrum utan tilraunarstofa, nema
með undanþágu tilraunadýra-
nefndar,“ segir Sigríður sem hefur
ekki fengið svar við fyrirspurn
sinni, en hún sendi bréfið 24. nóv-
ember síðastliðinn. Hún segir
mesta áhyggjuefnið vera eftirlit
með hryssunum eftir blóðtöku sem
er gríðarlegt álag fyrir þær. Hún
segist ekki hafa fengið svör um eft-
irfylgni dýranna.
„Jafnframt því sem hryssurnar
eru fylfullar, mun það þekkjast að
þær séu enn að mjólka folöldum
frá síðasta ári, sem hlýtur að vera
mikið álag til viðbótar," segir Sig-
ríður sem vill að blóðtökurnar fari
fram við mun strangara eftirlit en
nú.
Samkvæmt Sigríði mun vera
hægt að vinna lyfið án þess að
blóðtaka fari fram. Síðustu fregnir
herma að tekið hafi verið blóð
úr um þúsund merum á landinu.
„Dýralæknarnir sem annast blóð-
tökuna eru með hlaupandi eftirlit
með hryssunum," segir Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir um eft-
irlit blóðmera. Hann segir blóðtöku
ekki fara fram nema holdstig mer-
arinnar sé í lagi. Hann harðneitar
því að nokkur hryssa hafi drepist
vegna blóðtökunnar og segir að Sig-
riður þurfi að sanna sitt mál þar.
„Við veitum fyrirtækinu leyfi til
þess að semja við bændurna," segir
Halldór um undanþágu tilrauna-
dýranefndar. Að sögn Halldórs
annast dýralæknar á vegum fyrir-
tækisins blóðtökuna.
Halldór fullyrti í viðtali við
Blaðið að hann hefði sent svar við
fyrirspurnum Sigríðar, en hún
segist ekki hafa fengið það. Hann
hugðist senda þær til blaðamanns
en þær bárust ekki.
Banaslys á Vesturlandsvegi:
Ekki fleiri látist síðan 2000
„Þetta er áminning um að við
þurfum að aðgreina akstursstefnur
þarna," segir Ágúst Mogensen, for-
stöðumaður rannsóknarnefndar
umferðarslysa. „Hvort menn fari þá
leið að tvöfalda veginn eða velja 2+1-
leiðina verður bara að koma í ljós.
En fyrst og fremst þarf að aðgreina
umferðina."
Karlmaður á þrítugsaldri lét lífið
í hörðum árekstri á Vesturlandsvegi
norðan við Þingvallaafleggjara um
hálf sexleytið á sunnudaginn.
Maðurinnvirðisthafamisststjórn
á bílnum með þeim afleiðingum að
hann fór yfir á öfugan vegarhelm-
ing og lenti þar á jepplingi sem kom
á móti. Fjórir voru í jepplingnum og
sluppu þeir allir með minniháttar
meiðsli. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni í Reykjavík liggur
ekki fyrir af hverju maðurinn missti
stjórn á bílnum en veður var slæmt
þegar slysið átti sér stað.
Alls hafa 29 manns látið lífið í um-
ferðarslysum það sem af er árinu
en í fyrra létust 19 í 16 banaslysum.
Ekki hafa fleiri látist í umferðinni
á einu ári síðan árið 2000 en þá
létust 34 einstaklingar. Ágúst segir
tvöföldun vega geta dregið stórlega
úr banaslysum sem orsakast vegna
framanákeyrslu.