blaðið - 12.12.2006, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2006
blaðið
UTAN ÚR HEIMI
BRETLAND"
Stöðva tal um hryðjuverkastríð
Breska utanríkisráðuneytið hefur beint þeim orðum
til breskra ráðherra að hætta öllu tali um „stríð gegn
hryðjuverkum", en markmiðið er að koma í veg fyrir að
múslímar móðgist. Bush Bandaríkjaforseti var fyrstur til
að nota orðalagið í kjölfar árásanna 11. september 2001.
DANMÖRK
Árás á Strikinu
Átján ára grænlenskur piltur hefur verið úrskurð-
aður í 24 daga gæsluvarðhald fyrir árás á Johnny
Bredahl, fyrrverandi hnefaleikamanns, á Strikinu
í Kaupmannahöfn á sunnudaginn. Lögregla leitar
enn manna sem áttu einnig þátt í árásinni.
BRETLAND
Blair sat fyrir nakin
Cherie Blair, eiginkona Tonys Blairs, forsætisráðherra Bret-
lands, sat fyrir nakin undir iok 8. áratugarins fyrir breska mál-
arann Euan Uglow. Hann lauk aldrei við verkið en það var einu
sinni sýnt opinberlega árið 1983. Eftir að Blair hóf afskipti af
stjórnmálum óskaði málarinn eftir að það yrði ekki sýnt aftur.
<;vv’ Jólatilboð í Bohemia Vöruhúsi
Eftir áramót komast þungir pallbílar ekki yfir níutíu:
Bohemia Vöruhús býður upp á
fallega stóla, baðinnréttingar,
tau- og leðursófa
og elkar- og
hnotuhúsgögn.
Borðstofuborð Natur Eik, stærð: 200x100x76
og 6 borðstofustólar, lltlr: svartur, hvítur og dðkkbrúnn
Verð áður: 169.000,-
Tilboðsverð: 95.000,-
ék
ék
BOHEMIA
Stækkanlegt borðstofuborð Natur Eik, stærð: 160/240x100x76
og 6 borðstofustólar, litir: svartur, hvítur og dökkbrúnn.
Verð áður: 197.000,- Tllboðsverð: 115.000,-
Bohemia Voruhús - Askadmd 2 - 201 Kópavogur - simc 544-2290 - Opnunartimi alla virka daga frá W: 9:00-18:00
Gjafakarfa sælkerans
Margar tegundir af gjafakörfum
með spennandi sælkeravörum.
eilsuhúsiö
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla & Selfossi
GEFA/ÞIGGJA
5103737 SMÁAUGLÝSINOAR blaðÍð9—
Pallbílarnir komist
bara á 90 kílómetra
■ Lögin ekki afturvirk ■ Stóreykur slysahættu ■ Hamstra fyrir áramót
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Þungir pikköppar falla undir flokk
vörubíla og frá áramótum skulu
settar hraðatakmarkanir í þá. Há-
markshraði þeirra verður níutíu
kílómetra hraði eftir breytingu,“
segir Sævar Helgi Lárusson, sér-
fræðingur hjá Umferðarstofu. Um
áramótin taka gildi lagaákvæði á
EES þar sem hraðatakmarkanir
ökutækja miðast við 3,5 tonn.
Eigendur stórra pallbíla hafa haft
af því áhyggjur að bílar þeirra
verði kallaðir inn til þess að koma
fyrir hraðatakmörkun. Sverrir Sig-
urjónsson, löggiltur bifreiðasali
hjá IB bílum, telur breytingarnar
mikið óréttlæti. „I okkar huga
fellur þetta undir mismunun og
óréttlæti gagnvart bílaeigendum.
Þessar takmarkanir koma sér ekki
vel fyrir neinn og menn eru ekki
kátir,“ segir Sverrir. „Þetta verður
stór galli á þessum annars góðu
bílum.“
arstofu vegna málsins enda fjöldi
stórra pallbíla í umferðinni hér.
Hann ítrekar að lögin séu ekki
afturvirk. „Fólk þarf ekki að hafa
áhyggjur því lögin eru ekki aft-
urvirk. Öll nýskráð ökutæki eftir
áramótin hljóta takmörkun,“ segir
Sævar. „Bifreiðaeigendur hafa
leitað til okkar vegna brey tinganna
og haft áhyggjur. Ég veit ekki hvað
ökumenn hafa að óttast því hér á
landi má ekki keyra yfir níutíu.“
Sverrir segir bílainnflytjendur
keppast við að ná sem flestum
bílum til skráningar fyrir áramót.
Hann segist ekki átta sig á því
hvernig þessu verði framfylgt. „Við
mælum með því við kaupendur að
skrá bílana fyrir áramót. Mér skilst
að starfsmenn Frumherja komi al-
veg af fjöllum og kynning á þessu
hefur verið slök. Framkvæmdin
hefur ekki verið í neinu samráði við
bílainnflytjendur,“ segir Sverrir.
Aukin siysahætta
Sævar áttar sig ekki á því hvers
vegna fólk
markanir auka öryggi í umferð-
inni. „Óánægðasti hópurinn eru
þeir sem kaupa þessa stóru bíla og
nota þá sem fjölskyldubíla. Ég veit
ekki hvað menn hafa að gera við
nokkur tonn undir fjölskylduna,“
segir Sævar. „Hraðatakmarkanir
hafa gefið mjög góða raun erlendis
og rannsóknir sýna að þetta stuðlar
að auknu umferðaröryggi.“
Sverrir er ósammála og telur
breytinguna stórauka hættuna í
umferðinni. Hann bendir á að víða
erlendis séu aðstæður öðruvísi en
hér. „Að pallbílarnir komist ekki
yfir níutíu verður beinlínis hættu-
legt. Á þjóðvegunum er ómögulegt
fyrir þá að lenda fyrir aftan bíla
sem keyra hægt þar sem það tekur
langan tíma að vinna sig fram úr
með þessum hætti,“ segir Sverrir.
„Slysahættan eykst verulega þar
sem óábyrgir ökumenn fara að
taka fram úr í auknari mæli og
aukin hætta að þeir lendi framan á
einhverjum. Slíkt hefur ekki gefið
góða raun hingað til.“
Aðspurður segir Sævar mikið
hafa verið leitað til Umferð-
f ^
Ekki yfir níutiu Um aramot
verða settar hraðatakmarkanir
á alla þunga pallbila og eftir
það komast þeir ekki yfir niutiu
J Bílainnflytjendur segja þetta
mismunun sem muni stórauka
* hættuna í umferðinni.
Jólasýning í
Galleríi Fold
Verk eftir fjölmarga listamenn gallerísins
Kringlunni, 2. hæ&, sími 5680400
Rau&arárstíg 14, sími 5510400 • www.myndlist.is
Gallerí Fold • Rauðarárstíg og Kringlunni